Síða 1 af 1

Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Lau 21. Okt 2017 15:52
af ElvarP
Eins og hér sést.

vaktin.PNG
vaktin.PNG (61.66 KiB) Skoðað 3973 sinnum

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Sun 22. Okt 2017 10:52
af Hjaltiatla
@Elvarp

Þú ert ráðinn , Þú getur sett upp síðuna og notað vaktin.is og laptop.is til hliðsjónar.

Endilega láttu okkur vita þegar þetta er tilbúið.

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Þri 24. Okt 2017 03:23
af ElvarP
Þetta getur ekki verið erfitt, Þarf bara að breyta nokkrum tölum.

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Mið 25. Okt 2017 16:00
af linenoise
ElvarP skrifaði:Þetta getur ekki verið erfitt, Þarf bara að breyta nokkrum tölum.

Brill, verðurðu þá búinn með þetta fyrir helgi?

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Mið 25. Okt 2017 18:40
af depill
Þarf svo sem ekki að drulla yfir hann.

Hins vegar hefur vaktin.is alltaf verið component based inní tölvur. Hvort það eigi að breytast eða ekki er fyrir Guðjón að ákveða ( ég væri til dæmis alveg til í að sjá síma e.t.c. ).

Hins vegar hef ég aldrei séð þjónustu hérna og sérstaklega í spacei þar sem það er ekkert competiitve advantage fyrir Íslenska þjónustuveitendur nema mögulega þjónusta á Íslensku. Hvað ætlarðu að bera saman, bara innlenda provider ? Líka erlenda provider. Hvað með providera sem gefa upp verð case by case. Og hver ætlar að maintanea.

Það sem er þæginlegt við líka að bera saman vörur er að þetta er sami hluturinn. BenQ <vörunúmer> 24" skjár, hvað kostar hann á milli verslanna. Vefhýsing er ekki þannig vara, frekar en Internet, farsíma þjónusta e.t.c. Þar kemur svo mikið inní gæði vörunnar, afhendingu varanna þannig það er er erfiðara að bera hana saman.

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Þri 31. Okt 2017 22:50
af ElvarP
nvm

Re: Verðvakt fyrir hýsingar

Sent: Mið 01. Nóv 2017 09:21
af GuðjónR
depill skrifaði:Hins vegar hefur vaktin.is alltaf verið component based inní tölvur. Hvort það eigi að breytast eða ekki er fyrir Guðjón að ákveða ( ég væri til dæmis alveg til í að sjá síma e.t.c. ).

Ég líka! Væri flott að hafa síma og spjaldtölvur í sérflipa, það mætti alveg vera með nethýsingar/þjónustur í öðrum og þess vegna eitthvað annað í þeim þriðja. Ef gagnagrunnurinn biði upp á svoleiðis þá væri ég löngu búinn að bæta því við.
Eitt sinn var ég að spá í Apple vörum, byrjaði á að finna alla söluaðila og setti upp í exel, því næst setti ég vorurnar inn en sá þá að allir yrðu með græn verð svo það var hálftilgangslaust.