Mig langar að forvitnast aðeins í sambandi við DAC og heyrnartól.
Ég hlusta mikið á tónlist en tónlistin sem ég hlusta á er bara í gegnum Youtoube og Spotify og MP3.. en ég á fullt af flac tónlist sem ég væri til í að hlusta á í betri gæðum.. þannig að ég hef verið að skoða DAC's og góð heyrnartól.
Hverju myndið þið sérfræðingar mæla með?
Ég er með alveg þokkalega góða hátalara sem ég nota alla daga en svo vill ég hlusta á tónlist í góðum gæðum frá tölvunni.. get ég notað tölvuhátalara og DAC á "sama" tíma? Þá meina ég þarf ég eitthvað að vera að skipta á milli tengja á tölvunni?
Hvernig er DAC tengdur við tölvu? Er það með USB eða Jack tengi?
Hef aðeins verið að skoða Shennheiser HD 6602S2.. Er einhver sem er með reynslu af þeim?
Eftir af hafa skoðað aðeins á Youtube þá veit ég ekki hvort að ég þurfi DAC eða AMP.. Ég er með nýlega borðtölvu sem ætti að vera með ágætis hljóðkort.. En ég er algert noop þegar kemur að þessu þannig að allar leiðbeiningar eru vel þegnar.

Kv.
Molfo