Síða 1 af 1
Munurinn á tæknibær og computer.is ?
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
heyriði, hver er munurinn á computer.is og tæknibæ? er þetta ekki sama fyrirtækið? eða er tæknibær bara heildverslun eða eitthvað?
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
málið er sko það að ég var að spá að kaupa mér MS IntelliMouse Explorer 3.0 og hún kostar bara 4.500 í tæknibæ og finnst mér það mjöglítið þar sem hún kostar meira en 6.000 annars staðar
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af kiddi
Þetta er sama fyrirtækið jú, og sami lager. Munurinn felst í viðskiptaháttum held ég, mig minnir að computer.is sé yfirleitt nákvæmlega 5% ódýrari en Tæknibær, en t.d. býður eingöngu upp á staðgreiðslur, enga magnafslætti o.s.frv meðan Tæknibær tekur öðruvísi í pólinn. -Held ég- - Annars þætti mér eðlilegast að þessar búðir yrðu sameinaðar bæði til að auðvelda rekstur og til þess minnka flækjuna fyrir okkur nördunum. Miklu ódýrara að markaðssetja eitt fyrirtæki frekar en tvö. En þeir hljóta að hafa góða ástæðu fyrir þessu... ég amk vona það.
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
en get ég samt ekki keypt þessa mús hjá tæknibæ(með staðgreiðslu)? hún er ekki til á computer.is og hún er dýrari annars staðar
Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af OrkO
Fyrsti pósturinn minn hér
En í sambandi við þetta Tæknibær/Computer.is mál þá er þetta tekið beint af síðunni hjá Computer.is:
"Computer.is og Tæknibær er rekið undir sama hatti, þ.e. nota sama lager. Computer.is er þó rekin með þeim hætti að ekki er hægt að koma og versla án þess að hafa lagt inn pöntun fyrst."
og svo held ég að ég hafi einhverntíman lesið/heyrt einhversstaðar að computer.is væri í 50% eign Tæknibæ, hinn helmingurinn væri í eign erlends aðila.
Sent: Fim 17. Okt 2002 10:55
af Throstur
computer.is var í 50/50 eigu Tæknibæjar og erlends fyrirtækis, en það er amk. ár síðan að Tæknibær keypti hluta hins fyrirtækisins og er computer.is 100% í eigu Tæknibæjar (held ég)