Síða 1 af 2
Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 17:35
af GuðjónR
Jæja þá geta nördarnir mínir glaðst!
Geforce GTX Titan X 12GB er komið á
Vef Tölvulistans og að sjálfsögðu á
Vaktina.Verðmiðinn er c.a. 1.5 handleggur en það þarf ekkert að koma á óvart að svona skrímsli kosti sitt.
flottur á ekki að skella sér á eitt? ... eða tvö?

Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 17:37
af Tiger
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 17:59
af zedro
Á þetta ekki að vera 1000$ kort? ~140.000kr * 1,255 = 175.700kr (999$ á heimasíðu framleiðanda).
Þykir mér þeir smyrja helvíti hátt ofan á, litlar 75.000kr!
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 18:00
af flottur
GuðjónR skrifaði:Jæja þá geta nördarnir mínir glaðst!
Geforce GTX Titan X 12GB er komið á
Vef Tölvulistans og að sjálfsögðu á
Vaktina.Verðmiðinn er c.a. 1.5 handleggur en það þarf ekkert að koma á óvart að svona skrímsli kosti sitt.
flottur á ekki að skella sér á eitt? ... eða tvö?

hehehehehe
er med þetta i huga :
http://www.overclockers.co.uk/showproduct.php?prodid=GX-050-IN&groupid=701&catid=1914&subcat=1576er ad fara til london i april.......mig langar svo til ad panta eitt stykki.

en þad er sama sagan ef madur pantar 2 tha thydir ekkert ad vera med 1500w aflgjafa tha færi madur i 2000w
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 18:40
af chaplin
zedro skrifaði:Á þetta ekki að vera 1000$ kort? ~140.000kr * 1,255 = 175.700kr (999$ á heimasíðu framleiðanda).
Þykir mér þeir smyrja helvíti hátt ofan á, litlar 75.000kr!
Þetta er hugsanlega bara núna fyrstu vikurnar á meðan þeir kaupa frá dýrari birgja. Svipað og þegar iPhone 6 (og fyrri kynslóðir) komu til landsins, síminn var uppseldur hjá öllum birgjum en Nova ofl fóru krókaleiðir til að útvega símanum fyrir þá sem ekki gátu beðið, aftur á móti þá voru þeir birgjar dýrari.
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 19:39
af jojoharalds
hm.......2 stk af þessu og Vatnsblokki í borðið hjá mér

Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 19:42
af Sucre
ehh Hámarksupplausn: 2560x1600 vitlaust hjá tl eða skita aldarinnar ?
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 19:53
af nidur
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 20:08
af Tiger
Allir örugglega búnir að versla sér meira vinnsluminni

- Screen Shot 2015-03-19 at 20.06.08.png (197.7 KiB) Skoðað 4348 sinnum
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Skemmtileg innsláttarvilla hjá Nvidia BTW (2GB lágmark, 4GB recommended)
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 20:15
af appel
Krappídí krapp

