Nú vantar ykkar aðstoð

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf intenz » Lau 15. Nóv 2014 15:54

Komið frá mér.

Þú ert búinn að halda uppi þessu samfélagi uppi óumbeðinn í fjölda mörg ár án þess að fá snefil fyrir. Maður er nú bara innilega þakklátur þér fyrir það. =D>


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Reputation: 3
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf Garri » Lau 15. Nóv 2014 16:11

Samfélagið hérna á að sjálfsögðu að styrkja Guðjón í þessu þar sem ástæða þess að hann er í þessari klemmu eru skrif þess um Buy.is á sínum tíma.

Finnst allavega lágmark að þeir aðilar sem helst að þeirri umræðu stóðu á sínum tíma, styrki Guðjón. Það má líta á Guðjón sem talsmann (óumbeðinn "ábyrgðarmann") þessa samfélags í þessu máli. Raun-ábyrgðin liggur eftir hjá þeim sem "fóru" hvað hæðst með þetta mál þannig að úr varð dómsmál, réttilega eður ei.




Framed
Nörd
Póstar: 133
Skráði sig: Fös 28. Nóv 2003 02:54
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf Framed » Lau 15. Nóv 2014 16:52

Hrotti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Framed skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Hrotti skrifaði:
Framed skrifaði:Hér er hugmynd; ef vaktin nær að safna 700 þús. krónunum hvernig væri að halda söfnuninni áfram þannig að dugi fyrir gjaldþrotabeiðninni líka. Semi-INSTANT KARMA


Við skulum ekki gera honum þann greiða, við gjaldþrot fyrnast allar kröfur á 2 árum og hér um bil útilokað að rjúfa fyrningu, en þessum árangurslausu fjárnámum er hægt að halda á lífi nánast endalaust.

Þetta er góður punktur hjá þér.


Á móti kemur að þetta voru/eru bráðabirgðalög sem að öllu óbreyttu falla úr gildi nú um áramótin. Þá taka aftur við gömlu gjaldþrotareglurnar þar sem lítið mál er að halda kröfum lifandi mjög lengi. Hitt er að ekki er hægt rifta gjörningi hans að selja konu sinni húsið nema gera hann gjaldþrota fyrst (miðað við minn skilning á lögunum, leiðréttið hafi ég rangt fyrir mér). Auk þess að með gjaldþrot á bakinu mætti hann ekki sitja í stjórn hlutafélags í x tíma (man ekki hversu lengi það er).


Rétt hjá þér, viðkomandi þarf að vera gjaldþrota svo hægt sé að rifta þessu, en þó það færi í gegn þá er spurning hvað margir aðrir kröfuhafar eru á undan. Þessi tveggja ára regla dettur niður núna um áramót. Þess vegna er fjárnámsferlið í gangi núna og ekkert kemur út úr því þá verður staðan metin í janúar. Eitt er víst að þetta gleymist ekkert.




2ja ára reglan dettur ekki sjálfkrafa niður um áramót heldur á bara að skoða málið uppá nýtt. Það er ekkert víst að reglurnar breytist neitt.

"Ákvæði gjaldþrotalaga um hinn tveggja ára fyrningarfrest skal endurskoðað innan fjögurra ára frá gildistöku þess, en það tók gildi í desember 2010. Það þýðir að Alþingi ber að endurskoða ákvæðið ekki síðar en í desember 2014." http://www.spyr.is/grein/ymislegt/2459


Þetta er rétt. Ég einmitt hafði mínar upplýsingar frá sömu síðu plús eldri þekking sem ég fletti ekki upp aftur. Gleymdi að vitna í síðuna.

Misskilningur minn var hins vegar að bráðabirgðaákvæðið sem um ræðir er ekki þessi breyting á lögunum heldur er það ákvæðið um að Alþingi skuli endurskoða lögin innan fjögurra ára, sem sagt núna fyrir áramót. http://www.althingi.is/altext/stjt/2010.142.html
Venjulega er það breytingin sjálf sem er bráðabirgðaákvæði með settum tímaramma sem fellur þá sjálfkrafa úr gildi. Miðað við að Alþingi hefur ekki tekið upp endurskoðun á lögunum, eftir því sem ég best veit, þá munu lögin ekki sjálfkrafa "revert-a" í gamla formið. Biðst afsökunar á að gefið frá mér þessa rangtúlkun án þess að skoða málið betur.
Hef litla trú á að Alþingi muni endurskoða þetta innan setts tímaramma. Þetta yrði ekki í fyrsta skiptið sem þingið brýtur lög sjálft.

