Jæja þá er ég búinn að bæta við tveimur nýjum flokkum.
Uppfærslur og
[url=http://spjall.vaktin.is/viewforum.php?f=28]Minni/minniskort/minnislyklar [/url]
Ég bætti líka "skjáum" inn í flokkinn Skjákort og hljóðkort.
Vona að þetta sé breyting til batnaðar
Kannski... kannski þetta hvetji til meiri traffíkar, auðveldara fyrir fólk að beina spurningum sínum, og þá kannski hikar það síður við að koma með spurningar Þetta er svo lítill hópur sem treystir sér í að stofna nýja þræði eins og er. =)
Annars getum við breytt þessu aftur ef þetta gengur illa...
t.d. með uppfærslurnar...ég færði uppfærlsuþræði úr öllum flokkum yfir í "Uppfærslur"
Þetta er líka alltaf spurning hvaða flokka eigum við að hafa og hvaða flokka ekki...
t.d. er hægt að hafa 1x flokk sem heitir "Cpu/hdd/móðurborð/skjákort/minni/kassar/kæling/og allt annað hardware"
ekki er það betra.
Það þýðir ekkert að vera hræddur við breytingar.