GudjonR, er þetta ekki eitthvað sem þú villt svara fyrir?
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 17:36
af HalistaX
Það er bannað að eiga fleiri en einn aðgang á síðuna. Hann hefur greininlega séð það á IP addressuni.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 18:13
af fedora1
Ekki að ég hafi lesið þennan þráð eða viti neitt um málið.. en það er hæpið að banna notanda bara af því að annar notandi hafi komið frá sömu iptölu. Það stendur ekkert að allir í sömu fjölskyldu þurfi að nota sama account. Ég hefði haldið að það þurfi eitthvað meira en sömu dhcp iptölu...
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 18:16
af AntiTrust
Oftast fer það nú bara ekki á milli mála þegar sami notandinn er mættur aftur á nýju nicki, eins orðalag felur sig ekki.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 18:21
af Tiger
Who cares?
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:32
af Oak
Á þessum link er talað um að verðlöggur séu bannaðar en ég get ekki séð það útúr reglunum. Sumir geta verið helvíti grófir í orðalaginu sínu, en það er algjörlega nauðsynlegt að fá að tjá sig um verðlag hjá sumum.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:43
af GuðjónR
redditriceland skrifaði:Var einhver buinn að sja þessa umræðu a reddit?
GudjonR, er þetta ekki eitthvað sem þú villt svara fyrir?
Gúrú, hvað er þetta fimmti aðgangurinn sem þú stofnar síðan þú fékkst viku bann fyrir ítrekuð reglubrot? Bannið fer nú í mánuð og ef þú hættir ekki þá færðu varanlegt bann.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:47
af hagur
Verð nú bara að segja að vaktin án "Gúrú" er betri staður. Oft mjög hrokafullur og leiðinlegur í tilsvörum. Virkar á mig sem hundleiðinlegur gaur. Sorry, Gúrú - mín skoðun.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:48
af Danni V8
Hvert er upprunalega notendanafnið og er sá notandi bannaður líka?
Það er useless að koma með flammeringar í garð einhverns annars þegar maður felur sig bakvið nafnleysi sjálfur.
það var fullt af fólki sem setti útá þessa reglubreytingu en ekkert af því var bannað, heldur sá Guðjón að sér og dróg breytinguna til baka, hvers vegna gerðirðu ráð fyrir að þínu commenti yrði eitthvað frekar eytt en öllum hinum?
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:49
af GuðjónR
hagur skrifaði:Verð nú bara að segja að vaktin án "Gúrú" er betri staður. Oft mjög hrokafullur og leiðinlegur í tilsvörum. Virkar á mig sem hundleiðinlegur gaur. Sorry, Gúrú - mín skoðun.
Ég held að ansi margir séu sammála þér þarna.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:56
af Gislinn
Oak skrifaði:Á þessum link er talað um að verðlöggur séu bannaðar en ég get ekki séð það útúr reglunum. Sumir geta verið helvíti grófir í orðalaginu sínu, en það er algjörlega nauðsynlegt að fá að tjá sig um verðlag hjá sumum.
hagur skrifaði:Verð nú bara að segja að vaktin án "Gúrú" er betri staður. Oft mjög hrokafullur og leiðinlegur í tilsvörum. Virkar á mig sem hundleiðinlegur gaur. Sorry, Gúrú - mín skoðun.
Ég held að ansi margir séu sammála þér þarna.
GuðjónR og hagur, þið megið mín vegna hafa skoðun á Gúrú en ég plís ekki fara í eitthvað svona bull. Eins og ég var oft ósammála Gúrú þá gat ég alveg séð að hann var oft með málefnaleg rök og góð innlegg í umræður.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 19:57
af arnigrim
Hvernig er það ,, afhverju eru ekki bara 10 manns útvaldir sem hafa mikið vit af vörum og verðlagi látnir einir um að skipta sér að verðlaginu , allir sáttir . Það þarf ekki eða það þurfa ekki allir að vera að skipta sér að því . þessir sem myndu fá það starf semverð löggur verða auðkenndir með einhverskonar löggu logó . Þetta virkar í rauninni bara þannig að sá sem á þennan vef ræður þessa menn í nokkurskonar vinnu . Og ég treysti alveg því að það séu ráðnir í þetta menn sem kunna til verka . allt að sjálfsögðu i sjálfboðaliðastarfi . Afhverju má ekki bara leysa þetta þannig , svona einskonar admin verðlöggur sem sinna þessum parti . En hey þetta er bara hugmynd .
