[Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Skjámynd

Höfundur
jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

[Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf jericho » Mið 27. Jan 2016 21:16

Kvöldið.

Afsakið ef þessi hugmynd hefur áður litið dagsins ljós, en ég gat a.m.k. ekki fundið hana eftir stutta leit.

Spurningin mín er eftirfarandi:
Er hægt að stilla spjallborðið sitt þannig að maður getur falið þræði/komment frá ákveðnum notendum? Ef ekki, gætum við vinsamlegast reynt að finna út úr því?

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf GuðjónR » Mið 27. Jan 2016 22:49

Þú segir nokkuð.

Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 56
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Gunnar » Fim 28. Jan 2016 00:17

ja allveg endilega koma með það!!! eins go það er hægt að blocka notendur en maður sér enþá þræðina sem þeir gera...

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6300
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf worghal » Fim 28. Jan 2016 00:24

var ekki búið að ræða þetta og að niðurstaðan var svo að þetta bíður upp á einelti eða eitthvað slíkt og var því ákveðið að þetta yrði ekki gert?

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf snaeji » Fim 28. Jan 2016 00:32

Að fela svör frá notendum er hálfgert einelti. Auk þess nenni ég ekki að lesa sama commentið kannski þrisvar af því einhverjum þremur óvinum sem sjá ekki hvor aðra langaði að koma sama punktinum á framfæri.

Annars held ég að valmöguleikinn að stilla sjálfur hvaða spjallborð birtast í virkar umræður væri algjör snilld!

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Klemmi » Fim 28. Jan 2016 09:25

snaeji skrifaði:Að fela svör frá notendum er hálfgert einelti.

Ekki sammála þessu.

Ef ég væri í skólanum, og það væri alltaf sami náunginn að nöldra miðsvæðis, tala nú ekki um ef hann er að úthúða aðra, og ég ákveð að ég nenni ekki að hlusta á hann lengur og geri ráðstafanir þannig að ég þurfi þess ekki, án þess að það hafi nokkur áhrif á hann, er ég þá að leggja hann í einelti?

Annars er ég kominn á þá skoðun að það megi alveg fara að takmarka eitthvað aðgang hakkarin að þessu spjallborði, þar sem hann er einfaldlega kominn út í hatursáróður.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Daz » Fim 28. Jan 2016 09:54

Setja notandann á óvinalistann sinn, þá sjást ekki svörin frá þeim notanda. Það felur því miður ekki þræðina sem eru stofnaðir í heild sinni, en virkar fínt til að minna mann á að vera ekkert að skoða pósta frá þeim aðila.

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf hagur » Fim 28. Jan 2016 10:03

Henti í eitt Chrome Extension sem felur alla þræði sem hakkarin stofnar.

  • Sækið meðfylgjandi .zip fæl og extractið á góðan stað.
  • Farið í Extensions í Chrome, hakið við developer mode
  • Smellið á install unpacked extension
  • Browsið á folderinn sem þið unzippuðuð þessu í og ýtið á install
  • Njótið vaktarinnar án hakkarin
Viðhengi
HideHakkarin.zip
(37.92 KiB) Skoðað 75 sinnum

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Klemmi » Fim 28. Jan 2016 10:46

hagur skrifaði:Henti í eitt Chrome Extension sem felur alla þræði sem hakkarin stofnar.

  • Sækið meðfylgjandi .zip fæl og extractið á góðan stað.
  • Farið í Extensions í Chrome, hakið við developer mode
  • Smellið á install unpacked extension
  • Browsið á folderinn sem þið unzippuðuð þessu í og ýtið á install
  • Njótið vaktarinnar án hakkarin

Virkar flott! Takk takk :D

Tók eftir að það vantaði .row í zebra fixxinu: $(this).find('li').each(function(i) {
=> $(this).find('li.row').each(function(i) {

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf hagur » Fim 28. Jan 2016 10:56

