Fréttir af Verðvaktinni - 14. apríl 2003
Sent: Þri 15. Apr 2003 00:40
Sælir/ar! Ég veit ég veit, þráðurinn heitir "Fréttir af Verðvaktinni 14. apríl 2003" en samt er hann dagsettur þann fimmtánda, það er vegna þess að við erum reyndar búnir að uppfæra fyrir miðnætti, um miðnætti erum við að snurfusa og binda lausa hnúta og svoleiðis, svo ég vona að okkur verði fyrirgefið.
En að fréttum, litlar verðbreytingar hafa orðið hérna á klakanum. Hæst ber að GeForceFX 5200 'budget' kortið er loksins komið til landsins, nú getur fólk fengið sér Geforce kort sem styður DirectX 9 á alveg frábæru verði!
Fréttir eru farnar að berast af nýju kubbasetti frá Intel, kallað 875P ("Canterwood"), þetta kubbasett sportar 800 FSB, Dual-DDR400, AGP8x ásamt náttúrulegum stuðningi fyrir SerialATA og RAID, sem er nýjung í heimi móðurborða. Með DualD-DDR400 er loksins búið að hrinda hinu rándýra RAMBUS minni af palli hraðakóngsins, því DDR'ið nær núna 6.4 GB/s meðan RAMBUS 600 (nýjasta) nær 4.2 GB/s.
Að auki viljum við óska task.is & kt tölvum til hamingju með vefverslanirnar sínar, þær eru glæsilegar og blása meira lífi í bransann! Hér með verða verðin hjá k.t. tölvum miðuð við vefverslunina.
Hver verður sumargjöfin til ykkar sjálfra í vor?