Ein spurning GuðjónR; hvað ætlarðu að gera við söfnunarféð ef kraftaverkið gerist og hann greiðir þér þennan 700 þús. kall? Ætlarðu þá að endurgreiða eða gera eitthvað annað við það?

Mín tillaga er, að undangenginni umræðu um málið hérna, að féð verði gefið í góðgerðastarf ákveðið af meðlimum vaktarinnar. En það er kannski heldur snemmt að pæla í því núna. :-k



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Lau 15. Nóv 2014 18:31

intenz skrifaði:Komið frá mér.

Þú ert búinn að halda uppi þessu samfélagi uppi óumbeðinn í fjölda mörg ár án þess að fá snefil fyrir. Maður er nú bara innilega þakklátur þér fyrir það. =D>

Fallegt komment hjá þér nafni ;) innilegar þakkir!

Garri skrifaði:Samfélagið hérna á að sjálfsögðu að styrkja Guðjón í þessu þar sem ástæða þess að hann er í þessari klemmu eru skrif þess um Buy.is á sínum tíma.

Finnst allavega lágmark að þeir aðilar sem helst að þeirri umræðu stóðu á sínum tíma, styrki Guðjón. Það má líta á Guðjón sem talsmann (óumbeðinn "ábyrgðarmann") þessa samfélags í þessu máli. Raun-ábyrgðin liggur eftir hjá þeim sem "fóru" hvað hæðst með þetta mál þannig að úr varð dómsmál, réttilega eður ei.

Mjöööög góður punktur!
Nú skora ég á þig Sigurður Helgason @iStore.is að styrkja þetta verkefni.
Eftir allt þá voru það þín ummæli hérna á spjallinu sem komu öllu þessu ferli af stað.
Ábyrgð þín er því mikil.

Framed skrifaði:Ein spurning GuðjónR; hvað ætlarðu að gera við söfnunarféð ef kraftaverkið gerist og hann greiðir þér þennan 700 þús. kall? Ætlarðu þá að endurgreiða eða gera eitthvað annað við það?

Mín tillaga er, að undangenginni umræðu um málið hérna, að féð verði gefið í góðgerðastarf ákveðið af meðlimum vaktarinnar. En það er kannski heldur snemmt að pæla í því núna. :-k

Takk fyrir að koma með þessa spurningu!
Ég steingleymdi að taka fram í upphafsinnlegginu þennan punkt!
Er búinn að bæta honum skástrikað neðst í upphafsinnleggið:

Og síðast en ekki síst, ef sú staða kemur upp að Friðjón greiði skuld sína eftir að söfnun lýkur og ég hef gert upp við lögmaninn þá mun ég endurgreiða ykkur söfnunarféð, enda er eini tilgangurinn með þessari söfnun að fá sem mest upp í það fjárhagstjón sem maðurinn olli.


Og ef einhver er að leita af reikningsupplýsingunum þá skelli ég þeim hér með í undirskriftina mína. :)




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf vesley » Lau 15. Nóv 2014 19:03

Mætti alveg skoða með góðgerðarstarfsemi, ég hefði lítinn áhuga á að fá endurgreitt frá þér ef hann myndi endurgreiða þér :)



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf zedro » Lau 15. Nóv 2014 19:05

vesley skrifaði:Mætti alveg skoða með góðgerðarstarfsemi, ég hefði lítinn áhuga á að fá endurgreitt frá þér ef hann myndi endurgreiða þér :)

Genius! :happy


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Lau 15. Nóv 2014 19:08

vesley skrifaði:Mætti alveg skoða með góðgerðarstarfsemi, ég hefði lítinn áhuga á að fá endurgreitt frá þér ef hann myndi endurgreiða þér :)