Já ok, var hún að fikta í of mörgu þá? Ég henti þessu saman í miklu flýti. Ég uppfæri .zip fælinn á eftir ef ég man :-)

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1363
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Tengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf nidur » Fim 28. Jan 2016 11:05

Væri ekki frekar hægt að haka í eitthvað sem lokar á alla þræði sem eru gerðir undir "allt annað" eða "koníakstofuna"

Kannski vilja sumir bara sjá eitthvað tæknitengt hérna. sleppa úr umræðum samfélagsins, safe haven... :)

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1450
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Lexxinn » Fim 28. Jan 2016 13:42

Langar að koma með svipaða hugmynd;

En að það sé hægt að fela x þráð frá virkum umræðum. Það kemur t.d. reglulega upp auglýsing um sömu íhlutina með reglulegu millibili sem henta mér engan vegin. Hinsvegar væri guðsgjöf að geta falið x þræði frá virkum umræðum en ég mundi samt geta séð þá í sínum flokkum ef ég mundi opna tiltekinn flokk. Væri í raun bara til að virkar umræður séu meira personalized :)

Skjámynd

Höfundur
jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf jericho » Fim 28. Jan 2016 18:47

Takk fyrir hámarks-svör og lágmarks-skítkast. Sérstakar þakkir á notandann 'hagur' fyrir extensionið!

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 572
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 74
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Hannesinn » Fös 29. Jan 2016 14:03

Fyrstaheimsvandamál? Ef þið hafið ekki áhuga á lesa þræðina frá hakkarin, þá einfaldlega lesið þið ekki þræði eftir hakkarin. Og þetta er alveg óháð því hvort að maður ætti yfir höfuð að láta einhvern vitleysing á spjallborði úti í bæ hafa áhrif á mann.

Persónulega finnst mér nefnilega að það sé betra að svara vondum skoðunum (með rökstuðningi) heldur en að blokka þær. Svo ef það gengur ekki, þá getur maður hunsað viðkomandi.

Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Klemmi » Fös 29. Jan 2016 14:52

Hannesinn skrifaði:Fyrstaheimsvandamál? Ef þið hafið ekki áhuga á lesa þræðina frá hakkarin, þá einfaldlega lesið þið ekki þræði eftir hakkarin. Og þetta er alveg óháð því hvort að maður ætti yfir höfuð að láta einhvern vitleysing á spjallborði úti í bæ hafa áhrif á mann.

Persónulega finnst mér nefnilega að það sé betra að svara vondum skoðunum (með rökstuðningi) heldur en að blokka þær. Svo ef það gengur ekki, þá getur maður hunsað viðkomandi.

Ég tel hatursáróður ekki vera fyrstaheimsvandamál og tel að vondar skoðanir sé ekki nægilega stórt til orða tekið. Skaðlegar skoðanir er nær lagi.

Á spjallsvæði í einkaeigu þá tel ég að það megi alveg takmarka svona vitleysinga og henda þeim út.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf GuðjónR » Fös 29. Jan 2016 15:33

Sniðugast væri ef það væri hægt að haka við þræði sem maður hefur ekki áhuga á að fylgjast með og þá hyrfu þeir úr virkum umræðum.
Varðandi "hakkarin" þá er það vandamál leyst, hann kemur ekki til með að bögga ykkur aftur.

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Tbot » Fös 29. Jan 2016 15:51

Klemmi skrifaði:
Hannesinn skrifaði:Fyrstaheimsvandamál? Ef þið hafið ekki áhuga á lesa þræðina frá hakkarin, þá einfaldlega lesið þið ekki þræði eftir hakkarin. Og þetta er alveg óháð því hvort að maður ætti yfir höfuð að láta einhvern vitleysing á spjallborði úti í bæ hafa áhrif á mann.

Persónulega finnst mér nefnilega að það sé betra að svara vondum skoðunum (með rökstuðningi) heldur en að blokka þær. Svo ef það gengur ekki, þá getur maður hunsað viðkomandi.

