Síða 7 af 8

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Sun 16. Feb 2020 15:15
af einari10
Veit einhver hvar er hægt að negla dekk á svona hjól, eða hvar hægt er að kaupa skrúfur í það hér á landinu?

Væri mjög ánægður ef ég þyrfti ekki að leita erlendis til þess eins og var nefnt hér fyrr í þræðinum.

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Sun 16. Feb 2020 22:07
af Viktor
Hvar kaupið þið ski mask

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mán 17. Feb 2020 00:35
af Stuffz

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 21. Feb 2020 11:14
af Klemmi
Held að þetta sé besta verð sem ég hef séð á Pro útgáfunni:
64.990kr

https://vefverslun.siminn.is/vara/rafma ... pro-utgafa

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Lau 11. Apr 2020 15:35
af chaplin
Smá update! Var að klára fyrsta rúntinn á þessu ári á M365 Pro hjólin.

Ég vill helst aldrei aftur þurfa að skipta um dekk á þessum hjólum því það er glatað verkefni, ég passa því upp á það að það sé alltaf nóg loft í dekkjunum þar sem það virðist vera besta leiðin til að forðast það að slöngurnar springi.

Vandamálið við það er að framlengingin sem fylgir með hjólinu hleypir oft slatta af lofti úr dekkinu þar sem hún einangrar ekki nægilega milli stúts og ventils, en síðan er líka gripið á endanum ekkert spes þannig það getur verið erfitt að losa stútin af ventlinum.

Rétt áður en ég byrjaði að pumpa í dekkið mundi ég eftir því að ég keypti Xiaomi loftpumpu fyrir nokkrum mánuðum sem ég hafði ekki fengið tækifæri til að prufa. [Link]

Mynd

Þetta er mesta snilld ég hef keypt, ever. Plögga henni á dekkin, hún segir hvað það er mikill þrýstingur á dekkinu og með einum smelli pumpar hún nákvæmlega þeim þrýsting sem ég vill og ekki 1 pund sleppur þegar ég losa hana af. Það tók um 5-10 sekúndur að fara úr 21 PSI í 45 PSI. Engin þörf á framlengingu, millistykki eða neinu slíku. Virkar líka á bíldekk og bolta (stútur fylgir með).

Ég hef ekki hugmynd um hvað rafhlaðan dugar lengi, hvað hún er lengi að pumpa í bíldekk, bolta o.s.frv. en hún gengur fyrir rafhlöðu, lítil og meðferðarleg - 100% snilld.

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Lau 11. Apr 2020 15:40
af ColdIce
chaplin skrifaði:Smá update! Var að klára fyrsta rúntinn á þessu ári á M365 Pro hjólin.

Kærar þakkir fyrir þetta!
Búinn að henda í pöntun :)

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Lau 11. Apr 2020 16:10
af GuðjónR
Fjórar spurningar varðandi þessi hlaupahjól ef þið vitið svörin:

  1. Eru hlaupahjólin skráningaskyld?
  2. Mega yngri en 13 ára ekki nota þau?
  3. Er skylda að nota hjálm?
  4. Eru sektarákvæði við brotum af einhverju ofantöldu?

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Lau 11. Apr 2020 16:16
af Viggi
Henti líka í pöntun. Eina að það er ekki hægt að fá tösku sem maður getur sett á reiðhjólið

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Lau 11. Apr 2020 18:05
af ColdIce
Ef einhverjum vantar varahluti utan opnunartíma verslana, þá má alveg senda á mig línu. Hugsa að ég eigi alla varahluti í þetta hjól fyrir utan skjá

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mán 13. Apr 2020 12:42
af chaplin
ColdIce skrifaði:Ef einhverjum vantar varahluti utan opnunartíma verslana, þá má alveg senda á mig línu. Hugsa að ég eigi alla varahluti í þetta hjól fyrir utan skjá

Höfðingjalegt af þér! Ég á annars til skjá og heila ef einhver vill reyna að breyta mælaborðinu á non-Pro í Pro. :)

GuðjónR skrifaði:Fjórar spurningar varðandi þessi hlaupahjól ef þið vitið svörin:

  1. Eru hlaupahjólin skráningaskyld?
  2. Mega yngri en 13 ára ekki nota þau?
  3. Er skylda að nota hjálm?
  4. Eru sektarákvæði við brotum af einhverju ofantöldu?

Skv. því sem ég hef lesið þá eru rafmagnshjól í dag skilgreind sem "Létt bifhjól I" - https://www.samgongustofa.is/umferd/fra ... nuin-hjol/. - En í ákvæði 30.C skv. . https://www.althingi.is/lagas/149c/2019077.html.

