Síða 1 af 3

Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Lau 30. Mar 2019 21:05
af Theraiden


Hefur einhver kynnt sér þetta, er ekkert sérstaklega hrifinn af hugmyndinni að það eigi eftir að grilla í manni heilann fyrir hraðara internet :?

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Lau 30. Mar 2019 22:20
af chaplin
Ekki hafa neinar áhyggjur, 5G er fullkomlega öruggt. :happy

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Lau 30. Mar 2019 22:26
af Theraiden
chaplin skrifaði:Ekki hafa neinar áhyggjur, 5G er fullkomlega öruggt. :happy


Hefurðu einhver gögn sem styðja þá fullyrðingu? (annað en frá FDA þar sem einu kröfurnar sem þeir gera til þráðlausar tækni sé sú að hún "brenni" mann ekki)

https://bioinitiative.org/wp-content/uploads/pdfs/BioInitiativeReport-RF-Color-Charts.pdf

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 00:26
af chaplin
Alls ekki taka því sem Bioinitiative skrifa sem heilögum sannleika - https://en.m.wikipedia.org/wiki/Bioinitiative_Report.

Það er lítið mál að finna heimildir fyrir því að jörðin sé flöt og að bólusetningar geti gert börn einhverf, en það þarf virkilega að hafa fyrir því að hunsa allar heimildir sem mæla gegn slíkum fullyrðingum. Tek það fram að Bioinitative vilja meina að með því að draga úr geislun í umhverfinu sé hægt að draga úr einkennum einhverfu.

Jónína Guðjónsdóttir (lektor í geislafræði) skrifaði stutta grein um hvort 5G gæti hugsanlega skaðað lífverur - https://www.visindavefur.is/svar.php?id=77060 - ef heimildirnar sem hún vísar í eru ekki sannfærandi að þá hugsa ég að ekkert sé eftir að sannfæra þig. :)

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 03:18
af asgeirbjarnason
Samkvæmt World Health Organization, á yfirlitssíðu sinni um farsímatengdar útvarpsbylgjur: „A large number of studies have been performed over the last two decades to assess whether mobile phones pose a potential health risk. To date, no adverse health effects have been established as being caused by mobile phone use.“

https://www.who.int/en/news-room/fact-s ... ile-phones
https://en.wikipedia.org/wiki/Mobile_ph ... and_health

Það koma öðru hvoru út rannsóknir sem benda til einhverra mögulegra heilsuspillandi áhrifa útvarpsbylgja en þær niðurstöður hafa aldrei verið tölfræðilega staðfestar í meta-analysis.

Auðvitað er ekki hægt að taka orði FDA og WHO sem einhverjum heilögum sannleik, en þessar stofnanir hafa samt líklega stærsta vægið og besta track-recordið í heiminum um vísindalega aðstöðu til heilsu og lækninga.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 11:02
af GuðjónR
Ég held að það sé hollt fyrir allt hugsandi fólk að hafa áhyggjur að þessari þráðlausu þróun.
Við höfum ekki hugmynd um það ennþá hvaða áhrif þessi stanslausa geislun á eftir að hafa, ekki bara á okkur heldur líka á aðrar viðkvæmari lífverur í vistkerfinu.
Ég tek öllum hughreystingum frá alþjóðastofnunum með fyrirvara, við vitum að peningar knýja þær áfram og við vitum hvaðan peningarnir koma.

Eruði nokkuð búin að gleyma því sem Einstein sagði?

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 11:33
af chaplin
Síðast þegar ég sá þetta quote þá fletti ég því upp og niðurstaðan var sú að það eru ekki til neinar heimildir að Einstein hafi sagt þetta, aftur á móti skrifaði rithöfundurinn Maurice Maeterlinck, “If the bee disappeared off the face of the earth, man would only have four years left to live.” í bókinni The Life of the Bee.

