Síða 1 af 2
Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Þri 15. Apr 2008 21:21
af Viktor
ÞEgar ég hef sett upp sjónvarpið hérna heima hefur mér alltaf tekist að fiffa þetta "einhvernvegin" svo þetta virki. Núna hinsvegar er ég bara með heimabíó í Scart tengi og Símamyndlykilinn í hitt.
Vandamálið lýsir sér þannig að þegar ég er að horfa á eitthvað á Símamyndlykilinn og reyni að hlusta á það í heimabíóinu neitar heimabíóið að hlusta á AV rásirnar(SCART tengin) heldur heldur það áfram að hlusta á venjulegu rásina sem var á fyrir (1, 2, 3 á sjónvarpinu, ekki myndlyklinum).
Ætlaði að fara að raðtengja þetta, þannig að eitt Scart tengi færi úr sjónvarpinu>Myndlykilinn>Heimabíóið en ákvað að spyrja hér fyrst. Hvernig er best að setja þetta
allt upp...ég er með LCD skjá + Video tæki með scart in/out + þennan síma myndlykil með scart in/out + heimabíóið með eitt scart tengi.
Var líka að spá í að kaupa HDMI snúru fyrir myndlykilinn, verður þetta þá ekki að sama vandamáli? Allavega...vona að þetta sé ekki of flókið til að skilja, væri fínt ef einhver væri til í að teikna mynd af því hvernig ég ætti að tengja þetta

Ég er með mína hugmynd hér, spurning hvort þetta myndi virka þá.

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Þri 15. Apr 2008 23:25
af coldcut
æji fjandinn ég var að tengja sjónvarp rétt fyrir jól og var í sömu vandræðum...man ekki alveg hvernig ég gerði það en það hafði eitthvað að gera með Line1/Line2 í heimabíóinu. Ekki alveg örugglega búinn að reyna það? Ekki nota TV stillinguna á heimabíóinu fyrir hljóð á myndlyklinum heldur Line1/Line2
skal reyna að komast að því hvernig ég gerði þetta

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mið 16. Apr 2008 02:14
af Viktor
AAAAAAAAAAAAAAAAHhh...tengdi þetta svona en það kom ekkert hljóð í heimabíóið, gæti verið vitlausir út/inngangar í scart tengjunum.. þarf að skoða þetta betur. Gæti verið eitthvað svona Line1/Line2, á minni fjarstýringu(heimabíó) er hægt að velja TV/DVD/VCR. Voðalega er þetta e-ð flókið :O
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mið 16. Apr 2008 13:10
af hagur
Þar sem þú ert á annað borð "bara" að nota SCART, þá myndi ég halda að raðtenging væri einföldust. Hvað áttu annars við með rauðu tengingunni, PAL? PAL er nefnilega ekki tegund tengingar.
VCR -> Myndlykill -> Heimabíó -> TV
Þetta ætti þá að virka þannig að ef þú kveikir á VCR, þá ætti myndlykillinn að hleypa því merki í gegn og loka á sjálfan sig ef svo mætti segja. Með því að slökkva á VCR, þá ertu aftur farinn að horfa á myndlykilinn. Þú þarft bara að passa þig að tengja þetta rétt, en ég geri ráð fyrir því að þú kunnir að raðtengja SCART, þ.e nota TV tengið á VCR yfir í VCR/DVD tengið á myndlyklinum, TV tengið á myndlyklinum yfir í SCART-in á heimabíóinu og svo loks úr heimabíóinu yfir í TV. Með þessu fyrirkomulagi ertu bara að nota eina rás á heimabíóinu fyrir allt saman.
Svo geturðu líka smellt HDMI snúru á milli myndlykilsins og sjónvarpsins til að fá mögulega aðeins betri mynd. En þá ertu náttúrulega ekki að senda hljóðið í heimabíóið. Ef heimabíóið er með HDMI in/out, þá auðvitað tengirðu í það og úr því í TV, annars myndi ég fá mér OPTICAL eða Digital-Coaxial hljóðsnúru úr myndlyklinum og í heimabíóið ef það er með slík tengi. Þá geturðu skipt yfir á inputtið fyrir það til að heyra í myndlyklinum í gegnum heimabíóið og svissað á HDMI inputtið á TV.
Allra besta lausnin er auðvitað að fá sér "alvöru" heimabíómagnara sem er með öll þau input sem maður þarf og upconversion/scaling í gegnum HDMI. Þá er allt tengt í hann og svo bara ein HDMI snúra í sjónvarpið

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 13:36
af Viktor
hagur skrifaði:Þar sem þú ert á annað borð "bara" að nota SCART, þá myndi ég halda að raðtenging væri einföldust. Hvað áttu annars við með rauðu tengingunni, PAL? PAL er nefnilega ekki tegund tengingar.
VCR -> Myndlykill -> Heimabíó -> TV
Get ekki tengt þetta svona því heimabíóið er bara með eitt scart tengi