Ég tel hatursáróður ekki vera fyrstaheimsvandamál og tel að vondar skoðanir sé ekki nægilega stórt til orða tekið. Skaðlegar skoðanir er nær lagi.

Á spjallsvæði í einkaeigu þá tel ég að það megi alveg takmarka svona vitleysinga og henda þeim út.

Hvað er hatursáróður?

Hann er á móti múslimum og það er hans réttur alveg eins og það er þinn réttur að vera með múslimum.

Svona til að benda þér á nokkra einfalda hluti þá er þjóðum ansi tamt að stimpla aðrar þjóðir/þjóðflokka eftir hegðum hluta hóps.
Síðan er í sumum trúarbröðgum sagt að þeir sem trúa ekki á þau, skal fyrst vera snúið til réttrar trúar, ef það gengur ekki séu þeir réttdræpir, og það sem er raunveruleiki þá lifa tugir miljóna eftir því.

Ýmis lönd í Evrópu hafa verið hersetin í gegnum aldirnar, mis lengi þó, af mismunandi löndum og trúarhópum þannig að það er inngreipt í þjóðarsál þeirra hatur á fyrrum hersetuliði.

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf kizi86 » Fös 29. Jan 2016 16:43

Tbot skrifaði:

svo þú ert alveg að gúddera það að hitler hafi verið á móti gyðingum? eitt leiðir af öðru, ef svona hugsanagangur fær að viðgangast þá fara hlutirnir fljótt til helvítis... remember nazism breeds hitlers! enginn að segja að hann meigi ekki hafa sínar skoðanir (hversu slæmar eða hættulegar þær eru) en það þýðir samt ekki að hann megi koma þeim á framfæri hvar sem er! opinions are like penises, you may have one, but you don't have the permission to shove it down my throat...

ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Tbot » Fös 29. Jan 2016 18:58

kizi86 skrifaði:
Tbot skrifaði:
Klemmi skrifaði:
Hannesinn skrifaði:Fyrstaheimsvandamál? Ef þið hafið ekki áhuga á lesa þræðina frá hakkarin, þá einfaldlega lesið þið ekki þræði eftir hakkarin. Og þetta er alveg óháð því hvort að maður ætti yfir höfuð að láta einhvern vitleysing á spjallborði úti í bæ hafa áhrif á mann.

Persónulega finnst mér nefnilega að það sé betra að svara vondum skoðunum (með rökstuðningi) heldur en að blokka þær. Svo ef það gengur ekki, þá getur maður hunsað viðkomandi.

Ég tel hatursáróður ekki vera fyrstaheimsvandamál og tel að vondar skoðanir sé ekki nægilega stórt til orða tekið. Skaðlegar skoðanir er nær lagi.

Á spjallsvæði í einkaeigu þá tel ég að það megi alveg takmarka svona vitleysinga og henda þeim út.

Hvað er hatursáróður?

Hann er á móti múslimum og það er hans réttur alveg eins og það er þinn réttur að vera með múslimum.

Svona til að benda þér á nokkra einfalda hluti þá er þjóðum ansi tamt að stimpla aðrar þjóðir/þjóðflokka eftir hegðum hluta hóps.
Síðan er í sumum trúarbröðgum sagt að þeir sem trúa ekki á þau, skal fyrst vera snúið til réttrar trúar, ef það gengur ekki séu þeir réttdræpir, og það sem er raunveruleiki þá lifa tugir miljóna eftir því.

Ýmis lönd í Evrópu hafa verið hersetin í gegnum aldirnar, mis lengi þó, af mismunandi löndum og trúarhópum þannig að það er inngreipt í þjóðarsál þeirra hatur á fyrrum hersetuliði.

svo þú ert alveg að gúddera það að hitler hafi verið á móti gyðingum? eitt leiðir af öðru, ef svona hugsanagangur fær að viðgangast þá fara hlutirnir fljótt til helvítis... remember nazism breeds hitlers! enginn að segja að hann meigi ekki hafa sínar skoðanir (hversu slæmar eða hættulegar þær eru) en það þýðir samt ekki að hann megi koma þeim á framfæri hvar sem er! opinions are like penises, you may have one, but you don't have the permission to shove it down my throat...