þarna fer sumarfríið manns... nei djók... en ef VR verður ofursvalt ... ímyndið ykkur tvö svona í SLI.
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 20:19
af darkppl
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 20:25
af HalistaX
Eru komin einhver Benchmarks fyrir þetta kort?
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fim 19. Mar 2015 21:33
af akarnid
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 01:29
af DaRKSTaR
miðað við að dollarinn er í frjálsu falli.. 160 þús kall kortið með sendingu.. þá vantar að reikna vsk á þetta svona ca 210 þús kall kortið.
er að spá afhverju í helvítinu er dollarinn að hrapa svona.. farið að borga sig að versla allt í evrum þessa dagana
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 11:28
af Halli25
DaRKSTaR skrifaði:miðað við að dollarinn er í frjálsu falli.. 160 þús kall kortið með sendingu.. þá vantar að reikna vsk á þetta svona ca 210 þús kall kortið.
er að spá afhverju í helvítinu er dollarinn að hrapa svona.. farið að borga sig að versla allt í evrum þessa dagana
það er Evran sem er að hrapa og þá hækkar dollan á okkur þar sem við eru tengd við evruna með krónuna okkar
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 12:00
af Tw1z
Maður er bara í góðum málum ef maður fær sér eitt svona
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 13:02
af Emarki
Hvernig færðu það út að íslenska krónan sé tengd evrunni ?
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 13:27
af sverrirgu
Emarki skrifaði:Hvernig færðu það út að íslenska krónan sé tengd evrunni ?
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... methaedum/Bandaríkjadalur kostar nú 140 íslenskar krónur og hefur gengi hans ekki verið hærra frá lok árs 2008 þegar hann rauk upp eftir fjármálahrunið og náði hæðum í 143 krónum. Hækkunin kemur til vegna stöðu dollarans gagnvart evrunni sem hefur stórbatnað á liðnum mánuðum þar sem hagtölur frá Bandaríkjunum hafa farið fram úr væntingum en hagvísar helstu Evrópulanda valdið vonbrigðum.
Breytingin hefur áhrif á Íslandi þar sem Seðlabanki Íslands hefur haldið gengi krónunnar stöðugu gagnvart evrunni og breytingar á stöðu hennar gagnvart öðrum myntum hafa því bein áhrif á íslensku krónuna.
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 16:42
af Tiger
Alveg rólegir á OFF TOPIC hérna....
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 17:22
af jonsig
Hvað er málið með allt þetta vinnsluminni ? Hef hingað til ekki séð neina ástæðu til að hafa meira en 4-8Gb ram.
Hlutirnir væru mun meira spennandi ef það væri eitthvað að gerast á þessum hálf-dauða örgjörfamarkaði , maður man góðu dagana þegar tölvan manns var orðin old news eftir 3 mánuði .
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 18:28
af aether
Skil ekki alveg af hverju skjákort er með svona lágmarks RAM requirements en svona magn af ram er mjög þægilegt..
Mig er farið að langa í meira ram....
http://i.imgur.com/0zvCyaI.png 24 GB ekki nóg...
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 21:04
af flottur
Er með frekar heimskulega spurningu : Þarf maður að borga vat/skatt af vöruni þegar ða maður myndi panta svona kort frá uk eða borgar maður bara skatt af henni hérna heima?
Er nefninlega að pæla í svona korti og við checkout kemur : £778.93 will be taken from your card when your place your order er verðið fyrir skatt þarna úti.
edit : ætli maður myndi ekki enda á að taka 2 svona kort svo að hinu kortinu leiðist ekki.
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 21:07
af Hrotti
flottur skrifaði:Er með frekar heimskulega spurningu : Þarf maður að borga vat/skatt af vöruni þegar ða maður myndi panta svona kort frá uk eða borgar maður bara skatt af henni hérna heima?
Er nefninlega að pæla í svona korti og við checkout kemur : £778.93 will be taken from your card when your place your order er verðið fyrir skatt þarna úti.
þú borgar bara hérna heima.
Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 21:08
af flottur
Hrotti skrifaði:flottur skrifaði:Er með frekar heimskulega spurningu : Þarf maður að borga vat/skatt af vöruni þegar ða maður myndi panta svona kort frá uk eða borgar maður bara skatt af henni hérna heima?
Er nefninlega að pæla í svona korti og við checkout kemur : £778.93 will be taken from your card when your place your order er verðið fyrir skatt þarna úti.
þú borgar bara hérna heima.
ok takk fyrir þetta

Re: Geforce GTX Titan X 12GB komið !!!
Sent: Fös 20. Mar 2015 21:21
af gRIMwORLD
http://www.kitguru.net/components/graphic-cards/anton-shilov/nvidia-geforce-titan-x-to-be-significantly-overpriced-in-europe/ekki bara dýrt á Íslandi, bara dýrara en ALLS STAÐAR annarsstaðar, sérstaklega ef birgjarnir hér heima eru að kaupa þetta frá EU, sem þarf svo að kaupa þetta með $ frá framleiðanda.