Létt bifhjól greinast í létt bifhjól í flokki I sem er ekki hannað til hraðari aksturs en 25 km á klst. og létt bifhjól í flokki II sem er hannað til hraðari aksturs en 25 km á klst. Ákvæði laganna um bifhjól eiga einnig við um létt bifhjól nema annað sé tekið fram.
29. Óvarinn vegfarandi: Vegfarandi sem ekki er varinn af yfirbyggingu ökutækis í umferð, svo sem gangandi og hjólandi vegfarandi, þ.m.t. ökumaður og farþegi bifhjóls og torfærutækis.
30. Reiðhjól:
a. Ökutæki sem er knúið áfram með stig- eða sveifarbúnaði.
b. Hjól með stig- eða sveifarbúnaði, búið rafknúinni hjálparvél þar sem samfellt hámarksafl er allt að 0,25 kW og afköstin minnka smám saman og stöðvast alveg þegar hjólið hefur náð hraðanum 25 km á klst. eða fyrr ef hjólreiðamaðurinn hættir að stíga hjólið.
c. Annað lítið vélknúið ökutæki sem ekki telst til létts bifhjóls og er hannað til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst. Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól og tvíhjóla ökutæki á einum öxli. Slíkum farartækjum má ekki aka á akbraut.

Það virðist vera að ýmis lög hafi verið samþykkt sl. mánuði án þess að mikil hugsun hafi farið í þá vinnu. Besta dæmið er t.d. um sölu á hjólum.

Í dag er ekki greiddur vsk. af rafmagnshjólum sem kosta allt að 400.000 en greiddur er vsk. af upphæð umfram 400.000 kr, (200.000 kr á rafmagnshlaupahjólum) þannig ef hjól er selt á 500.000 kr er greiddur 24% vsk af 100.000 kr. Mjög jákvætt fyrir alla sem vilja rafmagnshjól/hlaupahjól en hefur verið algjör hausverkur fyrir allar verslanir sem eru að selja hjólin þar sem

Skatturinn getur ekki leiðbeint söluaðilum hvernig á að bóka slíka reikninga því ekki skrifaði Skatturinn þessi lög og þeir sem skrifuðu lögin vísa söluaðilum á að tala við Skattinn. Á að búa til 2 vörunúmer fyrir eina vöru? Á að skrifa út tvo reikninga, einn með vsk og hinn án? O.s.frv.

Eina sem ég get sagt þér er að ég myndi aldrei fara á hjól nema að vera með hjálm. ;)

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mán 13. Apr 2020 13:01
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Fjórar spurningar varðandi þessi hlaupahjól ef þið vitið svörin:

  1. Eru hlaupahjólin skráningaskyld?
  2. Mega yngri en 13 ára ekki nota þau?
  3. Er skylda að nota hjálm?
  4. Eru sektarákvæði við brotum af einhverju ofantöldu?

https://www.solberg.is/rafhjolaflokkar/

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mið 15. Apr 2020 20:31
af chaplin
Ekki er öll vitleysan eins.

Mynd

Nú þarf bara að skutla 10" dekkjunum undir og hækka festinguna á hjólavagninum um 2-3 cm. :japsmile

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mið 15. Apr 2020 20:39
af GuðjónR
Hefur VSK niðurfellingin í ársbyrjun skilað sér í lægri verðum?

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mið 15. Apr 2020 20:42
af kunglao
hvað kostar svona græja ?

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Mið 15. Apr 2020 22:10
af hagur
GuðjónR skrifaði:Hefur VSK niðurfellingin í ársbyrjun skilað sér í lægri verðum?

Já. Mi hjólin hafa hríðlækkað í verði, hluti af því hlýtur að vera VSK niðurfellingu að þakka.

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fim 16. Apr 2020 11:09
af chaplin
GuðjónR skrifaði:Hefur VSK niðurfellingin í ársbyrjun skilað sér í lægri verðum?

Já. Pro kostaði 99.990 kr fyrir áramót og non-Pro kostaði um 69.990 kr. Nokkrar verslanir voru með tilboð rétt fyrir áramót en almennt þá voru Xiaomu hjólin frá 70-100. Í dag er hægt að fá non-Pro hjólið á 49.990 kr og Pro hjólið á 78.000 kr, verðið á Pro hjólinu fór lægst niður í 69.990 kr en hefur hækkað vegna gjaldeyris.

kunglao skrifaði:hvað kostar svona græja ?

Non-Pro: 49.9-59.990 kr
Pro: 78.-89.990 kr
Hjólavagn: 45.-200.000 kr.

