Síða 1 af 1
Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 13:23
af falcon1
Ég nota sjónvarpið mjōg lítið og það virðist eitthvað hafa gerst með annað batteríið.
Hvernig hreinsar maður þetta svo fjarstýringin virki aftur?
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 13:29
af falcon1
Ps. ég veit ekki hvort það er vitleysa en mér fannst koma einhver vond lykt eftir að ég opnaði batterýhólfið.
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 13:41
af falcon1
Eða er bara málið að henda þessari fjarstýringu og splæsa í nýja?
Ég er með Panasonic Viera plasma sjónvarp frá sirka 2012-2014
https://ht.is/one-for-all-fjarstyring-p ... ngill.html
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 14:06
af falcon1
Ég tékkaði á módel týpunni á sjónvarpinu og ég er með "panasonic txp50st50y"
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 14:14
af Viggi
Ef þú getur pússað þetta af og þrifið með alkóhóli þá gæti það virkað
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 15:00
af falcon1
Viggi skrifaði:Ef þú getur pússað þetta af og þrifið með alkóhóli þá gæti það virkað
Er eitthvað sem þarf að varast ef maður prófar að reyna að þrífa þetta? Hef aldrei lent í þessu áður.
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 15:11
af axyne
þetta er nú ekki mikil útfelling, ætti að vera nóg að setja ný batterý í og rúlla þeim aðeins til að fá contact aftur.
Mæli nú samt með að þú þrífir þetta. Skrúfa í sundur, nota tækifærið og þvo gúmmímottuna undur volgu vatni. Síðan taka gamlan tannbursta og bursta batterý snerturnar aðeins ættir að ná því mesta af án neinna efna.
En ég myndi samt sem áður prufa að setja ný batterý í fyrst og athuga hvort þú færð hana ekki til að virka áður en þú ferð að skrúfa í sundur.
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 21:23
af Gemini
falcon1 skrifaði:Viggi skrifaði:Ef þú getur pússað þetta af og þrifið með alkóhóli þá gæti það virkað
Er eitthvað sem þarf að varast ef maður prófar að reyna að þrífa þetta? Hef aldrei lent í þessu áður.
Þetta er basi sem lekur úr rafhlöðunum svo já þetta getur brennt þig. Passa sérstaklega að nudda ekki augun og fá þetta þangað, myndi líklega vera í svona einnota hönskum meðan ég nudda þetta. Mæli með að lesa mér bara til um öryggi varðandi að þrífa svona tæki eftir að batterí leka í þeim. Þetta hefur komið fyrir á flestum heimilum, sérstaklega í tækjum sem eru sjaldan notuð og fólk gleymir batteríum í þeim. Margir velja að henda gömlum tækjum þegar þetta gerist en auðvitað er vesen að redda nýrri fjarstýringu svo gæti verið þess virði að bjarga.
Re: Hreinsa fjarstýringu
Sent: Sun 01. Mar 2026 22:15
af gotit23
Ekkert mál að þrífa þetta ,taka þetta alveg í sundur,
Láta þetta liggja í 80% spritt yfir nóttina og svo blása þetta með þrystiloft og láta þetta liggja í 24 tíma í stofuhita (til að vera viss um að þetta er þurrt.
Ef það er enn áfelling á gormunum (sem komast í snertingu við batteríið) þá úða á þetta kontakthreinsir og bursta með tannbursta og leyfa svo að þorna .
Þá ætti þetta að vera eins og nýtt.