Síða 1 af 2

Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:14
af GuðjónR
Þá hefur Tölvuvirkni kvatt okkur og Ódýrið segir hæ.
Ekki á hverjum degi sem eitthvað nýtt gerist í tölvubransanum á klakanum.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:20
af Dúlli
Jájá hví ekki skipta um kennitölu en allt hitt er nákvæmlega sama og þetta er en í eigu tölvuteks. Vöru úrvalið er ekki einu sinni skárra.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:29
af Olli
Dúlli skrifaði:Jájá hví ekki skipta um kennitölu en allt hitt er nákvæmlega sama og þetta er en í eigu tölvuteks. Vöru úrvalið er ekki einu sinni skárra.

Sama kennitala

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:39
af worghal
en þetta er nákvæmlega sama batterýið, hver var tilgangurinn að skipta um nafn?

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:40
af Dúlli
Olli skrifaði:
Dúlli skrifaði:Jájá hví ekki skipta um kennitölu en allt hitt er nákvæmlega sama og þetta er en í eigu tölvuteks. Vöru úrvalið er ekki einu sinni skárra.

Sama kennitala


Ah afsakið, maður er bara búin að venjast því þegar fyrirtæki skipta um nafn að á sama tíma sé skipt um kennitölu.

Skil samt engan vegin tilganginn í þessu, fyrirtækið er búið að vera til í 14 ár og núna skipta af því bara um nafn bara kjánalegt.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:44
af chaplin
Sá uppsetninguna á vefsíðunni og lokaði henni strax. Algjört cluster-fuck af upplýsingum og óskiljanlegt.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:44
af Olli
Já ég átta mig ekki á þessu

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:56
af demaNtur
Eru þá vörur sem keyptar eru í Tölvuvirkni ekki í ábyrgð lengur?

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 19:58
af Límband
demaNtur skrifaði:Eru þá vörur sem keyptar eru í Tölvuvirkni ekki í ábyrgð lengur?

Sama kennitala, sama ábyrgð myndi ég halda :)

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 20:07
af snaeji
Eru ekki bara komnar svo margar keimlíkar tölvuverslanir á klakann og þeir ætla reyna skera sig úr eins og tölvutek gerir vissulega mjög vel.

Þegar Jón Jónsson ákveður að kaupa sér tölvu er hann ekki að fara muna nafn eins og Tölvuvirkni sem hefur í raun ekkert annað vörumerki en lógó sem er mjög hlutlaust og auðvelt að gleyma.

Margar þessara búða hjá okkur hafa léleg nöfn sem eru keimlík og auðvelt að rugla saman og ekkert sem greinir þær í sundur fyrir hefðbundinn neytanda.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 21:20
af snakkop
þér eru með zotec skjákort í bæklininum eru þér ekki bara breyta

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 21:21
af nidur
Af hverju heitir ekkert af þessu Tölvuverslunin?

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 21:35
af worghal
snaeji skrifaði:Eru ekki bara komnar svo margar keimlíkar tölvuverslanir á klakann og þeir ætla reyna skera sig úr eins og tölvutek gerir vissulega mjög vel.

Þegar Jón Jónsson ákveður að kaupa sér tölvu er hann ekki að fara muna nafn eins og Tölvuvirkni sem hefur í raun ekkert annað vörumerki en lógó sem er mjög hlutlaust og auðvelt að gleyma.

Margar þessara búða hjá okkur hafa léleg nöfn sem eru keimlík og auðvelt að rugla saman og ekkert sem greinir þær í sundur fyrir hefðbundinn neytanda.

Þetta er tölvutek...

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 21:46
af AntiTrust
Það eru blikk-kallar í textanum þeirra - Nóg til að halda mér frá. #snob

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 22:03
af snaeji
worghal skrifaði:
snaeji skrifaði:Eru ekki bara komnar svo margar keimlíkar tölvuverslanir á klakann og þeir ætla reyna skera sig úr eins og tölvutek gerir vissulega mjög vel.

