Síða 1 af 1
Ný röðun á DDR5
Sent: Lau 10. Maí 2025 22:53
af GuðjónR
Ég var að taka DDR5 flokkinn í gegn.
Ný nálgun, ákvað að reyna að flokka eftir MT, CL, GB og taka fram framleiðandann.
Það kemur mér svolítið á óvart að engin verslun býður upp á 6400 CL32 96GB (2×48) EXPO eða betra… bara XMP fyrir Intel.
https://www.vaktin.is/index.php?action= ... lay&cid=14
Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Sun 11. Maí 2025 14:44
af ArnarF
Veit ekki hvort fleiri eru að lenda í þessu, en þetta er að gerast hjá mér eftir breytinguna

Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Sun 11. Maí 2025 14:48
af mikkimás
Sama hjá mér.
Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Sun 11. Maí 2025 16:28
af GuðjónR
Úff ... takk fyrir ábendinguna!
Smá mistök hjá mér í style.css sem ég sá ekki þar fyrr en þið bentuð mér á og ég opnaði "private window" .
Er búinn að fixa!
PS. Ef þetta lagast ekki hjá ykkur þá gætuð þið þurft að clear cache í browser. Ég þurfti þessi í Chrome en ekki neinum öðrum browser.
Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Mán 12. Maí 2025 15:31
af ArnarF
Þetta er komið í lag á Chrome og þurfti ekki að cleara cache

ekkert smá úrval af DDR5, flott að hafa þetta svona vel aðskilið og fá fleiri beina linka

Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Mán 12. Maí 2025 16:27
af Gemini
Ekki gera grín að mér en þetta er komið í lag á Edge líka! Þurfti ekki að eyða kökum.
Er í smá tilraunaverkefni að nota Edge á meðan Firefox er ekki komið með HDR stuðning, bara tímabundið

Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Þri 20. Maí 2025 07:15
af Nördaklessa
Er ekki kominn tími á að skella 5060 kortunum á verðvaktina?

Re: Ný röðun á DDR5
Sent: Þri 20. Maí 2025 10:14
af Gemini
Nördaklessa skrifaði:Er ekki kominn tími á að skella 5060 kortunum á verðvaktina?

En þá myndi fleira fólk óvart geta gert þau mistök að kaupa þessi kort!
