Síða 1 af 2

Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 17:28
af GuðjónR
Jæja, ég lét verða að því og fór ALLA LEIÐ!
Kíkti á félagana í Tölvulistanum og labbaði út með geimskipið.
Konan var ekki sátt, þ.e. finnst þetta forljótt en var samt fljót að fyrirgefa þegar hún fann hraðabústið á netinu.

001.jpg
001.jpg (941.2 KiB) Skoðað 5633 sinnum
002.jpg
002.jpg (939.36 KiB) Skoðað 5633 sinnum
003.jpg
003.jpg (897.51 KiB) Skoðað 5633 sinnum
004.jpg
004.jpg (974.14 KiB) Skoðað 5633 sinnum
005.jpg
005.jpg (878.91 KiB) Skoðað 5633 sinnum
006.jpg
006.jpg (930.46 KiB) Skoðað 5633 sinnum
007.jpg
007.jpg (1.05 MiB) Skoðað 5633 sinnum


Routerinn er með tvo aðskilda 5GHz senda og einn 2.4GHz sendi.
Ég set hann þannig upp að gamla TV tölvan og iPhone4s nota 2.4GHz sendinn.
Spjaldtölvur og sjónvarp deila öðrum 5GHz sendinum meðan fartölvurnar deila þeim þriðja.
Routerinn hefur fídus sem kallast "Tri-Band Smart Connect" sem velur sjálfvirkt hröðustu tenginguna fyrir hvert tæki.
Ég hef ekki ennþá prófað Tri-Band Smart Connect. Ég stillti tækin sjálfur á sendana.

Svo gerði ég hraðatest, er með tölvu í þriggja metra fjarlægð og næ sama internet hraða þráðlaust og ég næ á ethernet kapli.
Laptop tölvuna prófaði ég svo inn í stofu sem er líklega í 12 metra fjarlægð og tveir veggir og eldhúsinnrétting á milli.

Þráðlausa netkortið
Screenshot 2016-03-03 15.26.11.gif
Screenshot 2016-03-03 15.26.11.gif (102.8 KiB) Skoðað 5633 sinnum

Þráðlaus nethraði í þriggja metra fjarlægð (sami hraði og á ethernet)
Mynd

Þráðlaus nethraði í 12 metra fjarlægð með tvo veggi og eldhúsinnréttingu á milli routers og tölvu
Mynd


Stjórnborðið á routernum er það flottasta sem ég hef séð.
Það er hægt að skoða hvað hvert tæki er að gera, hvaða síður viðkomandi tæki er að heimsækja oftast og þar með bandvídd.
Hægt er að læsa ákveðnum síðum sem er fínt ef maður er með börn á heimilinu.

Screenshot 2016-03-03 16.45.35.gif
Screenshot 2016-03-03 16.45.35.gif (93.93 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 16.36.19.gif
Screenshot 2016-03-03 16.36.19.gif (116.85 KiB) Skoðað 5633 sinnum

Svo er hægt að skoða bandvíddina sem hvert tæki tekur til sín, bæð í rauntíma eða yfir tímabil.
Screenshot 2016-03-03 16.43.57.gif
Screenshot 2016-03-03 16.43.57.gif (135.93 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Þráðlausa netkortið.gif
Þráðlausa netkortið.gif (7.58 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 15.28.27.gif
Screenshot 2016-03-03 15.28.27.gif (96.99 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 15.28.15.gif
Screenshot 2016-03-03 15.28.15.gif (112.29 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 15.27.16.gif
Screenshot 2016-03-03 15.27.16.gif (104.31 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 15.26.39.gif
Screenshot 2016-03-03 15.26.39.gif (107.21 KiB) Skoðað 5633 sinnum
Screenshot 2016-03-03 17.07.10.gif
Screenshot 2016-03-03 17.07.10.gif (20.77 KiB) Skoðað 5633 sinnum



