Síða 1 af 1

Verðsamanburður á tölvum

Sent: Mán 12. Maí 2003 23:17
af hakon
ég vildi bara benda öllu töluváhugafólki að á vefnum http://www.bestukaup.is má sjá verð á borðtölvum, ferðatölvum, prenturum, skönnum og fleiru hjá flestum söluaðilum hérlendis.

Svo vil ég þakka umsjónarmönnum vaktin.is fyrir frábæran vef.

Sent: Þri 13. Maí 2003 12:09
af MezzUp
hmm, þetta er soldið gömul síða er þaggi?
annars vildi ég helst sjá sona innlenda síðu sem að sýnir hvar verslanir eru með tilboð í gangi, hef séð einhverjar þannig(í útlöndum)

Sent: Þri 13. Maí 2003 19:54
af hakon
jú þessi vefur er búinn að vera í gangi í tvö og hálft ár en verð eru að sjálfsögðu uppfærð reglulega, amk í tölvuhlutanum. Það var síða í gangi sem skráði öll tilboð en hún hætti fyrir nokkru. þarna inni eru verð á tölvum hvort sem um tilboð er að ræða eða ekki.
Því miður er það svo að sumir söluaðilar eru gjörsamlega búnir að gera hugtakið "tilboð" að merkingarlausu hugtaki. Í mínum huga er um tilboð að ræða þegar einhver vara lækkar umtalsvert og tímabundið og er þá á lægra verði en gengur og gerist annars staðar. Því miður er það svo að allt of margir auglýsa tilboð á einhverju drasli sem sem síðan lækkar bara enn meira eða þá að draslið kostar mun minna hjá öðrum. Ég er búinn að fylgjast með þessu í tvö og hálft ár og því miður er þetta of algengt. Það er líka allt of algengt að vara sé auglýst á lækkuðu verði og þá er auglýst "verð áður" sem í mörgum tilfellum er ekki síðasta verð heldur þar síðasta verð. Þetta er ólöglegt.

Sent: Þri 13. Maí 2003 21:21
af GuðjónR
it sucks!

Sent: Þri 13. Maí 2003 21:47
af MezzUp
nice avatar :)
ég verð að fara að finna mér einhverja góða