Vandamálið lýsir sér þannig að þegar ég er að horfa á eitthvað á Símamyndlykilinn og reyni að hlusta á það í heimabíóinu neitar heimabíóið að hlusta á AV rásirnar(SCART tengin) heldur heldur það áfram að hlusta á venjulegu rásina sem var á fyrir (1, 2, 3 á sjónvarpinu, ekki myndlyklinum).
Ætlaði að fara að raðtengja þetta, þannig að eitt Scart tengi færi úr sjónvarpinu>Myndlykilinn>Heimabíóið en ákvað að spyrja hér fyrst. Hvernig er best að setja þetta allt upp...ég er með LCD skjá + Video tæki með scart in/out + þennan síma myndlykil með scart in/out + heimabíóið með eitt scart tengi.
Var líka að spá í að kaupa HDMI snúru fyrir myndlykilinn, verður þetta þá ekki að sama vandamáli? Allavega...vona að þetta sé ekki of flókið til að skilja, væri fínt ef einhver væri til í að teikna mynd af því hvernig ég ætti að tengja þetta
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Ég er með mína hugmynd hér, spurning hvort þetta myndi virka þá.
![Surprised :o](./images/smilies/icon_surprised.gif)