Jæja félagar, fyrsta unboxing/reviewið.
Í gegnum tíðina þá hef ég eytt subbulegri upphæð af peningum í rubber dome lyklaborð sem hafa ekki tekið nema 1-2 ár í að slappast.
Fyrir nokkrum mánuðum rakst ég á lausn, Mekanísk lyklaborð. Mekanísk lyklaborð eru, má segja, með actual takka, frekar en hnappa sem þú ýtir niður á gúmmiplötu.
Það eru til ýmsar gerðir af tökkum fyrir þessi lyklaborð, brown, blue, black, white og red cherry mx switches, 'bucking springs' rofar og fleiri týpur.
Það sem varð fyrir valinu hjá mér voru cherry brown rofar, ástæðan fyrir því er að þeir eru eru ekki með 'click' hljóðið og með smá æfingu getur maður silenceað ásláttinn, með að sleppa því að botna takkann, og einnig eru þeir taldir einna bestir ef maður er 50/50 í gaming/typing.
Anyways! Í morgun barst mér pakki:
(tók jafn langan tíma að fá pakkan frá Bretlandi til Íslands og það tók hann að komast heim til mín eftir að hann kom til landsins.)
Framleitt í Taiwan, hence hellingur af óskiljanlegu babbli.(fyrir mér)
Ennþá meira af óskiljanlegu babbli á bækling.
Smátt og kynþokkafullt.
Merkilega bjartar díóðurnar, ekki að það eigi eftir að loga mikið á þeim.
Cherry brown rofarnir.
Tilfinningin að skrifa á þetta borð er svakaleg. Ekki einu sinni á sama leveli og rubber dome lyklaborðin sem maður er vanur.
Jæja, þá er kominn tími á 'OTAKU' pakkann.
h0h0
Tools of the trade, keycap pullerinn til vinstri, snilldargræja til að rífa takka upp þægilega og örugglega, USB > PS2 adapterinn, sem gefur borðinu NKRO(N-key rollover), get ýtt á eins marga takka í einu og hendur, tær og nef leyfir, og þeir registera allir. Og svo að sjálfsögðu rauði ESC takkinn, sem Bruce frá Keyboardco sendi með pakkanum af einskærri góðmennsku.
Útlitið á borðinu eftir góða ca. klst af föndri yfir Futurama.
Það er ekkert komin svakaleg reynsla á þetta borð hjá mér, en ég er strax farinn að kvíða því að hætta að skrifa þennan þráð, þetta borð er það girnilegt í áslætti.
Verðið var ca. 30þús komið hingað heim með öllu saman, borðinu, blank tökkunum og keycap pullernum, pantað af http://www.keyboardco.com, einnig flottir gæjar sem vinna þar, skipti engu máli hversu mörgum spurningum ég dældi á Bruce þar, ég fékk alltaf ómannlega fljótt svar.
Svosum erfitt að mæla með þessu borðum, þar sem verðið hræðir sennilega flesta frá þeim, sérstaklega þar sem það er enginn staður hérna heima sem selur þetta og þal mjög erfitt að fá að prófa áður en maður pantar.
En hversu mikið eru menn ekki að eyða í Logitech og Razer G4M1NG lyklaborð?
Það eru allt rubber dome lyklaborð, sem standast þessum mekanísku borðum engan vegin snúning imo.
Vona að ég hafi náð að vekja forvitni hjá einhverjum með þessari predikun.
Endilega dembið á mig commentum/spurningum.
Jimmy.
Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
-
- Vaktari
- Póstar: 2327
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 56
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
flottur esc takki en ég gæti alldrei verið með borð sem stendur ekkert á, þótt ég kunni á alla takkana utanaf. fynnst það bara betra :S
en þú keyptir þér 2 lyklaborð og færðir takkana á milli? eða er þetta bara til að halda tökkunum?
en þú keyptir þér 2 lyklaborð og færðir takkana á milli? eða er þetta bara til að halda tökkunum?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2766
- Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
- Reputation: 123
- Staðsetning: FL410
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Gunnar skrifaði:flottur esc takki en ég gæti alldrei verið með borð sem stendur ekkert á, þótt ég kunni á alla takkana utanaf. fynnst það bara betra :S
en þú keyptir þér 2 lyklaborð og færðir takkana á milli? eða er þetta bara til að halda tökkunum?
Non-printed Keytop for Majestouch - Jebb mér sýnist það miða við myndina.
Kísildalur.is þar sem nördin versla
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Jébb, keypti bara sér blank takka.
