Kannski allt í lagi að koma með update. Ég fékk senda nýja fjarstýringu um hæl. Þurfti ekki að borga krónu. Logitech fyrirframgreiddi öll aðflutningsgjöld og ég þurfti ekki einu sinni að shippa gömlu til baka. Þeir reyndar sögðust ætla að "disable"-a hana sem þýðir væntanlega að ég get ekki lengur configurað hana (en hef ekki látið á það reyna). Fékk þetta svo keyrt upp að dyrum með DHL (eða Fedex, man ekki), tók örfáa daga.
Módelið sem ég fékk í staðinn er líka töluvert flottara, eða "Harmony Ultimate One" sem styður RF líka. Ég keypti mér því Harmony Hub-inn til að nota með og svo er ég kominn með Amazon Echo Dot og Philips Hue perur og allt voice controlled og fínt

Mjög skemmtilegt setup.
GuðjónR skrifaði:Hvaða Logitech fjarstýringar eru bestar að ykkar mati?
Ég myndi skoða Ultimate One + Hub eða þá bara Harmony Elite sem er enn nýrri og flottari og kemur með hub included. Þetta eru ótrúlega solid fjarstýringar og virka mjög vel. Með Harmony Hub og Harmony appinu er þetta svo orðið alvöru smart dæmi og endalausir möguleikar. En þetta er frekar dýrt ....
Cascade skrifaði:Ég á svona fjarstýringu og var að opna battery hlífina í fyrsta sinn
Mér sýnist (því miður) það ekki vera neitt bólgið.
Helduru að maður geti samt fengið recall bara með að senda þeim serial númerið á fjarstýringunni?
Nei, efast um það. Ég þurfti að taka myndir af bólgna batteríinu í fjarstýringunni og senda þeim. Á myndunum þurfti líka að vera handskrifaður miði með case númerinu mínu.