Síða 1 af 1

Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 12:11
af scarface
Fyrst tölvutek er hætt þá er engin samkeppni.

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 12:28
af arons4
Var tölvutek í samkeppni við einhvern annann en sjálfan sig? alltaf með langhæstu verðin.

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 12:32
af Mondieu
Ég verð nú að segja að það eru fáir geirar hér á landi þar sem það ríkir jafn mikil samkeppni og í tölvuvörum.
Fyrirtækin eru ekki að leggja mikið á vörurnar og það er ekki mikið svigrúm til að veita afslátt.
Brotthvarf Tölvuteks breytir örugglega sáralitlu um það.

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 12:35
af rapport
scarface skrifaði:Fyrst tölvutek er hætt þá er engin samkeppni.


Held að það sé fyrst og fremst miklu minna úrval og fyrir vikið þá upplifir maður það strax sem miklu minni samkeppni.

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 13:24
af pepsico
Býð 0 kr. í þessa skoðun (þar sem þetta er á Til sölu spjallborðinu).

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 15:20
af Hnykill
sakna benQ og Noctua frá þeim :/

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 16:18
af Viktor
Fært úr flokknum "Til sölu tölvuvörur" ](*,)

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 18:37
af worghal
scarface skrifaði:Fyrst tölvutek er hætt þá er engin samkeppni.

tölvutek gat vart verið tekið með sem einvherskonar samkeppni.
voru þeir einhverntímann með lægstu verðin?
annars er tölvubúðasamkeppnin ALLT of mikil á íslandi, en við höfum rugl mikið af búðum í harðri samkeppni.

Re: Samkeppni

Sent: Þri 09. Júl 2019 23:00
af appel
Svona lítur samkeppni út:

samkeppni.jpg
samkeppni.jpg (85.01 KiB) Skoðað 4411 sinnum

Re: Samkeppni

Sent: Mið 10. Júl 2019 09:46
af rapport
Mikil og virk samkeppni hefur þessi áhrif til lengdar

Re: Samkeppni

Sent: Mið 10. Júl 2019 10:20
af worghal
rapport skrifaði:Mikil og virk samkeppni hefur þessi áhrif til lengdar

við skulum ekki gleyma að vaktinni var kennt um þetta fyrir ekki svo löngu.
augljós verðsamanburður er slæmur fyrir reksturinn og samkeppnina :lol: :fly

Re: Samkeppni

Sent: Mið 10. Júl 2019 12:55
af Sydney
Hnykill skrifaði:sakna benQ og Noctua frá þeim :/

Ekki gleyma Fractal Design og Ducky.

Var með góðan afslátt hjá þeim sem fyrrum starfsmaður sem balancaði verðin nóg til þess að ég verslaði aðallega hjá þeim, þannig að ég er mjög leiður að sjá þá hverfa :(

Re: Samkeppni

Sent: Fös 12. Júl 2019 00:02
af jonfr1900
rapport skrifaði:Mikil og virk samkeppni hefur þessi áhrif til lengdar


Ekki á markaði sem er eðlilegur. Það er ekkert eðlilegt við íslenska markaðinn og skiptir þá engu hvar þú athugar stöðuna.

Re: Samkeppni

Sent: Fös 12. Júl 2019 08:00
af netkaffi
Ég var bara að fatta núna að það væri búið að loka BT Skeifunni, eða er það ekki? Ég vann sjálfur í BT Selfossi á sínum tíma, þetta var allt annar tími. Það kom nýtt dót í búðina á hverjum degi, og ekkert samskonar hefur verið í bænum síðan hvað varðar dýnamík. Þarna gastu fengið allan andskotan á einum stað, t.d. DVD spilara á 5 þúsund kall, miða á tónleika, og alltaf einhverjar furðulegar vörur eins og nýjan kassagítar frá Fender t.d. á 12 þúsund kall. Allt aðrir tímar. Maður hafði áhuga á mörgu og það var svakalega mikið af dóti sem þeir voru að selja. Núna er bara ein lítil Tölvulistinn sjoppa þarna sem er alveg moribund í samanburði.

Man líka eftir BT Hafnafirði enþá lengra aftur í tímann. Þar var einu sinni miðnætursala á Diablo 2 sem ég hjólaði í til að fá að kaupa hjá þeim PS/2 í USB millistykki. Alveg spes að hjóla í myrkrinu út í búð eftir miðnætti og kaupa þannig hérna heima.

BT var alltaf með mikið af events og einhverri svona tilraunastarfsemi, það var ákveðinn kúltúr í því sem er farinn. Þeir voru klárlega Nova þess tíma á Íslandi.

Re: Samkeppni

Sent: Fös 12. Júl 2019 08:28
af rapport
jonfr1900 skrifaði:
rapport skrifaði:Mikil og virk samkeppni hefur þessi áhrif til lengdar


Ekki á markaði sem er eðlilegur. Það er ekkert eðlilegt við íslenska markaðinn og skiptir þá engu hvar þú athugar stöðuna.


Ef það eru allir á markaðinum að maka krókinn þá er það ekki mikil og virk samkeppni.

Re: Samkeppni

Sent: Fös 12. Júl 2019 09:05
af appel
Vandamálið er að samkeppni er ekki bara búin að aukast, heldur er internet-verslun einnig orðin stór staðreynd. Ofan á það kemur líka sá kaldi veruleiki að PC tölvur eru búnar að dala í vinsældum í meira en áratug og sárafáir eru í raun að kaupa sér svona tæki. Fólk kaupir helst bara laptoppa, og það er líklega lítil framlegð í því.
Held að vaktin eigi lítinn þátt í að PC verslunum hafi hríðfækkað með árunum, þetta er bara þróunin.