Síða 1 af 1

Vesen með Einkamál.is

Sent: Fim 01. Jan 2015 12:30
af semper
Vantar smá leiðbeiningar og skýringar. Þannig er að ég er staddur í Asíu og vinkona okkar hjónanna langar að kynnast íslenskum manni. Ég stofna auglýsingu eins saklausa og hugsast getur, á fullkominni íslensku, en viti menn, nokkrum mínútum siðar er búið að fjarlægja auglýsinguna. Ég hef reynt að spyrjast fyrir hjá þeim sem reka vefinn, en svör eru ekki auðveldlega fáanleg. Yfirleitt (þrátt fyrir loforð þar um) þá er yfirhöfuð ekki svarað. Einu sinni fékk ég þau svör að þar sem IP talan sé erlend, þá er lesið úr þessu sem spam og auglýsingunni eytt. Þó er gert ráð fyrir auglýsingum þar sem einstaklingar eru staðsettir erlendis (og þá með erlenda IP tölu).
Getur einhver ráðlagt mér hvernig ég á að haga auglýsisingagerðinni svo ég lendi ekki alltaf í þessum vandræðum?

Re: Vesen með Einkamál.is

Sent: Fim 01. Jan 2015 12:44
af Bjosep
Íslenskur proxy mögulega?

Re: Vesen með Einkamál.is

Sent: Fim 01. Jan 2015 13:27
af semper
Bjosep skrifaði:Íslenskur proxy mögulega?


Hvernig framkvæmi ég það?

Re: Vesen með Einkamál.is

Sent: Fim 01. Jan 2015 15:49
af benediktkr
Sendu mer email a benedikt (hja) lokun.is og eg skal græja fyrir ykkur frian aðgang að Lokun? (Islenskt vpn)