Síða 1 af 1

[Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 20:05
af chaplin
Ég lét verða af því og ákvað að stökkva á Galaxy S4!

Helstu upplýsingar um Samsung Galaxy S4 (i9505):
- Full HD Super AMOLED skjár.
- Gorilla Glass 3.
- 441 PPI!
- 130 grömm (3 grömmum léttari en S3).

- Snapdragonn 600 kubbasett.
- Fjögra kjarna Krait @ 1.9 GHz.
- 2GB vinnsluminni.
- 13 MP myndavél.
- Full HD upptaka @ 30FPS.
- Þráðlaust a/b/g/n/ac.
- 4G net!
- microUSB rauf sem styður allt að 64GB.

Fídusar:
Ég ætla að fara aðeins yfir fídusa símans á meðan ég læri á þá.


Mynd

Myndir incoming!

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 20:05
af chaplin
Byrjum á því að opna kassann, augljósalega e-h environmental theme.

Mynd

Á kassanum er að finna: i9505 síma, 2600 mAh rafhlöðu, handbók, ábyrgðarskírteini, hleðslutæki og earbuds (m. 8 mismunandi gúmmíhausum).

Mynd

Samanburður á S3 (tv) og S4 (th). Símanir eru nákvæmlega jafn langir, S3 er þó örlítið breiðari og þykkari.

Mynd

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 20:06
af chaplin
Tekið frá!

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 20:21
af ZoRzEr
Haba haba! Spennt.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 22:48
af raRaRa
Hvaðan keyptiru hann og afhverju hvítan? :)

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 23:26
af chaplin
raRaRa skrifaði:Hvaðan keyptiru hann og afhverju hvítan? :)

Fríhöfninni, finnst hann flottari hvítur. ;)

Síminn er annars fáranleg snilld, búinn að fikta í honum síðan ég fékk hann, get ekki hætt!

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 23:28
af demaNtur
Mátt endinlega segja mér hvernig batteríið dugar, svona miðað við þokkalega notkun (tónlist, vafra á netinu og annað)

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Sun 05. Maí 2013 23:49
af chaplin
demaNtur skrifaði:Mátt endinlega segja mér hvernig batteríið dugar, svona miðað við þokkalega notkun (tónlist, vafra á netinu og annað)

Sýnist menn vera að ná um 2 sólahringum í öflugri notkun, virðist vera stefna á það sama hjá mér.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 00:39
af pattzi
Hvernig er batterýendingin?

Sent from my GT-I9105P using Tapatalk 2

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 00:49
af chaplin
3 klst 12 min @ 65%
- 2 klst 7 min screen
- allt virkt (gos, 3g, wifi, air gesture, beam, nfc, air view, mikið download)

Gamli S2 væri löngu orðinn straumlaus.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 00:51
af pattzi
Góð ending :)



Sent from my GT-I9105P using Tapatalk 2

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 00:54
af chaplin
So far, so good. Er þó auðvita bara á fyrsta cycleinu. ;)

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 01:19
af pattzi
Já datt það í hug , èg keypti minn bara í gær þannig sama hèr

Sent from my GT-I9105P using Tapatalk 2

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 02:13
af angelic0-
konunni tókst að rústa S3-inum sem ég gaf henni... lítur út fyrir að tryggingarnar borgi hann út...

Hvað kostaði þessi í fríhöfninni :?:

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 08:14
af KermitTheFrog
Eitt sem mér fannst slappt í pökkuninni á mínum (minn er svartur) að það aukahlutirnir eru allir hvítir...

Annars reyndi ég að hlaða minn með gamla S2 hleðslutækinu sem er 700 mA en fannst það taka full langan tíma. Þá skoðaði ég tækið sem fylgdi með og sá að það var 2000 mA, hehe. Annars er síminn svona ~2 klst að full hlaða sig hjá mér.

Annars eru einhver batterí log í S4 þræðinum hér á spjallinu.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Mán 06. Maí 2013 20:27
af chaplin
Fyrsta cycleið. 19 klst 13 mín - Rúmlega 4 klst með skjáinn í mestu birtu, gps, 3g, wifi, air gesture, beam, nfc, air view, mikið download. Í idle er per % um 30-45 mín.

Mynd

Mynd

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 13:06
af olafurfo
Til hamingju með símann!

Ein spurning, hvað kostaði gripurinn í fríhöfninni ?

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 13:20
af chaplin
olafurfo skrifaði:Til hamingju með símann!

Ein spurning, hvað kostaði gripurinn í fríhöfninni ?

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2


99.990 Kr minnir mig. Svo þarf að borga vsk. sem er 25,5% af 11.990 kr.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 14:50
af dori
chaplin skrifaði:
olafurfo skrifaði:Til hamingju með símann!

Ein spurning, hvað kostaði gripurinn í fríhöfninni ?

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2


99.990 Kr minnir mig. Svo þarf að borga vsk. sem er 25,5% af 11.990 kr.

Má hver hlutur ekki bara kosta 44 þúsund þannig að það væri vsk af 55990?

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 15:07
af Stutturdreki
Það var verið að afnema hámark á einstökum hlutum, nú er það bara heildar summan sem skiptir máli.

Þá er bara að muna að gefa símann upp svo hann verði ekki gerður upptækur eins og úrið fræga :)

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 15:11
af MatroX
Stutturdreki skrifaði:Það var verið að afnema hámark á einstökum hlutum, nú er það bara heildar summan sem skiptir máli.

Þá er bara að muna að gefa símann upp svo hann verði ekki gerður upptækur eins og úrið fræga :)

það var ekki afnumið það var bara hækkað upp í minnir mig 88þús

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 15:13
af chaplin
MatroX skrifaði:það var ekki afnumið það var bara hækkað upp í minnir mig 88þús

Correcto!

.. held ég.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 15:26
af Stutturdreki
MatroX skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:Það var verið að afnema hámark á einstökum hlutum, nú er það bara heildar summan sem skiptir máli.

Þá er bara að muna að gefa símann upp svo hann verði ekki gerður upptækur eins og úrið fræga :)

það var ekki afnumið það var bara hækkað upp í minnir mig 88þús


Sem er sama upphæð og heildar upphæð varnings sem má taka með sér tollfrjálst.

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 15:58
af dori
Ég fylgist svo lítið með þessu... Ég man bara eftir frétt um að hámarkinu hefði verið bætt við aftur af ástæðulausu þó að planið hefði alltaf verið að taka það alveg út.

http://www.visir.is/baettu-hamarkinu-af ... 3702219927

Re: [Unboxing] Samsung Galaxy S 4 [i9505]

Sent: Þri 07. Maí 2013 19:29
af ZoRzEr
Er hann til í fríhöfninni ennþá ? Elko í fríhöfn listar hann ekki á síðunni.

Er einhver önnur raftækjabúð í Leifsstöð ?