Síða 1 af 1

Opera vesen eða bara ég?

Sent: Mið 25. Ágú 2004 21:19
af Emizter
Hmm í dag hefur Opera alltaf lokast þegar ég fer á vaktin.is :?
Kannski bara kominn tími á format?

Sent: Mið 25. Ágú 2004 21:38
af corflame
Mögulega, svo er auðvitað sá möguleiki fyrir hendi að nota Mozilla Firefox

http://static.hugi.is/forrit/mozilla/firefox/FirefoxSetup-0.9.3.exe

Sent: Mið 25. Ágú 2004 22:31
af Emizter
corflame skrifaði:Mögulega, svo er auðvitað sá möguleiki fyrir hendi að nota Mozilla Firefox

http://static.hugi.is/forrit/mozilla/firefox/FirefoxSetup-0.9.3.exe


Persónulega fíla ég best Opera.. :D :8)

Sent: Fim 26. Ágú 2004 16:45
af corflame
Heh, er það ekki bara misskilningur hjá þér? ;)

Re: Opera vesen eða bara ég?

Sent: Fim 26. Ágú 2004 16:48
af Daz
Emizter skrifaði:Hmm í dag hefur Opera alltaf lokast þegar ég fer á vaktin.is :?
Kannski bara kominn tími á format?

Format er ekki lausnin á öllum trivial vandamálum. Held að fyrst ættirðu nú að prófa minna "drastískar" lausnir eins og að sækja nýjustu útgáfu af Operu, uppfæra windows, uninstall + reinstall af operu, eitthvað í þessum dúr.

Sent: Fim 26. Ágú 2004 17:21
af gnarr
nei! eina sem þú getur gert er að taka harðadiskinn úr tölvunni lemja hann með slegjju og kveikja í honum! svo verðuru að kveikja í tölvunni þinni og fleija henni logandi í sjóinn.


ég er ekki búinna að formata system diskinn minn síðan harði diskurinn minn krassaði.. einhverntíman í september í fyrra og hún gengur jafn smooth og ketlingur í fiðurhrúgu.

Sent: Fim 26. Ágú 2004 18:29
af Pandemic
gnarr skrifaði:og hún gengur jafn smooth og ketlingur í fiðurhrúgu.

Kafnar hann ekki?

Sent: Fös 27. Ágú 2004 08:17
af gnarr
hmmm.. maður ætti kanski að athuga það. ég henti honum ofaní kistu fulla af fiðri fyrir 2 mánuðum síðan.. og það hefur ekkert heyrst í honum :?

Sent: Fös 27. Ágú 2004 11:16
af Daz
Ef þú setur kött í algerlega lokaðann og ógagnsæjann kassa, þá veistu ekki hvort hann er til í rauninni fyrr en þú opnar aftur. Á meðan kassinn er lokaður þá eru ekki nema 50% líkur á því að það sé köttur í honum.

Sent: Fös 27. Ágú 2004 11:26
af MezzUp
Daz skrifaði:Ef þú setur kött í algerlega lokaðann og ógagnsæjann kassa, þá veistu ekki hvort hann er til í rauninni fyrr en þú opnar aftur. Á meðan kassinn er lokaður þá eru ekki nema 50% líkur á því að það sé köttur í honum.

ROFL, hefðir átt að lesa greinina í Lifandi Vísindum AÐEINS betur........ :D

Vitaskuld er kötturinn í kassanum ef að þú varst að setja hann í kassan og kassinn er alveg lokaður.

Ég man þetta nú heldur ekki alveg, en þetta var einhvernveginn þannig að þú varst með geislavirkt efni í glasi í kassanum sem að var algjörlega tilviljunnarkennt hvenær helltis úr glasinu. Þessvegna gastu ekki sagt til um hvort að kötturinn væri lifandi eða dauður þangað til að þú opnaðir kassann, þangað til var kötturinn í svokölluðu "ofurástandi", þ.e. bæði lifandi og dauður.

(Ef einhver á blaðið eða man þetta betur en ég, endilega leiðréttið)

Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:01
af Daz
Tengist lifandi vísindum ekki neitt, þetta var gömul heimspekitilraun, svona "ef ég sé það ekki, er það þá til" dæmi. Og með gömul á ég við svona 19. aldar gamalt.

Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:23
af gnarr
vitiði hvað 9KG þungur köttur er lengi að hverfa úr kassa sem er 95x35x60cm ?

Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:25
af MezzUp
Daz skrifaði:Tengist lifandi vísindum ekki neitt, þetta var gömul heimspekitilraun, svona "ef ég sé það ekki, er það þá til" dæmi. Og með gömul á ég við svona 19. aldar gamalt.

hmm, ok

En þetta í Lifandi Vísindum var nýjasta (vísinda)kenningin við gamalli heimspeki gátu þar sem að það var köttur og þetta geislavirki efni í lokuðum kassa.

En um gátuna þína, ef að þú varst að setja köttinn í kassann, afhverju eru þá 50% líkur á að hann sé í kassanum?

ps. talandi um að hi-jacka þráðum :)

Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:37
af Daz
Afþví að annaðhvort er hann í kassanum eða ekki í kassanum, 2 stöður mögulegar og þar með 50% líkur á hvorri fyrir sig.

Augljóslega er þetta nú bara létt grín, svo fólk haldi nú ekki að ég trúi þessu sjálfur ;)

En svo við setjum þetta on topic, ef við setjum biluðu tölvuna hans Emizters í lokaðann kassa, ætli séu þá 50% líkur á því að hún sé köttur?

Sent: Fös 27. Ágú 2004 13:24
af MezzUp
Jæja, smá Google gaf mér nafnið á þessari "gátu" sem að ég var að tala um; Schrödinger's cat.

Lesing um "gátuna" á whatis.com
Og nettur djókur hjá User-friendly :D

ps. ekki það sama og Daz var að tala um, enda er "köttur Schrödingers" ekki létt grín heldur "gáta" sem að útskýrir svokallað ofurástand (e. superpostition) skammtafræðinnar