En í sambandi með PAL þá er það bara venjulega loftnetssnúran.
The Belling-Lee connector or IEC 169-2 connector, more often simply known as TV aerial plug or PAL connector
http://en.wikipedia.org/wiki/TV_Aerial_Plug
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 15:20
af Xyron
getur heimabíóið þitt tekið við input frá scarti?
eru fleiri input á heimabíóinu þínu?
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 19:17
af Viktor
Xyron skrifaði:getur heimabíóið þitt tekið við input frá scarti?
eru fleiri input á heimabíóinu þínu?
Jam, hvernig snúrur þarf ég að kaupa ? Og hjálpar þetta mér að fá hljóð í heimabíóið úr myndlykli ?
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 19:53
af Xyron
Svona snúruGetur keypt 2x svona ..
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 20:10
af hagur
Er SCART tengið á heimabíóinu fyrir input eða output?
Eru einhver önnur INPUT video-tengi á því?
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 20:45
af urban
ég tel mig nú þónokkuð kláran í því að tengja svona dót EN aftur á móti get ég aldrei lýst því í gegnum síma eða netið, þarf alltaf að vera á staðnum.
ef að þér tekst engan vegin að fá þetta í gagnið, þá ætti
http://www.reddarinn.is að geta reddað þér

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 20:54
af Viktor
Já, gæti engan vegin lesið og skilið, svo ég gerði mynd af öllum tengjunum, sleppti videotækinu, nota það ekkert. Var að spá hvort einhver hér gæti þá sýnt mér hvað ég ætti að tengja saman osfrv. bara með mismunandi litum í paint :Ð
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Lau 19. Apr 2008 22:02
af Xyron
Þegar ég sé þetta svona fallega sett upp hjá þér, þá skil ég setup-ið þitt
Mjög einfalt.. RCA snúru frá myndlykli yfir í heimabíó
Síðan bara loop-a 2x scart tengjum fyrir mynd og hljóð í sjónvarp.
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Sun 20. Apr 2008 22:05
af Viktor
Jæja, tengdi þetta svona og það virkar. Núna er ég með annað vandamál, þegar ég lækka hljóðið með myndlykilsfjarstýringunni lækkar ekkert í heimabíóinu. Þarf ég alltaf að vera að vesenast með tvær fjarstýringar??

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 12:17
af Windowsman
Væntanlega nema að þú kaupir fjarstýringu eins og Logitech Harmony eða aðrar svipaðar.
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 14:45
af Haddi
Sallarólegur skrifaði:Jæja, tengdi þetta svona og það virkar. Núna er ég með annað vandamál, þegar ég lækka hljóðið með myndlykilsfjarstýringunni lækkar ekkert í heimabíóinu. Þarf ég alltaf að vera að vesenast með tvær fjarstýringar??

Nei, ef þú tengir myndlykilinn við heimabíóið, þá átt þú að geta lækkað með myndlykilsfjarstýringunni.
Ef allt er rétt tengt þ.e.a.s.
hHins vegar getur þú ekki lækkað í DVD/heimabíóinu með myndlykilsfjarstýringunni. Segir sig sjálft. En ef hljóðið fer úr myndlyklinum og í heimabíóið og þaðan í hátalarana, þá notaru volume takkann á myndlykilsfjarstýringunni.
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 19:15
af Viktor
Haddi skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Jæja, tengdi þetta svona og það virkar. Núna er ég með annað vandamál, þegar ég lækka hljóðið með myndlykilsfjarstýringunni lækkar ekkert í heimabíóinu. Þarf ég alltaf að vera að vesenast með tvær fjarstýringar??

Nei, ef þú tengir myndlykilinn við heimabíóið, þá átt þú að geta lækkað með myndlykilsfjarstýringunni.
Ef allt er rétt tengt þ.e.a.s.
hHins vegar getur þú ekki lækkað í DVD/heimabíóinu með myndlykilsfjarstýringunni. Segir sig sjálft. En ef hljóðið fer úr myndlyklinum og í heimabíóið og þaðan í hátalarana, þá notaru volume takkann á myndlykilsfjarstýringunni.
Þetta er nú bara tengt eins og á myndinni, samt lækkast bara "Sjónvarpshátalara" hljóðið, heimabíóið er alltaf í hæsta. Þeas. það lækkar ekkert í takt við myndlykilsfjarstýringuna.+
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 20:07
af urban
Xyron skrifaði:Þegar ég sé þetta svona fallega sett upp hjá þér, þá skil ég setup-ið þitt
Mjög einfalt.. RCA snúru frá myndlykli yfir í heimabíó
Síðan bara loop-a 2x scart tengjum fyrir mynd og hljóð í sjónvarp.
er ég sá eini sem sé eitthvað rangt við þetta ?
voðalega fínt HDMI tengi bæði á myndlykli og sjónvarpi
eina spurningin frá mér er hvort að þessu rca tengi á sjónvarpinu séu inn eða út.
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 20:40
af Viktor
Er nokkuð viss um að þetta er RCA-in á sjónvarpinu, nota þetta til að tengja myndavélar og þessháttar. Virkar alveg eins og scörtin

