Síða 1 af 2

Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 03:08
af zedro
https://www.oculus.com/en-us/blog/oculus-rift-pre-orders-to-open-on-jan-6/ :megasmile

Jæja það er loksins að verða af þessu! Fyrir þá sem forpanta fylgir Lucky’s Tale og CCP’s EVE: Valkyrie
Einnig fylgir öllum Riftum Xbox One fjarstýring í leikina! Það hinsvegar fylgir ekki hvenær maður fær
gripinn í hendurnar né hversu mikið pakkinn mun kosta en það mun líklegast koma í ljós eftir 36 klst!

Hverjir ætlar panta, hverjir eru spenntir? [HUGE-COLGATE-SMILING-YELLOW-FACE-WHILE-SPORTING-RAGING-ERECTION]

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 03:18
af HalistaX
Það verður gaman að fylgjast með þessu. Ég ætla ekki að fá mér sneið af þessari VR köku just yet samt sem áður.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 08:23
af Xovius
Hef heyrt að verðið sé um 350$.
Annars ætla ég ekki að pre-ordera þetta þó ég kaupi pottþétt svona einn daginn.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 12:11
af atlisd
Ég hef verið að spila Elite Dangerous á DK2 og það er algjör sturlun. Ég stefni á að forpanta.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 14:55
af g0tlife
Okey þetta lookar nice en hvernig virkar þetta ? Spilaru leikinn í pc/xbox/ps og ert með þetta á hausnum ?

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 16:41
af stuxnet
Virðast ætla að shippa til Íslands.

https://support.oculus.com/hc/en-us/art ... -Countries

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 16:56
af Halli25
stuxnet skrifaði:Virðast ætla að shippa til Íslands.

https://support.oculus.com/hc/en-us/art ... -Countries

Þökk sé CCP :)

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 17:38
af Nitruz
ZOMG ! mér langar...
það er samt súrt hvað þarf að bíða lengi til að fá almennilega leiki. Væri til í Chivalry VR með motion controllers.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 17:39
af capteinninn
g0tlife skrifaði:Okey þetta lookar nice en hvernig virkar þetta ? Spilaru leikinn í pc/xbox/ps og ert með þetta á hausnum ?


Jebb setur þetta á hausinn á þér og ég mæli alveg með því að vera með headphones á þér líka með því.

Best er að bind-a á fjarstýringu takkana og nota þannig en m+kb virkar líka alveg.
Félagi minn var með voice control forrit á tölvunni og var búinn að stilla þannig í Elite Dangerous að hann gat sagt skipinu bara að læsa sig á target, setja niður lendingarbúnað osfrv sem var alger snilld með þessu

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 18:42
af HalistaX
Er gleraugnaglámur og búinn að vera í, hvað, 11? ár...

Er ekkert óþægilegt að vera með gleraugu undir þessu? Mín eru svo sem ekki stór en samt.

Las það nefninlega á netinu að það ætti að vera hægt, langar bara að heyra það frá einhverjum með reynslu :)

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 18:53
af appel
Er með DK1, DK2 og GearVR núna heima hjá mér núna. :D

En þó VR er gríðarlega kúl þá er notagildið enn takmarkað. Þetta er eitthvað sem maður kíkir í einstaka sinnum.

Voða vinsælt að sýna ættingjum samt sem áður.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 19:00
af Póstkassi
Reward fyrir alla þá sem bökkuðu oculus á Kickstarter.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 20:55
af atlisd
Ég var að spila þetta a PC. Eftir að ég uppfærði í W10 datt allt Elite support úr sambandi og hef ekkert verið að spila þetta með Oculus síðan. Varðandi reynslu og þess hattar finnst mér þetta henta ágætlega í sitjandi leiki eins og Elite, en hef svosem lítið annað prófað. Ég er líka með HOTAS kerfi (Saitek X52) þannig að ég þarf ekkert að raddstýra. Gæðin og þægindin i DK2 mættu vera mun betri þannig að ég spilaði í raun mest á skjá. En Release a víst að vera betra. En þó gæðin og þægindin mættu vera betri þá er þetta samt sturlun :-D

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 21:18
af Tiger
Þetta fer á toppinn hjá mér yfir mest óspennandi tækni í tækingeiranum..... ýtir 3D bíómyndum úr toppsætinu.

Seriously???