Okay, þetta er eitthvað sem við skoðum saman ef til kemur ;)
Það mætti jafnvel hafa það þannig að hver og einn réði því, þ.e. myndu ákveða hvort þeir fengju endurgreitt eða leggðu einhverju málefni lið. Eða útnefna einhver ákveðin góðgerðarmálefni og kjósa um þau. Allaveganna þá tökum við lýðræðislega ákvörðun á því ef til þess kemur. ;)



Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf vesi » Lau 15. Nóv 2014 19:09

vesley skrifaði:Mætti alveg skoða með góðgerðarstarfsemi, ég hefði lítinn áhuga á að fá endurgreitt frá þér ef hann myndi endurgreiða þér :)



X2


MCTS Nov´12
Asus eeePc


mikkimás
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Tengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf mikkimás » Lau 15. Nóv 2014 19:42

Vertu með á hreinu hvort þú þurfir að borga skatt af fénu á endanum.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Lau 15. Nóv 2014 19:45

mikkimás skrifaði:Vertu með á hreinu hvort þú þurfir að borga skatt af fénu á endanum.

Þeir sem styrkja eru búnir að borga skatt af peningunum, þeir fara í að borga lögmanni sem borgar síðan aftur skatt af þeim.
Þannig að ríkið fær sitt, 2x ;)
Ég hefði alveg getað sleppt því að vera "milliliðiur" og fengið kt. og bankaupplýsingar hjá lögmanninum til að leggja beint þangað. Vildi frekar hafa þetta svona svo ég hefði yfirsýn yfir framlögin.



Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf vesi » Lau 15. Nóv 2014 20:58

Hvernig er staðan núna?, (ekki að það komi mér neitt við)
Fynnst vanta svona "staða söfnunar" á forsíðuna sem reminder fyrir okkur sem erum ekki búinnir að styrkja þig í þessu máli.


MCTS Nov´12
Asus eeePc

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5495
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf appel » Lau 15. Nóv 2014 22:17

Viltu ekki bara áframselja kröfuna á hann þar sem þetta er pottþétt krafa?

Það eru lögmenn og innheimtuskrifstofur sem kaupa kröfur sem þessar, reyndar á brot af virði kröfunnar, en gæti kannski fengið 50 þús kall fyrir hana. En aðalmálið er að þá þarft þú ekki lengur að eltast við peningana frá honum og standa í innheimtukostnaði, heldur getur verið fullviss um að hann mun á endanum vera hundeltur af innheimtusérfræðingum svo lengi sem hann lifir.


*-*

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Sun 16. Nóv 2014 00:59

Ég ætla að birta stöðuna á söfnunni reglulega á upphafsinnlegginu.

Staðan á söfnuninni:
16.11.2014 kl. 00:00
258.751 af 700.000.- 36.96% komið!



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5495
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf appel » Sun 16. Nóv 2014 01:10

Næstum 37% á 2 dögum. Lofar góðu! Rosalega er ég happí :) bezta íslenska netsamfélagið í heimi!


*-*

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf zedro » Sun 16. Nóv 2014 01:16

appel skrifaði:Næstum 37% á 2 dögum. Lofar góðu! Rosalega er ég happí :) bezta íslenska netsamfélagið í heimi!

Já það er æðislegt að fólk leggi manninum lið. Ekki veit ég hvernig ég myndi höndla reikning uppá SJÖ HUNDRUÐ ÞÚSUND KRÓNUR
eða NÚLL KOMMA SJÖ MILLJÓNIR... (já þessi upphæð á skilið bókstafi og lit!), sérstaklega fyrir eitthvað sem maður GERÐI EKKI! ](*,)


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Sun 16. Nóv 2014 01:21

appel skrifaði:Næstum 37% á 2 dögum. Lofar góðu! Rosalega er ég happí :) bezta íslenska netsamfélagið í heimi!

Ég líka!

Styrkurinn í þessu samfélagi okkar er svo miklu meiri en ég þorði að vona!
Það er alveg greinilegt að þið ætlið ekki að láta brjóta þetta samfélag á bak aftur.
Ef ég mætti velja eina útkomu þá væru hún sú að Friðjón myndi sjá að sér eftir helgi og gera þetta upp, ég myndi þá strax hætta þessari söfnun og greiða ykkur hverja einustu krónu til baka.

