Síða 1 af 1

Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Mið 25. Júl 2012 23:53
af GuðjónR
Ég bara varð að taka myndir af þessum merka viðburði.
Ég elska dótadaga!
Þessi flotti diskur fæst í Start.is

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:02
af Klaufi
Þetta er svona eins og þegar ég gef kellingunni gjafir, "gleymi" verðmiðanum á :lol:

Til hamingju! :happy

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:05
af GuðjónR
hehehe ég nennti ekki að plokka hann af :)
Og takk ;)

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:28
af Tiger
Verður gaman að sjá hvenær verðlækkunin sem Intel setti á alla sína SSD diska um daginn skili sér til íslands. 70.000 fyrir disk sem kostar 250$ úti er nátturulega útúr kú.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:33
af bulldog
start.is er heldur ekki ódýrasta búðin....

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:37
af AntiTrust
bulldog skrifaði:start.is er heldur ekki ódýrasta búðin....


Eru skv. verðvaktinni með bestu verðin á flestum Intel diskunum.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 00:51
af GuðjónR
Þó að Intel droppi verðum hjá sér einhverntíman í ágúst þá gerist það ekki hérna daginn eftir.
Ég nenni ekki að bíða til jóla eftir smá verðlækkun :megasmile
Fyrir utan það að krónan gæti hrunið á meðan og dollarinn farið í 260 kr. ...ekkert öruggt á þessu skeri.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 01:03
af Minuz1
AntiTrust skrifaði:
bulldog skrifaði:start.is er heldur ekki ódýrasta búðin....


Eru skv. verðvaktinni með bestu verðin á flestum Intel diskunum.


Það er ekki nóg að vera með besta verðið, það verður að vera auglýst einhverstaðar! boooyaaaa!

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 01:27
af Gúrú
Minuz1 skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
bulldog skrifaði:start.is er heldur ekki ódýrasta búðin....

Eru skv. verðvaktinni með bestu verðin á flestum Intel diskunum.

Það er ekki nóg að vera með besta verðið, það verður að vera auglýst einhverstaðar! boooyaaaa!


Og til að auglýsa það þyrftu þeir að hækka verðin. :japsmile

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 09:31
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Þó að Intel droppi verðum hjá sér einhverntíman í ágúst þá gerist það ekki hérna daginn eftir.
Ég nenni ekki að bíða til jóla eftir smá verðlækkun :megasmile
Fyrir utan það að krónan gæti hrunið á meðan og dollarinn farið í 260 kr. ...ekkert öruggt á þessu skeri.


Þetta er ekkert að fara að gerast í ágúst, Newegg búnir að lækka svo til alla sína fyrir svolitlu síðan (and you know it) þannig að retail price frá Intel er þegar búið að lækka.

Og afhverju ekki að bíða til jóla, þú hafðir 180GB diskinn óopnaðan í pakkningum í marga mánuði áður en þú fékkst þér þennan í staðinn ;)

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 12:21
af KermitTheFrog
verslanir eru samt að öllum líkindum með gamlan lager sem þeir fengu á gamla verðinu svo það gæti alveg verið smá stund í lækkanir.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 12:52
af GuðjónR
KermitTheFrog skrifaði:verslanir eru samt að öllum líkindum með gamlan lager sem þeir fengu á gamla verðinu svo það gæti alveg verið smá stund í lækkanir.

Já pottþétt, lagerinn gufar ekki upp þó erlendir framleiðendur droppi verðum.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 12:55
af Tiger
Þess vegna verslar maður við verslanir sem hafa ekki lager og fá góðu verðin strax ;)

sorry Guðjón, ég bara varð :twisted:

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 13:03
af GuðjónR
Tiger skrifaði:Þess vegna verslar maður við verslanir sem hafa ekki lager og fá góðu verðin strax ;)

sorry Guðjón, ég bara varð :twisted:

Ég ætla ekki að svara þessu því þá gæti einhver geðveill sækópad kært mig fyrir meiðyrði.

....

En alvöru verslunum til varna þá langar mig að benda á rangfærlsurnar þínar.

Hér er diskurinn sem þú segir að verðin séu út úr kú.
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6820167088

Það er pottþétt að þegar start keypti hann þá kostaði hann $300 eða meira
Og ef þú reiknar:
$300 - $350 x130 = 39000-45500
með vsk: 49000-57000

þá vantar flutnings kostnað, tollskýrlsu gjöld. etc.
Þannig að álagning á svona disk er innan við 10k, og fyrir þann pening þarf að reka verslun borga starfsólki laun OG veita "alvöru" ábyrgð.
Ábyrgð sem er fengin með því að taka á hlutum en ekki kaupa nýjar kennitölur.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 13:09
af emmi
Það má ekki endilega gera ráð fyrir að verslanir séu að versla við Newegg eða USA á annaðborð. Þær verslanir sem ég hef spurt kaupa langflestar frá Evrópu og þar eru verðin ekki eins hagstæð og í USA.

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Fim 26. Júl 2012 13:16
af Klemmi
emmi skrifaði:Það má ekki endilega gera ráð fyrir að verslanir séu að versla við Newegg eða USA á annaðborð. Þær verslanir sem ég hef spurt kaupa langflestar frá Evrópu og þar eru verðin ekki eins hagstæð og í USA.


Satt og rétt, og jafn vel þó pantað sé frá birgjum í USA er ekki sjálfsagt að þeir jafni eða toppi verðin hjá NewEgg :thumbsd

Re: Intel® SSD 520 Series 240GB

Sent: Þri 07. Ágú 2012 09:21
af emmi
Þessi sami diskur (Intel 520 240GB) kostar núna 49k í Tölvutækni.