Screen Shot 2016-01-05 at 21.17.08.png
Screen Shot 2016-01-05 at 21.17.08.png (788.88 KiB) Skoðað 5351 sinnum

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Þri 05. Jan 2016 22:05
af zedro
Tiger skrifaði:Þetta fer á toppinn hjá mér yfir mest óspennandi tækni í tækingeiranum..... ýtir 3D bíómyndum úr toppsætinu.

Hefurðu prófað VR? Þetta er geggjað :D er ultra mega spenntur fyrir því sem mun fylgja í kjölfarið
þegar Rift og sambærileg VR verða komin í sölu!

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Mið 06. Jan 2016 13:13
af atlisd
Tiger skrifaði:Þetta fer á toppinn hjá mér yfir mest óspennandi tækni í tækingeiranum..... ýtir 3D bíómyndum úr toppsætinu.

Seriously???

Screen Shot 2016-01-05 at 21.17.08.png


Gott mál. Ekki að það sé mitt verk að sannfæra þig, en ef aðrir eru óvissir þá er þetta algjörlega allt annað en standard 3D. T.d. Ekkert Crosstalk, ef þú tiltar hausnum fer 3d'ið ekki í tætlur, svo sjá linsurnar að sjálfsögðu um það að myndin myndin alveg út fyrir jaðra. Þetta er eins og að vera kominn inn í leikjaheiminn.

Litli standurinn sem fylgir með sér til hvar þú ert staddur inn í rýminu. T.d. í dog-fight í Elite. þá var ég mikið að horfa á andstæðinginn og ef hann flaug upp og bakvið mig gat ég hallað mér fram og horft upp til baka, algjörlega steikt.

En þú skemmtir þér vel á meðan.

-Atli

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Mið 06. Jan 2016 16:08
af Sultukrukka
600$ í US og 699 eur í Evrópu

Heildarkostnaður heimkomið eftir vsk = 132.000kr

Full gróft :shock:

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Mið 06. Jan 2016 16:19
af atlisd
Já, allt i einu sé ég ekkert eftir að hafa ekki selt DK2 :-)

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Mið 06. Jan 2016 17:30
af Revenant
$600 + shipping + vsk gerir um 100.000 kr fyrir utan hardware-ið sem þarf (GTX 970, i5-4590, 8GB og 4 USB3 port).

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Mið 06. Jan 2016 17:32
af appel
Þetta er grimm verðlagning, líklega margir sem eiga eftir að sleppa þessu. Fyrir mig þá veit ég ekki alveg ennþá hvort ég vili pre-ordera, maður þarf að upgreida tölvuna í þokkabót, þetta er alveg 200k sem maður sé fram á að eyða bara til að geta notað þetta.

Þar fyrir utan er ég með DK1 og DK2 þannig að maður veit ekki alveg hvort það sé þess virði að eyða 200K bara í consumer útgáfuna af Rift.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Fim 07. Jan 2016 00:11
af zedro
Dísúskræst 700 EVRUR! I wants mah dollahs!

Þessi græja verður þá bara keypt ef ég skelli mér til USA og gripin í leiðinni.
Ætli maður hinkri þá ekki eftir HTC Vive og sjái hvor er að standa sig betur. :P

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Fim 07. Jan 2016 00:47
af urban
Icedev skrifaði:600$ í US og 699 eur í Evrópu

Heildarkostnaður heimkomið eftir vsk = 132.000kr

Full gróft :shock:


Furðulegt að þetta sé svona miklu dýrara í evrópu.

600USD er eitthvað um ~ 550 EUR

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Fim 07. Jan 2016 01:05
af Xovius
Þegar maður ber þetta saman við tvo 1920x1200 skjái sem þetta er eiginlega er verðið ekkert svo óskiljanlegt.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Fim 07. Jan 2016 11:00
af vesley
Ég bíð bara eftir því að það sé hægt að kaupa Oculus Rift eitt og sér. Og jafnvel án heyrnartólana, vill ekkert vera að borga fyrir Oculus Remote eða Xbox fjarstýringu ef ég þarf þess ekki.

Re: Oculus Rift forsala hefst 6.jan!

Sent: Fim 07. Jan 2016 11:21
af chaplin
Áður en fólk kaupir Rift mæli ég með að hafa í huga.

1. Facebook á Oculus

2. Vive mun sjálfsagt kosta svipað, koma aðeins mánuði seinna út og á að vera með algjöra yfirburði.

3. HTC (Vive) eru í samstarfi við Valve.

Ég er amk. í dag mun spenntari fyrir Vive þrátt fyrir að ég muni aldrei kaupa það. ;)