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:00
af HalistaX
Gislinn skrifaði:GuðjónR og hagur, þið megið mín vegna hafa skoðun á Gúrú en ég plís ekki fara í eitthvað svona bull. Eins og ég var oft ósammála Gúrú þá gat ég alveg séð að hann var oft með málefnaleg rök og góð innlegg í umræður.
Jájá, stundum kemur hann með góða punkta, rök og allt það góða en það er bara í fimm mínútur í senn, svo verður hann að Internet Trölli með leiðindi og skít.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:03
af GuðjónR
Vitur maður hafði þetta um Gúrú, MatroX og verðlöggutakta þeirra að segja:
Vitur maður skrifaði:En ef maður hugsar út í þetta, hvað fær menn til að kommenta á verðlagningu annarra? Það eru aðallega tveir sem hafa verið að stunda grimma verðlöggæslu, og báðir virðast gera það til að upphefja sjálfa sig. Eitt af því sem hefur stuðað mig persónulega hjá Gúrú alla tíð, er hvernig hann notar kaldhæðni til að upphefja sjálfan sig og lítillækka aðra, þeas. alltaf þegar hann þarf að rökstyðja eitthvað þá gerir hann það á þann háttinn að einhver þarf að líða fyrir það persónulega. Það sama má segja um verðlöggæslu hans, ég velti fyrir mér hvort hann sé að gera það í eigin þágu eða í þágu fjöldans.
Eins og Oscar Wilde á að hafa sagt: „Sarcasm is the lowest form of wit, but the highest form of intelligence.“. M.ö.o., Gúrú er augljóslega mjög klár strákur, en það vantar í hann allt vit - sbr. þetta með að gæta ekki að tilfinningum annarra þegar hann byrjar með drullumallið.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:08
af Gislinn
GuðjónR skrifaði:Vitur maður hafði þetta um Gúrú, MatroX og verðlöggutakta þeirra að segja:
Vitur maður skrifaði:En ef maður hugsar út í þetta, hvað fær menn til að kommenta á verðlagningu annarra? Það eru aðallega tveir sem hafa verið að stunda grimma verðlöggæslu, og báðir virðast gera það til að upphefja sjálfa sig. Eitt af því sem hefur stuðað mig persónulega hjá Gúrú alla tíð, er hvernig hann notar kaldhæðni til að upphefja sjálfan sig og lítillækka aðra, þeas. alltaf þegar hann þarf að rökstyðja eitthvað þá gerir hann það á þann háttinn að einhver þarf að líða fyrir það persónulega. Það sama má segja um verðlöggæslu hans, ég velti fyrir mér hvort hann sé að gera það í eigin þágu eða í þágu fjöldans.
Eins og Oscar Wilde á að hafa sagt: „Sarcasm is the lowest form of wit, but the highest form of intelligence.“. M.ö.o., Gúrú er augljóslega mjög klár strákur, en það vantar í hann allt vit - sbr. þetta með að gæta ekki að tilfinningum annarra þegar hann byrjar með drullumallið.
Réttlætir það að það sé talað illa um hann hér (þegar hann getur ekki svarað fyrir það btw) vegna þess að hann gerir það við aðra?
Ég veit í raun ekki afhverju ég er að verja hann en mér finnst bara lélegt að tala illa um hann hér þótt hann hafi tæklað málin algerlega vitlaust að mínu mati í umræðunni sem leiddi að banninu hans og/eða fyrr. Ég held að það væri best að tala sem minnst ef maður hefur ekkert fallegt eða málefnalegt að leggja fram.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:15
af Diddmaster
jæja èg er farinn að poppa borða pop yfir drama
hvað kemur næst bìð spentur
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:21
af GuðjónR
Það var ekki umræðan sem leiddi til þess að hann var bannaður, alls ekki. Það var hegðun hans í kjölfarið. Hann stofnaði þráð eftir þráð sem voru reglubrot og hann vissi það vel, þegar hann lét ekki segjast fékk hann tímabundið bann og þá ákvað hann að skrifa þetta reddit innlegg og haug af nýjum notendum til að spamma þræðinum hingað inn. Það endaði svo að um kvöldið að við þurftum að disable nýskráningar í hálfan sólarhring meðan æðið rann af honum.
