Sælir
Setti í húisið 8 stk. Sonos, var allt í lagi í upphafi og allt það en það er eins og þessar græjur versni, fæ tengdó yfir og hún hlustar á vók delluna í RÚV og heyrir varla neitt. Mér er svo sem sama en ekki henni. En ég er audiophile light, með Schiit Bifrost 2/64 og Focal tripple hátalara sjálfur ásamt nokkrum settum af Beyerdynamic og Dan Clark í tölvuherberginu svo ég get varla gefið Sonos góð meðmæli.
Eru nýju Sonos betri og eru menn að kaupa eitthvað annað, opin og heiðarleg spurning áður maður settur slatta af $$$ í að endurnýja þetta. Kann að meta þetta þráðlaust klárlega, þægindi. Var með allt vírað í gamla húsinu mínu en ég gerði það upp og þar gat ég planað alla víra undir gólfið en það er ekki staðan mín í dag.
Þakka fyrir allar pælingar og reynslusögur.
Sonos - First gen, lélegt hljóð - Uprade?
-
Höfundur - /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur

Síðast breytt af Templar á Mið 11. Jún 2025 02:00, breytt samtals 1 sinni.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||

Re: Sonos - First gen, lélegt hljóð - Uprade?
Ég er með Sonos Amp í stofunni tengdann við par af JBL Arena 130 hátölurum og er mjög sáttur. Nota þetta bæði fyrir sjónvarp og tónlist. Til viðbótar er ég með einn Sonos One gen. 2 í öðru rými og það er auðvitað stór munur á hljóðgæðunum. Þrátt fyrir það finnst mér hljóðið í Sonos One vera fínt fyrir það hvað hann er og hve lítil keila er í honum.
Varðandi aðra Sonos hátalara er sagan að mínu mati svipuð. Hljóðið er fínt miðað við að í þeim eru fremur smáar keilur - en þú færð aldrei virkilega góðan hljóm á breiðu tíðnisviði með litlum hátölurum og brellum (sem er það sem Sonos gerir). Ég er fjarri því að vera sérfræðingur í þessu en að mínu mati þarftu að hafa amsk. 6" keilu til að fá þokkalegan hljóm á "midrange" og ásættanlegan bassa, með öðrum orðum að ná yfir megnið af tíðnisviðinu í flestri tónlist. Ef keilan er minni finnst mér alltaf eins og það vanti einhverja fyllingu í hljóminn, sama hversu dýrir eða fínir hátalararnir eru.
Mér finnst hljóðið í Sonos hátölurunum ekki breytast yfir tíma en upplifunin af þeim getur tekið breytingum eftir því sem maður lærir betur að meta góðan hljómburð. Það er kannski ekki tilfellið með tengdamömmu þína samt.
Eitt sem mér dettur í hug. Getur verið að bassinn sé hátt stilltur? Spurning hvort að tal berist betur ef það er stillt öfugt - jafnvel ef bass boozt er tekið af og bassi og diskant settur í "núll". Svo er spurning um að keyra "Trueplay Tuning" aftur með appinu og sjá hvað það gerir.
Varðandi aðra Sonos hátalara er sagan að mínu mati svipuð. Hljóðið er fínt miðað við að í þeim eru fremur smáar keilur - en þú færð aldrei virkilega góðan hljóm á breiðu tíðnisviði með litlum hátölurum og brellum (sem er það sem Sonos gerir). Ég er fjarri því að vera sérfræðingur í þessu en að mínu mati þarftu að hafa amsk. 6" keilu til að fá þokkalegan hljóm á "midrange" og ásættanlegan bassa, með öðrum orðum að ná yfir megnið af tíðnisviðinu í flestri tónlist. Ef keilan er minni finnst mér alltaf eins og það vanti einhverja fyllingu í hljóminn, sama hversu dýrir eða fínir hátalararnir eru.
Mér finnst hljóðið í Sonos hátölurunum ekki breytast yfir tíma en upplifunin af þeim getur tekið breytingum eftir því sem maður lærir betur að meta góðan hljómburð. Það er kannski ekki tilfellið með tengdamömmu þína samt.
Eitt sem mér dettur í hug. Getur verið að bassinn sé hátt stilltur? Spurning hvort að tal berist betur ef það er stillt öfugt - jafnvel ef bass boozt er tekið af og bassi og diskant settur í "núll". Svo er spurning um að keyra "Trueplay Tuning" aftur með appinu og sjá hvað það gerir.
-
Höfundur - /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Sonos - First gen, lélegt hljóð - Uprade?
Takk fyrir þetta.
Búinn að taka loudness af og bassann alveg niður og treble upp, samt er tal óskýrt. Þetta gimmick að reyna gefa breiðari hljóm og betri tónlistar upplifun með software tune gerir allt talað mál muffled óháð EQ stillingum.
Þetta var ekki svona upphaflega og hefur gerst eftir uppfærslu.
Þetta eru Play 5 allt saman.
Svo er alveg smá pirrandi að appið er alltaf með tilkynningu að uppfæra í Sonos 2 en ekki 1 hátalari er samhæfur.
Maður endar líklega aftur með FM útvarp fyrir tengdó.