Meðan það er svona lítið að gerast þá er kannski rétt að nefna vörur sem eru væntanlegar á komandi mánuðum, t.d. GeforceFX 5200 & 5600, Radeon9600 & 9800, fleiri DualDDR móðurborð, SerialATA harðir diskar eru þegar byrjaðir að ryðja sér veg inn á markaðinn og einnig bíðum við eftir næstu kynslóð af P4 örgjörvum sem munu byggja á FSB800 móðurborðum. Ef það er eitthvað sérstakt sem þið eruð spennt fyrir, endilega komið af stað umræðum um það hér á spjallinu og komið okkur hinum til vitundar um þessar gersemar!