Óþægilegt til að byrja með en maður er enga stund að venjast þessu, og skrifar hraðar fyrir vikið
Óþægilegt til að byrja með en maður er enga stund að venjast þessu, og skrifar hraðar fyrir vikið
~
-
- /dev/null
- Póstar: 1403
- Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
- Reputation: 41
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Já helvíti magnað. Aldrei séð eða heyrt um neinn sem lætur flytja inn lyklaborð sérstaklega fyrir sig En auðvitað erum við allir geðveikir á okkar hátt.
Flott lýsing og góðar myndir segir allt sem segja þarf.
Vonandi virkar þetta betur en ruslið sem við öll hin erum greinilega að nota
Flott lýsing og góðar myndir segir allt sem segja þarf.
Vonandi virkar þetta betur en ruslið sem við öll hin erum greinilega að nota
13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
bara eitt sem er að þessu lyklaborði og það er að það er ekkert numpad :/
-
- /dev/null
- Póstar: 1403
- Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
- Reputation: 41
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
coldcut skrifaði:bara eitt sem er að þessu lyklaborði og það er að það er ekkert numpad :/
Segir maðurinn á MacBook vél
13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
-
- FanBoy
- Póstar: 744
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
- Reputation: 7
- Staðsetning: 104
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Keppnis
Intel Core i5 4690K @ ? GHz ♠ Custom water cooling ♠ Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
ZoRzEr skrifaði:coldcut skrifaði:bara eitt sem er að þessu lyklaborði og það er að það er ekkert numpad :/
Segir maðurinn á MacBook vél
hehehe good point...en það er bara það sem þarf að sætta sig við ef maður vill nettar fartölvur En mundi aldrei blæða í rándýrt lyklaborð við borðtölvu sem er ekki með numpad
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Ég hefði svosum alveg getað keypt þetta borð með numpadi, en þetta compact look heillaði mig meira, fyrir utan það að ég nota numpadið nánast aldrei, nema í einhver sérhæfð excel fíaskó sem gerast freeekar sjaldan.
~
-
- Geek
- Póstar: 803
- Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 12:36
- Reputation: 6
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Ég sé heldur lítinn tilgang í því að vera með Numpad, ég nota þá örsjaldan. Lyklaborðið tekur bara meira pláss fyrir vikið, ef þú þarft nauðsynlega numpad þá er hægt að kaupa ódýra USB Numpads.
-
- Vaktari
- Póstar: 2392
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Reputation: 136
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Ég er ekki að skilja þessi lyklaborð, eru þau úr stáli, eða gúmmí ? hver er munurinn á þessu og venjulegu lyklaborði
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |
-
- /dev/null
- Póstar: 1403
- Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
- Reputation: 41
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
Er sjálfur með svona lyklaborð. Lífið virðist bara aðeins yndislegra eftir að ég byrjaði að nota það.
Tók svona 2-3 daga að venjast hljóðinu og hæðinni á lyklaborðinu en eftir það hef ég aldrei skrifað hraðar né betur.
Get lofað því að þú átt eftir að átta þig á muninum ef þú fengir að prófa eitt svona eða hugsanlega gamalt IBM borð sem fylgdu öllum tölvum hérna í gamla daga. Létt að ýta á alla takka og ákveðið "tikk" hljóð sem er mjög þægilegt. Fer betur með puttana á þér og gerir þér kleift að skrifa hraðar með smá æfingu.
Tók svona 2-3 daga að venjast hljóðinu og hæðinni á lyklaborðinu en eftir það hef ég aldrei skrifað hraðar né betur.
Get lofað því að þú átt eftir að átta þig á muninum ef þú fengir að prófa eitt svona eða hugsanlega gamalt IBM borð sem fylgdu öllum tölvum hérna í gamla daga. Létt að ýta á alla takka og ákveðið "tikk" hljóð sem er mjög þægilegt. Fer betur með puttana á þér og gerir þér kleift að skrifa hraðar með smá æfingu.
13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
OH MY GOD! MUST HAVE IT!
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 4
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Filco Majestouch Tenkeyless Tactile Touch 'OTAKU'
merkilegt að eiða pening í svona oldschool dót
ég á sennilega ein 10 mekanísk gömul lyklaborð inní geimslu.......þau eiga öll ákveðna hluti sameiginlegt
1. hávaði þegar maður pikkar
2. óþægileg að skrifa á þau
3. alltof hávaxnir takkarnir
annars hef ég aldrei séð svona nýtt mekanískt en ef það er eitthvað í líkingu við þetta gamla þá get ég engan vegin skilið ásóknina hjá þér í þetta. besta lyklaborð sem ég hef skrifað á er gigabyte gk-k7500 lyklaborð og mús combo........þráðlaust lágir takkar og.......engin hljóð svo að segja
en samt gaman að sjá að menn nenna svona og taka það sem þeir vilja, ekkert gaman ef allir eiga eins

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!