Eftir stæði óendanlegt þakklæti til ykkar fyrir stuðninginn, enginn ykkar hefði þurft að leggja fram krónu!
Samt eru allir tilbúnir að hjálpa, leggja sín lóð á vogarskálina.
Maður verður bara klökkur yfir þessu.
:crying



Skjámynd

missranny
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mán 22. Júl 2013 08:23
Reputation: 0
Staðsetning: Svalbarði, Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf missranny » Sun 16. Nóv 2014 11:00

Ég lagði ekki mikið af mörkum og vil alls ekki fá endurgreitt, uppáhalds síðan mín löngu áður en ég skráði mig hér. Ef út í það fer þá er ég nokkuð viss um að það verður komið inn fyrir allri upphæðinni um mánaðarmót og ætla ég að leggja inn aftur þá, þetta samfélag er bókstaflega að sýna heiminum þá staðreynd að það er ómissandi og einfaldlega best á allan hátt.



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf kiddi » Sun 16. Nóv 2014 11:36

missranny skrifaði:Ég lagði ekki mikið af mörkum og vil alls ekki fá endurgreitt, uppáhalds síðan mín löngu áður en ég skráði mig hér. Ef út í það fer þá er ég nokkuð viss um að það verður komið inn fyrir allri upphæðinni um mánaðarmót og ætla ég að leggja inn aftur þá, þetta samfélag er bókstaflega að sýna heiminum þá staðreynd að það er ómissandi og einfaldlega best á allan hátt.


:happy

Heimurinn er eins og við gerum hann. Vel gert Vaktarar!



Skjámynd

coldone
has spoken...
Póstar: 170
Skráði sig: Fös 12. Okt 2007 19:15
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf coldone » Sun 16. Nóv 2014 11:42

Lagði inn á þig. Gangi þér vel í baráttunni og takk fyrir að halda þessari síðu úti.



Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf jericho » Sun 16. Nóv 2014 11:46

Lagði smá í púkkið.
Gangi þér vel og lifi vaktin!



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Sun 16. Nóv 2014 13:27

missranny skrifaði:Ég lagði ekki mikið af mörkum og vil alls ekki fá endurgreitt, uppáhalds síðan mín löngu áður en ég skráði mig hér. Ef út í það fer þá er ég nokkuð viss um að það verður komið inn fyrir allri upphæðinni um mánaðarmót og ætla ég að leggja inn aftur þá, þetta samfélag er bókstaflega að sýna heiminum þá staðreynd að það er ómissandi og einfaldlega best á allan hátt.

Innilegar þakkir fyrir stuðningin og hlý orð :)
Nú get ég ekki lengur sagt "takk strákar" ;)


coldone skrifaði:Lagði inn á þig. Gangi þér vel í baráttunni og takk fyrir að halda þessari síðu úti.

Innilegar þakkir, og takk fyrir að vera partur af samfélaginu ;)

jericho skrifaði:Lagði smá í púkkið.
Gangi þér vel og lifi vaktin!

Lengi lifi þú líka!! :)
Kærar þakkir fyrir stuðninginn! ;)



Skjámynd

jojoharalds
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1619
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Reputation: 295
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf jojoharalds » Sun 16. Nóv 2014 13:43

Komið frá mér :)

Og gángi þér vel!!!


Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-5800X3d @ 4.5 Ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3800MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 1200W - GTX3080
Samsung 980pro 2Tb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb -- Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf GuðjónR » Sun 16. Nóv 2014 13:49

jojoharalds skrifaði:Komið frá mér :)

Og gángi þér vel!!!

Innilegar þakkir félagi!! :)



Skjámynd

jojoharalds
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1619
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Reputation: 295
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf jojoharalds » Sun 16. Nóv 2014 13:50

GuðjónR skrifaði:
jojoharalds skrifaði:Komið frá mér :)

Og gángi þér vel!!!

Innilegar þakkir félagi!! :)


Þetta var nú bara sjáfsatt mál :)


Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-5800X3d @ 4.5 Ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3800MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 1200W - GTX3080
Samsung 980pro 2Tb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb -- Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Pósturaf Revenant » Sun 16. Nóv 2014 14:45

Búinn að leggja í púkkið.