Síða 1 af 1
Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 16:23
af trausti164
Ég er að fara að fá mér nýja Thinkpad og til þess að spara mér ~300k þá ætla ég að láta bróður minn kaupa hana og senda mér.
Um daginn fattaði ég aftur á móti að það eru gjaldeyrishöft og ég get ekki bara millifært, hver er besta leiðin til þess að gera þetta? Ég er ekkert mjög hrifin af þvi að borga paypal einhvern 20.000 kall.
Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 16:27
af Glazier
Er bróðir þinn með íslenskt kort þarna úti?
Millifæra á hann og hann borgar með sínu korti?
(Sennilega ekki samt... hefði verið of auðvelt og þú hefðir sennilega ekki spurt hér ef það væri hægt)

Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 16:48
af HalistaX
Kaupa Bitcoin, senda honum Bitcoin, svo selur hann Bitcoin fyrir Yen?
Eða virkar það kannski ekki þannig hahaha..
Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 16:52
af GullMoli
HalistaX skrifaði:Kaupa Bitcoin, senda honum Bitcoin, svo selur hann Bitcoin fyrir Yen?
Eða virkar það kannski ekki þannig hahaha..
Hann þarf þá að kaupa Bitcoin af Íslendingi

Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 16:57
af GuðjónR
trausti164 skrifaði:Ég er að fara að fá mér nýja Thinkpad og til þess að spara mér ~300k þá ætla ég að láta bróður minn kaupa hana og senda mér.
Um daginn fattaði ég aftur á móti að það eru gjaldeyrishöft og ég get ekki bara millifært, hver er besta leiðin til þess að gera þetta? Ég er ekkert mjög hrifin af þvi að borga paypal einhvern 20.000 kall.
Spara þér 300k samt að borga 20k í þóknun til PayPal?
Hvað kostar þessi tölva sem þú ert að spá í ??
Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 18:05
af trausti164
GuðjónR skrifaði:trausti164 skrifaði:Ég er að fara að fá mér nýja Thinkpad og til þess að spara mér ~300k þá ætla ég að láta bróður minn kaupa hana og senda mér.
Um daginn fattaði ég aftur á móti að það eru gjaldeyrishöft og ég get ekki bara millifært, hver er besta leiðin til þess að gera þetta? Ég er ekkert mjög hrifin af þvi að borga paypal einhvern 20.000 kall.
Spara þér 300k samt að borga 20k í þóknun til PayPal?
Hvað kostar þessi tölva sem þú ert að spá í ??
Thinkpad T540p með 3k skjá, GT 730m, 16GB ram og i7 4810MQ kostar einhvern 400.000 kall á Íslandi, í Japan er tölvan á ~180.000 og komin til landsins á 224.000kr.
Ég var að horfa á W540p, ég er að spara 200k.
Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 18:24
af Bjosep
Ef bróðir þinn á bankareikning hér heima og býr í Japan og er með reikning þar þá má hann flytja peningana út sjálfur
Re: Hver er besta leiðin til þess að koma pening til Japan?
Sent: Lau 05. Júl 2014 18:41
af trausti164
Bjosep skrifaði:Ef bróðir þinn á bankareikning hér heima og býr í Japan og er með reikning þar þá má hann flytja peningana út sjálfur
Takk fyrir þetta, ég spyr hann út í reikningana hanns á morgun.