Ég er sammála því að það eigi að "question authority", en það að fara í samsæriskenningar og eingöngu að samþykkja rannsóknir sem "fitta" þinni skoðun er stórhættulegt. Þegar ég segi "þinni" skoðun þá á ég ekki við einhvern einn og ákveðin aðila heldur alla.

Endalaus hræðsluáróður, falsfréttir og fáfræði er undirstaða þeirra sem eru á móti bólusetningum, öfgahópa (hægri/vinstri) o.s.frv. - við skulum forðast það að stimpla 5G eitthvað sem það er ekki. :)

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 11:45
af ElGorilla
Ég spyr á móti eins og Theraiden, "Hefurðu einhver gögn sem styðja þá fullyrðingu?"

GuðjónR skrifaði:Ég held að það sé hollt fyrir allt hugsandi fólk að hafa áhyggjur að þessari þráðlausu þróun.
Við höfum ekki hugmynd um það ennþá hvaða áhrif þessi stanslausa geislun á eftir að hafa, ekki bara á okkur heldur líka á aðrar viðkvæmari lífverur í vistkerfinu.
Ég tek öllum hughreystingum frá alþjóðastofnunum með fyrirvara, við vitum að peningar knýja þær áfram og við vitum hvaðan peningarnir koma.

Eruði nokkuð búin að gleyma því sem Einstein sagði?

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 11:48
af vesley
chaplin skrifaði:Síðast þegar ég sá þetta quote þá fletti ég því upp og niðurstaðan var sú að það eru ekki til neinar heimildir að Einstein hafi sagt þetta, aftur á móti skrifaði rithöfundurinn Maurice Maeterlinck, “If the bee disappeared off the face of the earth, man would only have four years left to live.” í bókinni The Life of the Bee.

Ég er sammála því að það eigi að "question authority", en það að fara í samsæriskenningar og eingöngu að samþykkja rannsóknir sem "fitta" þinni skoðun er stórhættulegt. Þegar ég segi "þinni" skoðun þá á ég ekki við einhvern einn og ákveðin aðila heldur alla.

Endalaus hræðsluáróður, falsfréttir og fáfræði er undirstaða þeirra sem eru á móti bólusetningum, öfgahópa (hægri/vinstri) o.s.frv. - við skulum forðast það að stimpla 5G eitthvað sem það er ekki. :)


Sammála.
Ekki má gleyma því að þegar að fyrstu símskeytin bárust hér á Íslandi að bóndi að norðan hafði samband alveg brjálaður, hafði ein af beljunum hans fengið símskeyti í hausinn og drepist. Hann hélt að skeytin væru hylki sem væri skotið yfir landið.

Þegar stóra fjarskiptamastrið í kórnum í Kópavogi var sett upp bárust miklar kvartanir frá fólki í nágrenni, var fólk farið að fá hausverk og svima, svefnleysi og ógleði. Það sem þau vissu ekki var að það var ekki búið að klára uppsetningu mastursins og því ekki búið að kveikja á því.

Við erum rosalega hrædd við allt sem heitir rafmagn eða bylgjur og tökum öllum rugl sögum sem sannleik.
Það er ástæða fyrir því að fólk í fjarskiptageiranum eða þeir sem vinna á svæði sem krefst mikillar orku eins og álver t.d. eða allir rafvirkjar eru að drepast úr krabbameini fyrir fertugt. Eða bíddu... Nei heyrðu þeir eru einmitt ekki að drepast

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 11:57
af Theraiden
chaplin skrifaði:Síðast þegar ég sá þetta quote þá fletti ég því upp og niðurstaðan var sú að það eru ekki til neinar heimildir að Einstein hafi sagt þetta, aftur á móti skrifaði rithöfundurinn Maurice Maeterlinck, “If the bee disappeared off the face of the earth, man would only have four years left to live.” í bókinni The Life of the Bee.

Ég er sammála því að það eigi að "question authority", en það að fara í samsæriskenningar og eingöngu að samþykkja rannsóknir sem "fitta" þinni skoðun er stórhættulegt. Þegar ég segi "þinni" skoðun þá á ég ekki við einhvern einn og ákveðin aðila heldur alla.

