Þegar ég svaraði fyrst þá skrifaði ég upphaflega að þetta væri nám á framhaldsskólastigi. Síðan smellti ég á slóðina sem þú [OP] settir inn og þar stendur skírum stöfum að þetta sé nám á háskólastigi. Sem mér fannst frekar fyndið þar sem ég hefði getað svarið að þetta hefði verið kynnt í fyrravor sem nám á framhaldsskólastigi. Það var reyndar rétt hjá mér.
https://www.keilir.net/menntaskolinn/mo ... ustid-2019Þetta B.Sc nám er greinilega nýtt hjá Keili og á væntanlega að byrja í haust ef ég skil þetta rétt og því er líklegast enginn til vitnis um það hversu gott eða slæmt námið er. Hinsvegar verð ég að taka til baka það sem ég sagði um gæðastimpilinn. Mig minnti endilega að þetta nám væri í samstarfi við NTNU sem er virt stofnun. Þennan Noroff skóla veit ég ekkert um.
Hafðu í huga að greinin sem Sultukrukka vísar á er frá árinu 2009 og vonandi hefur eitthvað batnað í rekstri Noroff. Svo virðist sem þessi stofnun hafi verið algerlega úti að skíta á árunum fyrir 2010 en eftir 2010 er í það minnsta enginn að kvarta undam þeim.
https://vgd.no/forbruker/jobb-og-utdann ... are-bloeff (þráður frá 2008 t.d.)
Hafðu líka í huga að kostnaður við námið er um milljón á ári x 3 + 2-300k fartölvukostnaður þar sem Keilir virðist ekki reka neitt tölvuver. Skólagjöldin eru gefin upp í norskum krónum þannig að þau gætu hækkað ef norska krónan tekur aftur við sér.