Þegar Jón Jónsson ákveður að kaupa sér tölvu er hann ekki að fara muna nafn eins og Tölvuvirkni sem hefur í raun ekkert annað vörumerki en lógó sem er mjög hlutlaust og auðvelt að gleyma.

Margar þessara búða hjá okkur hafa léleg nöfn sem eru keimlík og auðvelt að rugla saman og ekkert sem greinir þær í sundur fyrir hefðbundinn neytanda.

Þetta er tölvutek...


Algjörlega það sem ég er að segja. Þeir virðast vera með vörumerki þarna sem virkar og eru einungis að færa tölvuvirkni undir það módel.

Ég held að standard go-to verslanirnar hjá almenning séu Tölvulistinn og Tölvutek. Gæti reynst þeim vel að færa "Tölvuvirkni" í þann hóp og fá þannig vonandi stærri bita af kökunni.

edit: Elko auðvitað mjög stórir á þessum markað líka en ekki beint góður samanburður.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 23:26
af rapport
YES!!!!

Loksins tölvuverlsun sem er ekki föst í blár, rauður, svartur og hvítur hugsun...

Ohhhh... sem gamall 10-11 starfsmaður þá kitlar grænt mig enþá.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Þri 08. Mar 2016 23:56
af Klaufi
AntiTrust skrifaði:Það eru blikk-kallar í textanum þeirra - Nóg til að halda mér frá. #snob


x2

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 13:42
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Þá hefur Tölvuvirkni kvatt okkur og Ódýrið segir hæ.
Ekki á hverjum degi sem eitthvað nýtt gerist í tölvubransanum á klakanum.


Nýtt? Breyting á nafni og þemalitum sem sagt? :wtf

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 13:49
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þá hefur Tölvuvirkni kvatt okkur og Ódýrið segir hæ.
Ekki á hverjum degi sem eitthvað nýtt gerist í tölvubransanum á klakanum.


Nýtt? Breyting á nafni og þemalitum sem sagt? :wtf


Jebb, það gerist ekki á hverjum degi. =;

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 14:15
af fannar82
Græni liturinn er samt of ljós fyrir minn smekk, vafraði um síðuna í sirka 2 mín þá var mér orðið íllt í augunum.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 14:46
af sillbilly
Nafnið er nóg til að halda mér frá.... Og þetta lukkudýr.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 16:17
af ArnarF
Fyrir mitt leyti þá heillaði Tölvuvirkni mig aldrei en gef þeim þó prik fyrir það að hafa sömu kennitölu síðan 2002.

Hver ætli samt ástæðan hafi verið fyrir þessari breytingu ?

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 17:58
af braudrist
www.odyrid.is skrifaði:Glæsileg vefverslun er opin allan sólarhringinn;)


Vá! Þvílík bylting maður, loksins getur maður verslað á netinu á hvaða tíma sólahringsins.

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Mið 09. Mar 2016 21:50
af Nolon
Er þetta ekki Cóðinn og innihaldið frá Tölvutek.
Alla vega sami strucktur, sömu vörur og sama verð..

Quota hér BÓ " nýr jakki, Sama röddin"

https://www.tolvutek.is/vara/acer-chrom ... tolva-hvit
http://www.odyrid.is/vara/acer-chromebo ... tolva-hvit

Re: Ódýrið ný tölvuverslun

Sent: Fim 10. Mar 2016 00:24
af chaplin
Skoðaði þetta aðeins aftur.

* Ég er einfaldlega ekki að fýla nafnið.
* Það eru 22 liðir af vörum (þám. "húsgögn", "fatnaður", ofl.) og rúmlega 120(!) sub-liðir.
* Ljósgrænt letur með hvítan bakgrunn,
* Broskallar í texta.
* Vinsæl leitarorð: "USB Glingur".. eh, ég veit að þetta er sama útlit og Tölvutek er með, en er sami gagnagrunnur því það eru nákvæmlega sömu vinsælu leitarorðin.

/rant