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 20:46
af Haddi
Ég myndi sleppa alveg sjónvarpshátölurunum ef þú ert með heimabíó.
Er með sjónvarpið tengt við stóra útvarpshátlara og gamaldags magnara, tengi audio out á digital island í aux in á magnaranum, nokkuð viss um að þetta sé mjög svipað á heimabíókerfinu þínu. En ef þú ert með digital island þá lækkar volume takkinn allt hljóð úr myndlyklinum. Ef þú ert með eitthvað annað en digital island þá þekki ég það ekki en mér finnst mjög líklegt að þetta sé eins í öllum svona myndlyklum.
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 22:10
af beatmaster
Er það bara upplausnin hjá mér eða er það hjá öllum að maður þurfi að skrolla niður viðhengismyndirnar, þetta er alveg óþolandi og væri æðislegt ef að það væri hægt að breyta þessu?
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 22:22
af Dazy crazy
Vandamálið liggur ekki einungis þín megin, allavega á ég við sama vandamál að stríða.
Þetta var sérstaklega pirrandi á þessum link:
viewtopic.php?f=9&t=17602
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Mán 21. Apr 2008 23:21
af Viktor
Haddi skrifaði:Ég myndi sleppa alveg sjónvarpshátölurunum ef þú ert með heimabíó.
Er með sjónvarpið tengt við stóra útvarpshátlara og gamaldags magnara, tengi audio out á digital island í aux in á magnaranum, nokkuð viss um að þetta sé mjög svipað á heimabíókerfinu þínu. En ef þú ert með digital island þá lækkar volume takkinn allt hljóð úr myndlyklinum. Ef þú ert með eitthvað annað en digital island þá þekki ég það ekki en mér finnst mjög líklegt að þetta sé eins í öllum svona myndlyklum.
Nota ekki sjónvarpshátalarana, enda eru þeir ekki til umræðu hér því það virkar fínt að lækka í þeim

Það er bara frekar pirrandi að þurfa að vera með 2 fjarstýringar til þess að skipta um stöð/lækka í heimabíóinu. Hlýtur að vera hægt að skítmixa þessu e-ð

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Þri 22. Apr 2008 01:19
af Xyron
urban- skrifaði:Xyron skrifaði:Þegar ég sé þetta svona fallega sett upp hjá þér, þá skil ég setup-ið þitt
Mjög einfalt.. RCA snúru frá myndlykli yfir í heimabíó
Síðan bara loop-a 2x scart tengjum fyrir mynd og hljóð í sjónvarp.
er ég sá eini sem sé eitthvað rangt við þetta ?
voðalega fínt HDMI tengi bæði á myndlykli og sjónvarpi
eina spurningin frá mér er hvort að þessu rca tengi á sjónvarpinu séu inn eða út.
Ekkert rangt við þetta, hann græðir mjög lítið á því að versla sér snúru á 3000+ til þess eins að geta horft á einstaka útsendingu af national geographic channel.
Þetta er ódýrasta lausnin, og hann sér lítin eða engan mun á útsendinguni.
Með fjarstýringarnar, hvernig er það.. þegar þú setur t.d. hljóðstyrkinn á myndlyklinum í 100%, og hækkar ágætlega í heimabíókerfinu. Lækkar síðan hljóðstyrkinn á myndlyklinum í t.d. 50% .. heyrist þá ekki minna í heimabíóinu?
Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Þri 22. Apr 2008 13:02
af Viktor
Xyron skrifaði:urban- skrifaði:Xyron skrifaði:Þegar ég sé þetta svona fallega sett upp hjá þér, þá skil ég setup-ið þitt
Mjög einfalt.. RCA snúru frá myndlykli yfir í heimabíó
Síðan bara loop-a 2x scart tengjum fyrir mynd og hljóð í sjónvarp.
er ég sá eini sem sé eitthvað rangt við þetta ?
voðalega fínt HDMI tengi bæði á myndlykli og sjónvarpi
eina spurningin frá mér er hvort að þessu rca tengi á sjónvarpinu séu inn eða út.
Með fjarstýringarnar, hvernig er það.. þegar þú setur t.d. hljóðstyrkinn á myndlyklinum í 100%, og hækkar ágætlega í heimabíókerfinu. Lækkar síðan hljóðstyrkinn á myndlyklinum í t.d. 50% .. heyrist þá ekki minna í heimabíóinu?
Neib

Re: Setja upp sjónvarpið >> SCART/PAL ruglingur
Sent: Þri 22. Apr 2008 14:40
af hagur
Þá held ég að afruglarinn þinn sé þeim "kosti" gæddur að volume up/down hafi engin áhrif á sound-outputtið sem sent er út um RCA tenglana. Ef svo er, þá neyðistu víst til að nota tvær fjarstýringar.