Síða 1 af 1

Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 00:07
af Kjáni
Góða dag, ég er með þetta sjónvarp LG - 32LD450N og þessa hátalara Logitech - Z506 5.1.

þannig sú spurnig er hvernig læt ég þetta virka saman ? þar sem hátalarnir hafa AUX tengi og á vefsíðu þeirra stendur að þetta eigi að virka við sjónvarp en ég er ekki að ná að fá þetta til þess að virka ](*,)


Þannig ég var að vonast að eithver af ykkur gæti verið með svarið :happy :baby

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 19:22
af Kjáni
Engin ? :crazy

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 20:52
af Don Vito
Ég get með engu móti skilið þetta á sænsku, en í fljótu bragði ætti þetta alveg að virka saman, er hvorki RCA né AV tengi á sjónvarpinu?

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:06
af Kjáni
ég er með öll þessi tengi, prófaði öll en næ ekki að töfra fram hljóð ](*,)

Mynd

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:15
af worghal
stingur þessu í samband við headphone tengið á hliðinni...

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:24
af dave57
worghal skrifaði:stingur þessu í samband við headphone tengið á hliðinni...


það er sennilega einfaldast að gera eins og worghal segir, þá þyrftiru svona snúru.
rca.jpg
rca.jpg (8.51 KiB) Skoðað 3088 sinnum

Gætir líka notað scart tengið, það ætti að geta gefið út audio, þá þyrftiru svona snúru :
rca2.jpg
rca2.jpg (6.27 KiB) Skoðað 3088 sinnum


Hins vegar færðu náttúrulega bara sterio úr þessu svona....

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:27
af Kjáni
En ég er með snúru sem hefur svona hvít og rautt tengi báðum megin, á það ekki að virka ?

Mynd

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:39
af dave57
Kjáni skrifaði:En ég er með snúru sem hefur svona hvít og rautt tengi báðum megin, á það ekki að virka ?

Mynd


Það tengi á sjónvarpinu virðist vera hljóð inngangur, ekki útgangur.... Því þarftu að nota headphona tengið eða Scart-ið til að fá hljóð útúr tækinu....

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 21:49
af Kjáni
Já ok, þarna ef ég nota svo snúru með jack tengi fæ ég eithvað gott hljóð eða ?

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 22:09
af dave57
Þú færð alltaf bara sterio hljóð útúr þessu. Samt mikil framför miðað við innbyggðu hátalarana í sjónvarpinu.

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 22:18
af worghal
af hverju ertu að gera þetta svona rosalega flókið?
setur bara kerfið í samband við sjónvarpið eins og þú gerir við tölvu, það er ekkert flóknara en það.
nota þetta venjulega jack tengi og smella því í samband við headphone tengið á hliðinni.

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 22:36
af Kjáni
Takk fyrir þetta ætla að redda mér snúru, var bara ekki búin að hugsa út í það að nota jack tengi fyrir þetta :face takk fyrir hjálpina. :happy

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Lau 25. Ágú 2012 22:37
af djvietice
sjónvarp ekki support 5.1 :sleezyjoe tengja bara í heimabíómagnari

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Sun 26. Ágú 2012 00:35
af upg8
Mér sýnist að það sé optical out á þessu sjónvarpi. Ef þú ætlar að nota þessa hátalara og ná 5.1 efni ef þú tengir tæki í gegnum HDMI tengið á sjónvarpinu þá þarftu sennilegast eitthvað tæki eins og þetta http://www.dealextreme.com/p/5-1-channel-dts-ac-3-home-theater-audio-decoder-71817?item=2

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Sun 26. Ágú 2012 11:17
af Kjáni
upg8 skrifaði:Mér sýnist að það sé optical out á þessu sjónvarpi. Ef þú ætlar að nota þessa hátalara og ná 5.1 efni ef þú tengir tæki í gegnum HDMI tengið á sjónvarpinu þá þarftu sennilegast eitthvað tæki eins og þetta http://www.dealextreme.com/p/5-1-channel-dts-ac-3-home-theater-audio-decoder-71817?item=2
Takk fyrir þá hugmynd en er því miður ekki að fara kaupa neitt aukalega og bæði HDMI tengi eru í notkun, langar bara að heyra hvernig þetta myndi virkar er að nota þessa hátalara við tölvu hvort sem er .

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Sun 26. Ágú 2012 11:48
af flottur
Ertu sem sagt búin að ná að tengja hátalarana við sjónvarpið?

Hafðiru prófað fara í audio stillingarnar í sjónvarpinu og taka það fram að þú ert að nota external hátalara en ekki internal?

Hef lent í því að gera þetta sama og þú ert að gera og ekkert gekk þangað til að ég prufaði að stilla stillingarnar í sjónvarpinu á þetta og þá virkaði þetta.

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Sun 26. Ágú 2012 12:25
af AntiTrust
Mér hlýtur að vera að yfirsjást e-ð fyrst enginn er búinn að stinga upp á þessu, en afhverju ekki bara að nota Optical Out á TVinu yfir í kerfið? Eða er ég að rugla saman AC tengi við það sem lítur út fyrir að vera Optical In á kerfinu?

Re: Sjónvarp + Hátalarar.

Sent: Sun 26. Ágú 2012 12:35
af flottur
AntiTrust skrifaði:Mér hlýtur að vera að yfirsjást e-ð fyrst enginn er búinn að stinga upp á þessu, en afhverju ekki bara að nota Optical Out á TVinu yfir í kerfið? Eða er ég að rugla saman AC tengi við það sem lítur út fyrir að vera Optical In á kerfinu?



Hann var víst búin að segja að hann ætlaði ekki að kaupa neitt aukalega í tækið sitt.