Ég tala hvergi um Hitler(heldur ert þú að gera mér skoðanir), heldur hvernig sagan hefur mótað viðhorf í ýmsum löndum og þjóðarbrot.
en svona þér til upplýsingar þá er talað um að það hafi dáið 11 milljónir í útrýmingarbúðum, af þeim eru 6 milljónir gyðingar, 3 milljónir Pólverjar, síðan voru samkynhneigðir og fatlaðir drepnir líka, ásamt fleiri hópum

En segðu mér, eru Ísraelsmenn að gera nokkuð betri hluti við Palestínumenn.

Hvers vegna Hitler komst til valda verður að skoða aðstæður sem voru á þessum tíma, en ekki setja sig á "móralskan háhest".
Því þegar fólk sveltur heilu hungri, þá er hægt að selja því næstum hvað sem er.

En það eru mörg óhæfuverk sem hafa verið framin:
Hreinsanir Stalín - milljónir upp í tugi miljóna drepnir
Maó - tugir miljóna
Rauðu knerarnir - milljónir
Innrás Japana í Kína
Eldsprengjuárás Bandamanna á Dresden í lok seinni heimstyrjaldar - hundruð þúsunda flóttamanna drepnir
Stríðið í fyrrum Júgoslavíu (stríð milli þjóðarbrota og trúar)

Ef þú vilt kynna þér aðeins söguna þá er það t.d. innrás mára(múslimar) inn í Spán

Þess vegna er ég á móti þöggun og ritskoðun því annars er reynt að umskrifa söguna og enginn lærir neitt.

Þó að sum ummæli geta stuðað suma gætu aðrir verið því sammála.

En að endingu er það Guðjón sem ræður því það er hann sem er eigandi þessa spallborðs. (kostnaður vegna dómsmáls og fl.)

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7065
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf rapport » Fös 29. Jan 2016 19:33

Að hundsa einhvern á internetinu er ekki ritskoðun eða þöggun.

Viðkomandi á rétt á að tjá sig en í því er ekki innifalið að aðrir séu neyddir til að hlusta.

Þeir sem vilja hafa rétt á að loka eyrunum eða augunum fyrir hverju sem er, hvenær sem er og hvernig sem er.

Hvernig væri annars hægt að leyfa Ad Block í USA þar sem litið er á fyrirtæki sem einstaklinga á margan hátt.

Holy shit hvað maður mundi tapa miklum réttindum ef maður væri neyddur til að hlusta á alla sem vildu tjá sig.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf jonsig » Fös 29. Jan 2016 19:39

Af hverju voruð þið að banna hakkaran ? Já ég hló þegar ég las þetta með hakkarin block addið , en það flokkast sem einelti .
Vissulega er gæjinn ekki endilega sá skarpasti í skúffunni , og ekkert endilega alltaf edrú hérna á síðunni en hann bætti við lit við regnbogan , fjölbreytni fólksins sem myndar þennan myndarlega hóp vaktara.

Ég efast um að þessi "haturs" áróður hans hafi orðið til þess að einhver hafi séð og skilið hans sjónarhorn ,þvert á móti vakið athygli á hvað er mikið af svona öðruvísi þenkjandi fólki . Ég vill frekar að hann pústi hérna og fái negative feedback hérna frekar en að svona gæji birtist í kringlunni með haglabyssu útaf hann er orðinn brjálaður á að vera ignoraður .

Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Tbot » Fös 29. Jan 2016 19:40

Á sama hátt er það réttindi að fela þræði eða svör annarra en þá er rétt að muna að aðrir geta gert það sama við þig.

