Nýtt forum!

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Nýtt forum!

Pósturaf appel » Sun 24. Feb 2008 17:52

Verið velkomin í þetta nýja forum. Þetta forum tekur á mörgum hlutum sem tengjast sjónvörpum beint og óbeint.

Samkvæmt lýsingu:
"Allt sem tengist sjónvörpum, plasma, LCD, heimabíóum, media-center, IPTV, hljóðkerfum, DVD, Blu-Ray, set-top-box, sjónvarpsflakkarar, leikjatölvum, sjónvarpsþáttum, kvikmyndum og hverju sem tengist afslöppunarmiðstöð heimilisins."


Ástæðan fyrir því að ég bjó þetta forum til var sú að ég er nýbúinn að kaupa mér 50" Plasma skjá og er að vinna í uppsetningu á góðu heimabíói. Fann að það vantaði einhvern íslenskan vettvang á netinu þar sem hægt væri að spjalla um allt sem því tengist. Á vaktinni er að finna marga nörda sem eru sjónvarpsjúklingar og hafa mikinn áhuga á þessu, svo að það var eðlilegast að stofna þetta hér.

Það má líka spjalla um sjónvarpsþætti og kvikmyndir hér.


Athugið: Ekki vísa í efni sem er dreift á ólöglegan hátt, þ.e. vísa í torrenta.


*-*