Niðurstaða; þetta er "alvöru" router. Líklega overkill fyrir venjuleg heimili enda hugsaður fyrir fyrirtæki eða nörda eins og okkur.
Routerinn er stór og þungur, minni routerar eru oft í kringum 400gr á þyngd meðan þessi er yfir 1.8kg.
Eini mínusinn er útlitið, þó það sé reyndar smekksatriði, mér finnst hann venjast mjög vel.
Ef þú vilt getað stjórnað umferðinni á netinu eða fylgst nákvæmlega með öllu sem er að gerast þá er þetta líklega tæki fyrir þig, einnig ef þú ert með mörg tæki sem þurfa netaðgang þá mun þessi fara létt með það.
Einkun: 10/10.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 19:21
af hagur
Shiiii þetta er græja.

Ég er þó sjálfur fylgandi því að hafa minimalískt look á svona apparötum. Þetta ætti bara að vera hvítt og looka eins og reykskynjari, eins og Unify AP-inn sem ég er með:

image.jpg
image.jpg (1.54 MiB) Skoðað 5561 sinnum

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 19:57
af mundivalur
Þetta eru frábærar græjur ég er með RT-AC660U :)

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 21:25
af Throstur
Ath. að með því að kveikja á AiProtection fídusinum þá sendirðu Trend Micro allar upplýsingar um netnotkun heimilisins.

https://www.reddit.com/r/privacy/commen ... g_history/
http://www.flexhub.org/forum/index.php?topic=788.0

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 21:32
af zedro
Hundrað þúsund kall! OhMyGosh!!! :shock:

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 21:54
af arons4
Hahahaha hann er meira að segja forljótur áður en loftnetin eru komin á.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 22:06
af ronneh88
ertu að segja mér að þetta sé ekki dauð könguló?

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 22:49
af nidur
GuðjónR skrifaði:Jæja, ég lét verða að því og fór ALLA LEIÐ!


Til hamingju!, flott review. Asus er alveg með þetta.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 22:54
af GuðjónR
Svo ég kommenti stuttlega á ykkur alla í einu án þess að tilvitna þá er ég alveg sammála að Unify AP er miklu "fallegri" og ef ykkur finnst hann vera eins og dauð könguló þá ættið þið að sjá hann með loftnetin niður, lifandi könguló.
Hann er dýr, mjög dýr en það eru reyndar fleiri hlutir, t.d. finnst mér svakalegt hvað fólk eyðir í snjallsíma, mörgum finnst ekkert athugavert við að endurnýja 150k síma einu sinni til tvisvar á ári, ég ætla að vona að þessi router verði ennþá í fullu fjöri eftir fimm ár. Ég er ennþá með iPhone4s sem ég keypti árið 2011. ;)

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 22:59
af AntiTrust
Ég veit ekki hvað mér finnst um lúkkið á honum. Sjúklega brútal en ekki alveg þetta minimalíska look sem ég leitast eftir. Þessi gröf eru samt næstum 100k virði.

Flott review!

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 23:02
af russi
Ljótur er hann að utan, en innri fegurð hans er gull

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fim 03. Mar 2016 23:13
af kjartanbj
Flottur þessi, mér fannst nóg að kaupa mér Netgear Nighthawk AC1900 router í dag á 25þúsund , ætlaði reyndar að kaupa mér Asus router en sá fékkst ekki í minni stuttu leit þannig endaði bara á að kaupa mér ódýrari router, sá virðist samt gera sitt og ræður við 500mbit tenginguna og er víst að koma best út í að ráða við Gigabit þegar þar að kemur , gott step up allavega frá því sem ég var með fyrir 2.4ghz wifi ap sem var ekki að gera sig

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 09:35
af dori
Hann er stærri en ég hafði ímyndað mér.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 10:08
af GuðjónR
dori skrifaði:Hann er stærri en ég hafði ímyndað mér.