Ég mun ekki gera það því mér finnst það mikilvægt að geta lesið komment annarra þó þau séu þvert á mínar skoðanir, vegna þess ef að góður rökstuðningur fylgir veldur það því að ég skoða málin frá þeirri hlið líka.

Skjámynd

Steini B
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 368
Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
Reputation: 12
Staðsetning: í bjórbaði
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf Steini B » Fös 29. Jan 2016 19:56

jonsig skrifaði:Af hverju voruð þið að banna hakkaran ? Já ég hló þegar ég las þetta með hakkarin block addið , en það flokkast sem einelti .
Vissulega er gæjinn ekki endilega sá skarpasti í skúffunni , og ekkert endilega alltaf edrú hérna á síðunni en hann bætti við lit við regnbogan , fjölbreytni fólksins sem myndar þennan myndarlega hóp vaktara.

Ég efast um að þessi "haturs" áróður hans hafi orðið til þess að einhver hafi séð og skilið hans sjónarhorn ,þvert á móti vakið athygli á hvað er mikið af svona öðruvísi þenkjandi fólki . Ég vill frekar að hann pústi hérna og fái negative feedback hérna frekar en að svona gæji birtist í kringlunni með haglabyssu útaf hann er orðinn brjálaður á að vera ignoraður .

Held að hakkarin hafi beinlínis beðið Guðjón um að láta banna sig... :lol:

GuðjónR skrifaði:Ég hef zero tolerance fyriir fólki sem sendir mér einkaskilaboð og segir mér að fara til helvítis.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7065
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf rapport » Fös 29. Jan 2016 20:06

Tbot skrifaði:Á sama hátt er það réttindi að fela þræði eða svör annarra en þá er rétt að muna að aðrir geta gert það sama við þig.

Ég mun ekki gera það því mér finnst það mikilvægt að geta lesið komment annarra þó þau séu þvert á mínar skoðanir, vegna þess ef að góður rökstuðningur fylgir veldur það því að ég skoða málin frá þeirri hlið líka.

Nkl. ég nálgast þetta með sama hætti, mundi ekki nota þetta app sjálfur nema í "neyð".

Og að ignora einhvern á internetinu eða blokka einhvern á facebook er ekki einelti.

Það getur verið einelti ef eitthvað annað í lífinu kallar á að fólk þurfi að hafa samskipti, vinna, skóli, fjölskylda, félagstarf eða eitthvað álíka.

En ef ein ókunnug manneskja blokkar aðra eða einhver er að slíta vinskap eða ef einhver hefur málefnalega ástæðu til að blokka...

Þá er það bara sjálfsagðasta mál...

capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: [Hugmynd] Fela þræði/svör frá ákveðnum notendum

Pósturaf capteinninn » Fös 29. Jan 2016 20:15

rapport skrifaði:Að hundsa einhvern á internetinu er ekki ritskoðun eða þöggun.

Viðkomandi á rétt á að tjá sig en í því er ekki innifalið að aðrir séu neyddir til að hlusta.

Þeir sem vilja hafa rétt á að loka eyrunum eða augunum fyrir hverju sem er, hvenær sem er og hvernig sem er.

Hvernig væri annars hægt að leyfa Ad Block í USA þar sem litið er á fyrirtæki sem einstaklinga á margan hátt.

Holy shit hvað maður mundi tapa miklum réttindum ef maður væri neyddur til að hlusta á alla sem vildu tjá sig.

Akkúrat þessvegna held ég að sniðugast sé að nota eitthvað eins og extensionið eða ef það væri built in að blockera þræði eða usera.

Ég veit ekki hvort ég myndi vilja nota það persónulega en mér finnst það eina vitið að gefa notendum sjálfum færi á að stilla spjallborðið eins og þeir vilja (eins og t.d. að blockera usera) frekar en að því sé stýrt af stjórnendum spjallborðsins jafnvel þótt þeir séu alveg í 100% rétti að gera það sem þeir vilja við spjallborðið.