Ég gefst fljótlega upp á þessu

Glazier skrifaði:oh cock.. þetta er skelfilegt eins og þetta er núna !
Ég gefst fljótlega upp á þessu
Gunnar skrifaði:frekar að hafa stillingu svo það sé hægt að breyta því sjálfur.
Gunnar skrifaði:frekar að hafa stillingu svo það sé hægt að breyta því sjálfur.
GuðjónR skrifaði:Gunnar skrifaði:frekar að hafa stillingu svo það sé hægt að breyta því sjálfur.
Þarf þá ekki að modda grunninn í spað?
Ég er alveg til í svona breytingar ef það rústar ekki spjallinu.
biturk skrifaði:Sallarólegur skrifaði:biturk skrifaði:og þetta er glötuð hugmynd, ég nota einmitt nánast eingöngu virkar umræður á þessari síðu (skoða hana nokkrum sinnum á dag) og það myndi skemma gríðarlega að geta ekki séð söluþræðina þar, maður skoðar langt mest í því
Voðalega finnst mér þetta heimskulegt innlegg í umræðuna, leyfðu mér að útskýra:
Þú segist skoða lang mest í söluþráðum, hvað er þá svona flókið fyrir þig að fara í söluþræðina með því að smella á þá fyrir neðan? Á meðan getum við hinir actually tekið þátt í alvöru umræðum um allt sem er í hinum flokkunum.
af því að þá væri þetta nánast staðnað, það er mest af söluþráðum þarna því það er lang mest umferð þar, ýttu bara á "sjá allar" og þá færðu fleiri síður af hlutum sem hefur nýlega verið skrifað í, það er varla svo flókið.
GuðjónR skrifaði:Prófum að taka söluþræðina út í 1-2 daga og sjáum hvernig það smakkast.
Þeir sem vilja sjá söluumræðurnar geta klikkað á: .. VIRKAR UMRÆÐUR | SJÁ ALLAR << sjá allar... og ættu þá að sjá virkar söluumræður.
intenz skrifaði:Ég var einmitt að spá í þessu um daginn! Þetta er nefnilega rosalega pirrandi.
En hvað með að búa til annað svona "Virkar umræður" fyrir neðan bara fyrir söluflokkana?
*edit* Já eða til hliðar eins og myndin hjá kubbur
Glazier skrifaði:Ég vil hafa söluflokkana..
Þá er líka auðveldara fyrir þá sem eru að selja að selja hlutina, oft sem maður er að skoða spjall, sér eitthvað sem mann allt í einu langar í en hafði ekki hugmynd um að það væri hægt að kaupa tiltekinn hlut notaðann á svona góðu verði og kaupir. En ef þetta er ekki þarna þá hefði maður hugsanlega ekki rekist á þetta og keypt og seljandi ekki átt eins auðvelt með að selja (vona að einhver skilji mig)
Ég er t.d. mjög oft að skoða sölusíður og rekst á hlut sem mig allt í einu langar í en langaði ekki í 2 mínútum áður en bara afþví ég sá hann, á pening og finnst hann flottur þá kaupi ég hann. (koma stundum svona tímabil þar sem maður bara hugsar ekki heldur framkvæmir)
Og ég er nokkuð viss um að það eru fleyri en ég sem gera þetta, dauðlangar í einhvern hlut akkurat þegar það sé hann auglýstann og kaupir hann.
Ef auglýsingar eru undir "Virkar umræður" þá eru fleyri sem sjá þær og væntanlega auðveldara að selja, líka auðveldara að óska eftir.
kubbur skrifaði:true true, en það veltur pínu á notendunum, engir notendur, engin síða...
held að þetta sé allt spurning um hvort gefur fleiri notendur
GuðjónR skrifaði:Sammála...
Þetta veltur allt á því hvað þið viljið, og meirihlutinn ræður.
Olafst skrifaði:GuðjónR skrifaði:Sammála...
Þetta veltur allt á því hvað þið viljið, og meirihlutinn ræður.
Spurning hvort könnun væri við hæfi til að sjá skoðanir manna í tölum?
Sallarólegur skrifaði:Endilega að kjósa í könnuninni. Meirihlutinn ræður (mögulega).
MrT skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Endilega að kjósa í könnuninni. Meirihlutinn ræður (mögulega).
haha.. Akkúrat núna er könnunin akkúrat jöfn. 6 á móti 6.
Hei, GuðjónR.. hvað geriru ef það endar sem jafntefli (eða það nálægt því að það gæti eins verið)?