Endalaus hræðsluáróður, falsfréttir og fáfræði er undirstaða þeirra sem eru á móti bólusetningum, öfgahópa (hægri/vinstri) o.s.frv. - við skulum forðast það að stimpla 5G eitthvað sem það er ekki. :)


Sammála þér hérna, enda hef ég engann áhuga á að taka undir "örökréttar" samsæriskenningar, þó sýnir sagan það að margar samsæriskenningar hafa á endanum reynst sannar. Ég er meira fyrir það að afla mér gagna frá báðum hliðum, bera það saman og finna þannig hvar rökin skerast og "sannleikann" er að finna. Eftir að hafa lesið meira um bioinitivite þá já er ég sammála þeir að þeir cherry picka niðurstöður sínar og eru þar af leiðindi ómarktækir.
Eina skoðunin sem ég hef myndað mér á þessu er sú að við ættum að stíga varlega til jarðar og skoða betur hvað geislun upp á 70-80 Ghz sem 5G keyrir á gæti mögulega haft á lífríki, frumur og þess háttar. En ef það reynist öruggt EFTIR rannsóknir, þá er ég all for it :)

Vill koma því á framfæri að ég er hlynntur bólusetningum, jörðin er kringlótt, við fórum til tunglsins og FEMA er ekki að reyna að drepa alla :lol:

WHO að tala um hættur rafgeislunar https://www.iarc.fr/wp-content/uploads/2018/07/pr208_E.pdf

Nokkur vidjó sem sýna báðar hliðar málsins (ekki brjálaðar samsæriskenningar, fréttir osfrv.)

https://www.youtube.com/watch?v=6pzcuQw7XWY

https://www.youtube.com/watch?v=YbzLVEF_m58

https://www.youtube.com/watch?v=jLk8af9b37w

https://www.youtube.com/watch?v=H_f9gpg4t6c

https://www.youtube.com/watch?v=_Fi_0VTS-D8

https://www.youtube.com/watch?v=JLTPerFA0ug

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 12:09
af chaplin
Theraiden skrifaði:Text


Ber bara mikla virðingu fyrir öllu sem þú sagðir og það er alveg hárrétt, samsæriskenningar hafa svo sannarlega sannaðar og það er mikilvægt að spyrja spurninga - ég vill bara að fólk myndi sér ekki skoðun sem er ekki hægt að breyta. :happy

Edit nevermind...

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Sun 31. Mar 2019 12:35
af ElGorilla
Áhrifin af bylgjum verða ekki skaðleg fyrr en komið er í útfjólubláar bylgjur.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Mán 13. Maí 2019 12:36
af JReykdal
Allar rafsegulbylgjur geta verið skaðlegar ef þær eru bara nógu andskoti öflugar. En aflið sem þarf til er svo mörgum sinnum meiri en nokkur 5G sendir skilar af sér.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Mán 13. Maí 2019 15:57
af Hizzman
Munið einnig að því fleiri og þéttari sendar, því minni orka er sett út. Einnig þá er orkan frá símanum sem þú heldur við hausinn mörg hundruð falt ágengari við þig en sú frá mastri sem er í 500m fjarlægð. Ef síminn þinn er að nota mastur sem er 2km í burtu geislar hann miklu meira í hausinn á þér en ef hann væri að nota mastur sem er nær.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 00:12
af jonsig
Sorry, en held að enginn okkar hérna séu það fróðir að geta sett sig inní fræðilegu hliðina á þessu nógu mikið, og internetið segir bara það sem passar við sannfæringu okkar þar sem við höfum ekki fræðilega bakgrunninn sem þarf til að mynda okkur nákvæma niðurstöðu á þessu flókna ferli hvernig rafsegulbylgjur sem við sjáum ekki hafa áhrif á okkur til skemmri tíma... hvað þá til langs tíma.. Giska á að við séum fokkt hvað þetta varðar og tíma okkar varið betur í eitthvað annað.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 10:08
af GuðjónR
Talandi um þetta, veit einhver hversu mörg W eða mW venjulegur farsímasendir er, þ.e. sendirinn í símanum sjálfum?

