appel skrifaði:quote
En það er ekki verið að skattleggja fjölmiðla um 90% eða neitt slíkt, eingöngu að segja þeim, og öllum öðrum fyrirtækjum, ekki safna upplýsingum um notendur sem þið hafið ekkert við að gera (annað en að selja), og þær upplýsingar sem þið vistið, vistið þær upplýsingar á öruggum stað þannig ef það er brostist inn til ykkar, að þá bitnar það ekki á notendum.
Bókstaflega ekkert annað. Það er ekki verið að níðast á fréttamiðlum, þessi lög gilda um alla, og ef Google og Facebook geta fylgt þessum lögum að þá hafa fréttasíður bókstaflega enga afsökun. Aftur á móti, án GDPR hafa samfélagsmiðlar eins og Facebook notað upplýsingar um þig, til að stýra þínum hugsunum með því að bókstaflega vita allt um þig og birta því fyrst og fremst fréttir sem höfða til þín.
FB: "Við vitum að þú elskar Donald Trump, svo hér er frétt um hvað Hillary sé vond kona!"
(og öfugt..)Þegar þú ferð td. inn á Yahoo, ertu samstundis að samþykkja það að þeir séu að fara deila upplýsingum um þig með yfir 100 fyrirtækjum (
heimild -
GDPR Hall of Shame), er það eðlilegt?
Varðandi Vaktina, að þá getur vel verið að Vaktin (eða uppsetning phpBB) sé í góðu lagi, við þurfum ekki að gefa upp kortanúmer, kennitölu, nafn á kettinum eða neitt slíkt, eingöngu notendanafn, lykilorð og póstfang. Kannski það eina sem þarf að breyta er hvernig þessar upplýsingar eru vistaðar ef þær eru núna allar í sama gagnagrunni og/eða töflum.
En verum bara sammála að við séum ósammála vinur, það er líka bara allt í lagi.