Hann er huge, spennirinn sem fyglir (mynd 004.jpg) er örlítið minni en AppleTV3.
Var að mæla, 33cm x 33cm x 17cm (lengd x breidd x hæð) lengstu mál, þ.e. útfyrir loftnet og frá borði að enda loftnets.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 11:34
af dori
GuðjónR skrifaði:
dori skrifaði:Hann er stærri en ég hafði ímyndað mér.

Hann er huge, spennirinn sem fyglir (mynd 004.jpg) er örlítið minni en AppleTV3.
Var að mæla, 33cm x 33cm x 17cm (lengd x breidd x hæð) lengstu mál, þ.e. útfyrir loftnet og frá borði að enda loftnets.

Já. Einhvernvegin hélt ég alltaf að þetta væri svona rúmlega Mac mini. Hef ekkert verið að skoða review heldur bara myndir úr vefverslunum þar sem það er ekkert til viðmiðunar.

Þetta hlýtur samt að venjast, til hamingju með gripinn. Alveg smá öfund héðan til að vera heiðarlegur (útaf vinnslugetu, ég myndi örugglega ekki meika þetta uppá borði hjá mér og konan tæki það ekki í mál).

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 11:52
af GuðjónR
Útlitið venst, sérstaklega þegar maður finnur hvað þetta er skemmtileg græja þá gleymir maður útlitinu.
Það er endalaust hægt að stilla hann og Wi-FI hraðinn og pingið er 100% á pari við CAT5 ... how awesome is that!

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 12:06
af Halli25
er ekki hægt að smella honum uppá vegg? kannski hann verði ekki eins plássfrekur þannig :)

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 12:22
af GuðjónR
Halli25 skrifaði:er ekki hægt að smella honum uppá vegg? kannski hann verði ekki eins plássfrekur þannig :)

Jú, er búinn að lofa konunni að fara með henni í IKEA og kaupa skáp c.a. 190 cm á hæð fyrir prentara, scanna, pappír og tilfallandi dót.
Routerinn verður síðan settur ofan á skápinn, þar með mun hann hverfa úr sjónlínu flestra. Ætla svo að tengja prentarann í USB port á router þá geta allar tölvur á lani nýtt hann. Bara snilld!.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 13:16
af worghal
Er hann ekki með 500 fm range líka?
Hvernig er hann þegar þú ert úti í garði hjá nágrannanum? xD

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 15:49
af braudrist
Besta líka við Asus routerana er að það eru firmware uppfærslur á svona viku fresti liggur við. Svo geturu líka kíkt á Merlin's Tower fyrir custom ROMs fyrir routerinn.

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 16:06
af GuðjónR
worghal skrifaði:Er hann ekki með 500 fm range líka?
Hvernig er hann þegar þú ert úti í garði hjá nágrannanum? xD


Ég hugsa að SSID sjáist um hálft þorpið, 500m2 svæði sem hann coverar, ef ég set hann út í glugga þá kemst ég örugglega á netið niðrí fjöru.

braudrist skrifaði:Besta líka við Asus routerana er að það eru firmware uppfærslur á svona viku fresti liggur við. Svo geturu líka kíkt á Merlin's Tower fyrir custom ROMs fyrir routerinn.

Hann fór sjálfkrafa í firmware uppfærslu í fyrsta sinn sem ég loggaði mig inná hann.
Læt hann sjálfan um þetta bara, það er svo flott stjórnborð á honum að ég myndi ekki vilja neitt annað, sérstaklega ekki 3d party sem myndi skemma ábyrgðina á honum.
Og ef einhver hefur áhuga þá er eitt eintak eftir í Tölvulistanum, þeir eru að verða uppseldir!! :happy

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Fös 04. Mar 2016 18:43
af jericho
Flottur þráður!

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Lau 05. Mar 2016 19:13
af GuðjónR
jericho skrifaði:Flottur þráður!

Takk fyrir það. :)

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Lau 05. Mar 2016 19:33
af rickyhien
Mynd

Re: Asus RT-AC5300 unboxing and review

Sent: Lau 05. Mar 2016 22:48
af joker
Takk fyrir góðan þráð