Síða 1 af 1

Linkar á aðalsíðu

Sent: Fös 23. Nóv 2012 14:15
af Swooper
Smá ábending til stjórnenda Vaktarinnar: Nokkrir af linkunum á aðalsíðunni undir Harðir diskar eru vitlausir - ég tók t.d. eftir að sums staðar linkar Samsung 830 SSD á 840, sem er allt önnur vara. Sums staðar vantar líka link við einhverja búð þó hún selji viðkomandi vöru.

Ég geri mér grein fyrir að það er örugglega mikið mál að halda utan um þetta allt saman, en ég tók eftir að það virðist hafa verið einhver ruglingur með þessar tvær gerðir af SSDum í gangi síðustu amk ~2 vikur, svo mér þótti rétt að benda á það!

Re: Linkar á aðalsíðu

Sent: Fös 23. Nóv 2012 14:38
af GuðjónR
Ef verslanir setja nýja (öðruvísi) vöru á sama gamla linkinn þá er hæpið að maður sjái það um leið eins og er líklega í þessu tilfelli sem þú vitnar í.
Þú mátt líka senda mér í PM ábendingu ef þú sérð eitthvað sem vantar ;)

Linkur
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... opnav=HDD_SSD_SAM_256

Lýsing
Harður Diskur - SSD - 2.5" - 250GB - SATA3 - Samsung 840

p.s. gamli 830 er 256GB

Re: Linkar á aðalsíðu

Sent: Fös 23. Nóv 2012 17:04
af Swooper
Ahh, já, ég sé hvað þú átt við :)

Skal senda ábendingar í PM í framtíðinni.

Re: Linkar á aðalsíðu

Sent: Fös 23. Nóv 2012 17:20
af capteinninn
Spurning um að gera sticky þráð eða eitthvað þannig að það sé hægt að láta vita ef maður sér einhverjar villur

Re: Linkar á aðalsíðu

Sent: Fös 23. Nóv 2012 20:17
af GuðjónR
hannesstef skrifaði:Spurning um að gera sticky þráð eða eitthvað þannig að það sé hægt að láta vita ef maður sér einhverjar villur

PM er best :)