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 11:31
af jonfr1900
GuðjónR skrifaði:Talandi um þetta, veit einhver hversu mörg W eða mW venjulegur farsímasendir er, þ.e. sendirinn í símanum sjálfum?


Sendar eru frá 500mW til 100W í þéttbýli en sendar uppi á fjöllum eru kannski 1kW stærstir. Farsímar eru oftast að senda frá sér á 100mW en geta farið upp í 1W (1800/1900/2100/2600/3500*/3700*Mhz) og síðan 2W (700/800/900Mhz) á lægri tíðnum. Farsímar nota eingöngu mikið sendiafl þegar merkið er mjög slæmt, annars er sendiafl farsíma frá 10mW og upp í 500mW í venjulegri notkun eftir staðsetningu og öðrum atriðum.

*Væntanlegt með 5G farsímum.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 12:53
af Theraiden

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 18:34
af jonsig
Ég væri sáttur ef farsímafyrirtækin kláruðu fyrst 4G dreifikerfið.

En þetta er málið 5G! Þetta selur. Því það er mikið auðveldara að útskýra fyrir almenna kúnnanum að 4g er betra en 5g fyrst að 5 er hærri tala. Almenningur kippti sér ekki upp við þegar sìminn uppfærði 3g kerfið hjá sér í den, þó það væri boost á gagnahraðann. HSPA+.... ?

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 20:45
af dori
jonsig skrifaði:Ég væri sáttur ef farsímafyrirtækin kláruðu fyrst 4G dreifikerfið.

Hvað meinarðu með því að "klára 4G dreifikerfið"? Það er stanslaus þróun á því og alltaf verið að skipta út sendum og bæta og laga hjá fjarskiptafyrirtækjunum.

Býrðu kannski uppá jökli? Það er rosalega góð útbreiðsla á 4G sbr.

https://www.pfs.is/fjarskipti/utbreidsl ... idslukort/
https://www.nova.is/farsimi/thjonustusvaedi
https://www.siminn.is/forsida/simi/dreifikerfi
https://vodafone.is/simi/farsimi-i-askr ... stusvaedi/

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 21:06
af jonsig
Útbreiðslukortið segir þér ekki hvort þú sért að ná -60dBµV eða -125dBµV RSSI.

Hægt að byrja á þegar ég fékk mér 4g hnetu til að taka með í ferðalagið. Ferðalagið byrjaði í RVK, síðan missti ég sambandið rétt eftir borgarnes, síðan inn-út alla leiðina til akureyrar,, og endaði á mývatni á hóteli með 100kbps wifi sem var þó skárra en ég fékk útúr hnetunni minni stillta á roaming og á dreifikerfi símans.
Þetta var ekki 2016 eða um það leiti heldur um páskana sl.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 21:45
af chaplin
Theraiden skrifaði:og líka þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=ol3tAxnNccY&t=20m33s


Okey, núna verður þú aðeins að taka tvö skref til baka. - Maðurinn bakvið New Earth Project heldur líka að fæðingarvottorð séu seld á hlutabréfamarkaði. Þegar þú ert farinn að vísa í slíkar heimildir, fyrst Bioinitiative og núna New Earth Project, að þá ertu að reyna of mikið að finna "sannanir" fyrir því að 5G sé skaðlegt.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Þri 14. Maí 2019 22:00
af Theraiden
chaplin skrifaði:
Theraiden skrifaði:og líka þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=ol3tAxnNccY&t=20m33s


Okey, núna verður þú aðeins að taka tvö skref til baka. - Maðurinn bakvið New Earth Project heldur líka að fæðingarvottorð séu seld á hlutabréfamarkaði. Þegar þú ert farinn að vísa í slíkar heimildir, fyrst Bioinitiative og núna New Earth Project, að þá ertu að reyna of mikið að finna "sannanir" fyrir því að 5G sé skaðlegt.


