Pósturaf suxxass » Mán 22. Des 2014 03:19
Ég svosem hef ekki reynslu af gallaðri vöru frá þeim. En ég hef bara fengið topp þjónustu frá þeim þau 5 ár sem ég hef verið í viðskiptum við þá. Þjónustu sem ekki þekkist hér á landi.
Vegna vinnu minnar nota ég farsímann minn gífurlega mikið. Á tímabili var ég 3-4 mánuði í röð búinn að fara með símreikninginn minn upp yfir 15.000 kallinn. Persónulega skipti það mig litlu máli þar sem að ég rukkaði vinnuna.
En viti menn. Ég fékk símtal frá Nova upp úr þurru. "Hey, þú ert að borga alltof mikið. Hér er áskriftardíll, 6900 á mánuði og þú borgar bara ef þú notar meira gagnamagn eða hringir í já eða erlendis".
Endaði á því að borga ca 8000 með auka GB í símann. Töluvert minna en áður.
Nova fær allt mitt props eftir þetta. (Mögulega ætlunin, en samt, vel gert!).