Serial-ATA harðir diskar eru loksins komnir á klakann.
Því miður hefur nánast engin breyting verið á skjákortum í töluverðan tíma núna, og örugglega enga breytinga að vænta fyrr en nýju kortin koma, Radeon9600, 9800 og GeforceFX 5200 & 5600. Við bíðum spenntir!
Hvaða vöruflokka viljið þið sjá vera með á Verðvaktinni? (í tölvuíhlutum þá) - Vinsamlegast hafið í huga að til þess að það sé hægt að vera með sanngjarnan verðsamanburð þá þurfa vörurnar á milli verslana að vera *mjög* sambærilegar.

Síðbúnar fréttir: task.is eru búnir að stækka og endurbæta sína vefverslun, með fullt af nýjum og skemmtilegum vörum, m.a. vörum sem passa í Verðvaktina okkar, og því eru þeir komnir þangað! Til hamingju Task! Glæsilegt =)