Naaah, ekki að reyna að finna sannanir, bara margt sem kemur fram í þessu video (tek öllu með fyrirvara) það er að segja viðtöl við fræðimenn, lækna, prófessora og vísað í nokkrar rannsóknir. Fannst þetta áhugavert. Ekki dæma bókina af kápunni ;)

Skoðaðu rannsóknirnar sem vísað er í hér https://www.5gspaceappeal.org/the-appeal

Og afherju eru stóru fjarskiptafyrirtækin að vara fjárfesta við mögulegri hrinu af málsóknum vegna heilsufarslegra vandamála þráðlausrar geislunar og samsvarandi kostnaði https://www.rfsafe.com/wireless-companies-warn-investors-before-their-consumers-about-cell-phone-radiation-health-risk/

...bara áhugavert :)

fleiri rannsóknir
https://ehtrust.org/scientific-research-on-5g-and-health/

President hjá Enviromental health trust:
https://en.wikipedia.org/wiki/Devra_Davis

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Mið 15. Maí 2019 02:48
af jonfr1900
Það er engin hætta af 5G. Þessi tíðnisvið eru búin að vera í notkun í áratugi fyrir annað. Þar á meðal var NMT 900 til (aldrei notað á Íslandi) áður en það tíðnisvið var síðan tekið undir 2G, 3G og 4G í dag. Það sem er búið að gera með 5G er að bæta gagnaflutning með því að bæta mótunina á merkinu og fjölga QAM (Quadrature amplitude modulation) úr 64 upp í 256 QAM. Það eykur bandvíddina auk þess að nota tíðnisvið með gífurlega mikla bandvídd (24Ghz og ofar) sem leyfir allt að 100Mhz (ca 1Gbps) á hverri rás fyrir sig. Reyndar truflar allt þegar komið er svona hátt upp í tíðnisviðið og sérstaklega þegar farið er að nota 26Ghz eins og talað er um að verði raunin á einstaka stöðum (heimild hérna).

Þessi hérna router notar sendir út á 60Ghz (auk 2,4Ghz og 5Ghz) en ég veit ekki um neinn búnað sem notar þessa tíðni ennþá. Mér skilst að þetta sé 802.11ad búnaður sem noti þessa tíðni. Þessi router er einnig með eitt 10Gbps ethernet port.

Re: Heilsuspillandi áhrif 5G?

Sent: Mið 15. Maí 2019 11:51
af GuðjónR
jonfr1900 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Talandi um þetta, veit einhver hversu mörg W eða mW venjulegur farsímasendir er, þ.e. sendirinn í símanum sjálfum?


Sendar eru frá 500mW til 100W í þéttbýli en sendar uppi á fjöllum eru kannski 1kW stærstir. Farsímar eru oftast að senda frá sér á 100mW en geta farið upp í 1W (1800/1900/2100/2600/3500*/3700*Mhz) og síðan 2W (700/800/900Mhz) á lægri tíðnum. Farsímar nota eingöngu mikið sendiafl þegar merkið er mjög slæmt, annars er sendiafl farsíma frá 10mW og upp í 500mW í venjulegri notkun eftir staðsetningu og öðrum atriðum.

*Væntanlegt með 5G farsímum.


Okay, förum einhvern milliveg, segjum að það séu risatónleikar og 200.000 gestir mættir allir með gsm síma í vasanum hver sími sendir frá sér með styrk upp á 100mW vegna fjarlægðar við GSM mastur. Það eru þá væntanlega 200.000 x 0,1W = 20.000W en það er svipuð orka og 20+ örbylgjuofnar nota.
Spurningin er því á hvaða tímapunkti fara þessar bylgjur að verða hættulegar?