Ekki vill svo vel til að einhver geti leiðbeint mér aðeins. Þannig er að myndlykillinn sem ég er með er fastur á upphafsskjánum, þessum sem er með Vodafone logoinu og segir "Augnablik Myndlykill ræsir sig" og hefur ekki komist lengra síðan í fyrradag. Ég er búinn að prófa að endurræsa bæði lykil og router nokkrum sinnum, fara yfir allar snúrur og allt virðist vera í lagi. Hann tók inn einhverja uppfærsu og ég hef ekki séð sjónvarp síðan.
Þetta er svarti Amino lykillinn:
http://www.vodafone.is/sjonvarp/bunadur/amino140/Mig er farið að sárvanta Stephen Fry inn í stofu
