Síða 1 af 1

Yfirklukkun og búnaður, skjót svör óskast.

Sent: Sun 03. Sep 2017 22:29
af castino
Gott kvöld

Ég keypti mér nýverið öfluga tölvu en er ekki nógu sáttur við frammistöðuna hjá henni.

Til að mynd næ ég ekkert að yfirklukka hana, ekki einu sinni standard yfirklukkun sem asus bios bíður upp á.

Ætli það sé aflgjafinn : Corsair RM650x 650W

Móðurborðið með Kaby Lake : Asus Z170 PRO Gaming 1151 ATX

eða

CPU viftan : Coolermaster Hyper TX3 EVO

Ábendingar vel þegnar :)

???

Re: Yfirklukkun og búnaður, skjót svör óskast.

Sent: Sun 03. Sep 2017 22:48
af Aron Flavio
Ertu ekki með K-series CPU?

Re: Yfirklukkun og búnaður, skjót svör óskast.

Sent: Sun 03. Sep 2017 22:50
af castino

Re: Yfirklukkun og búnaður, skjót svör óskast.

Sent: Sun 03. Sep 2017 23:10
af Baldurmar
Hvað meinar þú með að hún yfirklukki ekki ?
Bootar tölvan ekki eftir overclock eða slekkur hún á sér við stress testing ?
Ef að hún bootar, hvert er hitastigið á cpu við stress ?

Re: Yfirklukkun og búnaður, skjót svör óskast.

Sent: Mán 04. Sep 2017 06:58
af pepsico
Z170 chipset borð voru gerð fyrir Skylake örgjörva, sbr. 6700k, og eru ekki með out-of-the-box stuðning við Kaby Lake örgjörva yfirklukkun.

Í öllum tilfellum þurfa Z170 notendur að uppfæra UEFI (BIOS) til að fá stuðning við Kaby Lake yfirklukkun (þegar það er hægt).
Oft kviknar ekki einu sinni á tölvunni nema það sé búið að fara í slíka uppfærslu.

https://www.asus.com/us/Motherboards/Z1 ... Desk_BIOS/

Mig grunar að þig vanti uppfærslu 3016, eða nýrri, til að geta yfirklukkað.