Eru einhverjir áhugamenn um alvöru hljómtæki hér inni?

ég er núna með svona kit dæmi, http://www.trustedreviews.com/panasonic ... tem_review, sem virkar fínt fyrir bíó en er ekki alveg að ganga upp eftir að við fengum okkar vinyl spilarann. Ég hugsa að ég myndi bara byrja á tveimur fram-hátölurum og magnara og eiga svo möguleikann á að bæta við seinna meir.
Er hægt að gera þetta almennilega fyrir 250þús? þá með magnara sem hefur einhvern slatta af hdmi tengjum og einhvern stream möguleika (air og wifi), sem kannski er hægt að útfæra með öðrum tækjum, og svo góðum tónlistar hátölurum.
Ég er ekki búinn að fara í verslanirnar að hlusta, tjékkaði reyndar á þessum http://ht.is/product/200w-golfhatalarar og leist ágætlega á. Er einhver hér með reynslu af hátölurum og magnara sem væri sniðugur sem væri vert að skoða?
kv. Kalli