:)

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fim 16. Apr 2020 12:34
af GuðjónR
chaplin skrifaði:

Takk fyrir infóið, hika er sama og tapa.
Var að spá í þessu um helgina en Síminn var að selja PRO týpuna á 64.990.-

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fim 16. Apr 2020 17:33
af chaplin
GuðjónR skrifaði:Takk fyrir infóið, hika er sama og tapa.
Var að spá í þessu um helgina en Síminn var að selja PRO týpuna á 64.990.-

Nova að selja þau á 69.990 kr. :o

https://www.nova.is/barinn/dotabud/rafskuta-pro

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fim 16. Apr 2020 23:41
af Alfur
Á einhver svona til að selja?

ColdIce skrifaði:
chaplin skrifaði:Smá update! Var að klára fyrsta rúntinn á þessu ári á M365 Pro hjólin.

Ég vill helst aldrei aftur þurfa að skipta um dekk á þessum hjólum því það er glatað verkefni, ég passa því upp á það að það sé alltaf nóg loft í dekkjunum þar sem það virðist vera besta leiðin til að forðast það að slöngurnar springi.

Vandamálið við það er að framlengingin sem fylgir með hjólinu hleypir oft slatta af lofti úr dekkinu þar sem hún einangrar ekki nægilega milli stúts og ventils, en síðan er líka gripið á endanum ekkert spes þannig það getur verið erfitt að losa stútin af ventlinum.

Rétt áður en ég byrjaði að pumpa í dekkið mundi ég eftir því að ég keypti Xiaomi loftpumpu fyrir nokkrum mánuðum sem ég hafði ekki fengið tækifæri til að prufa. [Link]

Mynd

Þetta er mesta snilld ég hef keypt, ever. Plögga henni á dekkin, hún segir hvað það er mikill þrýstingur á dekkinu og með einum smelli pumpar hún nákvæmlega þeim þrýsting sem ég vill og ekki 1 pund sleppur þegar ég losa hana af. Það tók um 5-10 sekúndur að fara úr 21 PSI í 45 PSI. Engin þörf á framlengingu, millistykki eða neinu slíku. Virkar líka á bíldekk og bolta (stútur fylgir með).

Ég hef ekki hugmynd um hvað rafhlaðan dugar lengi, hvað hún er lengi að pumpa í bíldekk, bolta o.s.frv. en hún gengur fyrir rafhlöðu, lítil og meðferðarleg - 100% snilld.

Kærar þakkir fyrir þetta!
Búinn að henda í pöntun :)

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 17. Apr 2020 11:37
af GuðjónR
chaplin skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Takk fyrir infóið, hika er sama og tapa.
Var að spá í þessu um helgina en Síminn var að selja PRO týpuna á 64.990.-

Nova að selja þau á 69.990 kr. :o

https://www.nova.is/barinn/dotabud/rafskuta-pro

Ekki til, en fer ekki að koma ný týpa nú á nýju ári?

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 17. Apr 2020 12:52
af chaplin
Alfur skrifaði:Á einhver svona til að selja?

Mii.is eru held ég að vinna í því að flytja inn pumpuna. :)

GuðjónR skrifaði:Ekki til, en fer ekki að koma ný týpa nú á nýju ári?

Ah, fannst eins og hún hefði verið til. En það er spurning, mér finnst ekki líklegast það væri þá eitthvað annað en incremental bæting, stærstu ókostirnir við non-Pro hjólið voru ekki á Pro hjólinu mínu en það gæti verið að nýjustu útgáfurnar af non-Pro séu ekki lengur með þá galla. :)

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 24. Apr 2020 18:22
af Viggi
Einn lítill aukahlutur en algjört möst í búðarferðirnar. Getur lodað vel á þetta

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 01. Maí 2020 00:46
af Stuffz
í gær..

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 01. Maí 2020 12:09
af Stuffz
Ég get ekki gert við dekkið á Xiaomi M365 hlaupahjólinu mínu útaf ónýtri skrúfu sem er föst, eitthverjar hugmyndir?

Mynd

Re: [YouTube / Review] Xiaomi M365 rafmagnshlaupahjól

Sent: Fös 01. Maí 2020 13:22
af chaplin
Besta ráð sem ég get gefið varðandi að skipta um dekk er að setja högg á sexkantana og lyklana sem þið notið til að losa skrúfu, bolta og rær.

T.d. rærnar sem halda dekkjunum, setja lykil utan um rærnar og nota hamar til að berja á lykilinn til að losa rærnar.

Til að losa skrúfna á myndinni er hægt að nota hamar og slá létt á sexkantinn eða gera "snöggan" rykk, annars endur þú líklegast með að strípa hausinn. Þú getur þó reynt að ná henni úr með því að hamra 1mm stærri sexkant í hausinn, ef þú nærð smá gripi þá áttu að geta að losað hana. Ef það gengur ekki þá get ég lánað þér bolt extractor. :)