Ef það kemur engin skítur frá honum næstu 30 daga þá skal ég íhuga að gefa honum séns en ég lofa engu.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:27
af depill
Æi fuck this shit. Gúru er annoying know it all sem getur ekki replyað á póst án þess að tala niður einhvern. Auðvelt að spotta hvort hann sé að pósta hér inná spjallinu undir öðrum user hann er að tala niður til einhvers.
Myndi ekki líða betur með því að í staðinn fyrir að það standi vaktin.is þarna uppi að þá standi bara "Guðjón RuleZ all" ?. Guðjón heldur út vefnum, vanþakklátt starf sem hefur komið honum oft í vandamál. Ef hann nennir ekki að hafa Gúru þá hefur hann ekki Gúru. Ekkert sérlega flókið.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:56
af hagur
Ok, ég sagði mína skoðun á Gúrú. Þýðir ekki að ég vilji ekki hafa hann hér. Ég hætti ekkert að heimsækja vaktina þó að hann komi aftur - en ég myndi heldur ekki sakna hans ef hann kæmi ekki aftur.
En er ekki bottom line-ið það að hann braut reglur og er þess vegna kominn í bann? Er það ekki bara eðlilegt?
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 20:58
af Tw1z
Sýnum ást og umhyggju þá verður allt betra
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 21:09
af GuðjónR
hagur skrifaði:Ok, ég sagði mína skoðun á Gúrú. Þýðir ekki að ég vilji ekki hafa hann hér. Ég hætti ekkert að heimsækja vaktina þó að hann komi aftur - en ég myndi heldur ekki sakna hans ef hann kæmi ekki aftur.
En er ekki bottom line-ið það að hann braut reglur og er þess vegna kominn í bann? Er það ekki bara eðlilegt?
Það er akkúrat málið, snýst ekkert um mína persónulegu skoðun á honum. Hann fékk aðvörun og var beðinn um að láta af reglubrotunum en það hafði þveröfug áhrif því varð þetta niðurstaðan.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 21:26
af Xovius
Þó að það sé alls ekki málið í þessu tilfelli þá hefur GuðjónR fullann rétt til að henda út hverjum sem er af þessu spjallborði af hvaða ástæðu sem er.
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 21:37
af rapport
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 21:50
af fedora1
Xovius skrifaði:Þó að það sé alls ekki málið í þessu tilfelli þá hefur GuðjónR fullann rétt til að henda út hverjum sem er af þessu spjallborði af hvaða ástæðu sem er.
Ég held að þetta spjallborð lifi ekki lengi ef mönnum verður hent út af hvaða ástæðu sem er, eða ef ekki er hlustað á fjöldann þegar reglum er breytt. Um að gera að hafa reglur og banna þá sem brjóta þær ítrekað, en það þarf ástæðu og það þarf að fara varlega þegar notendur eru bannaðir...
Re: GudjonR að banna notendur?
Sent: Þri 24. Feb 2015 21:52
af Xovius
fedora1 skrifaði:
Xovius skrifaði:Þó að það sé alls ekki málið í þessu tilfelli þá hefur GuðjónR fullann rétt til að henda út hverjum sem er af þessu spjallborði af hvaða ástæðu sem er.
Ég held að þetta spjallborð lifi ekki lengi ef mönnum verður hent út af hvaða ástæðu sem er, eða ef ekki er hlustað á fjöldann þegar reglum er breytt. Um að gera að hafa reglur og banna þá sem brjóta þær ítrekað, en það þarf ástæðu og það þarf að fara varlega þegar notendur eru bannaðir...
Vissulega væri það slæmt fyrir spjallborðið en það er, eins og ég sagði, ekki málið í þessu tilfelli og ekki eitthvað sem GuðjónR gerir. Svo finnst mér hann einnmitt eiga hrós skilið fyrir að hafa strax hlustað á fjöldann og breytt verðlöggureglunni.