Intel Skylake örgjörvar (1151) og móðurborð (Z170)
Sent: Fim 06. Ágú 2015 14:14
af GuðjónR
Þá voru nýju Intel örgjörarnir að koma á markað, enn eitt kubbasettið (1151) nýju móðurborðin kallast Z170. Hér er smá frétt um þessar nýjungar: Sjötta kynslóðin frá Intel. og aðeins meira hérna.
Re: Intel Skylake örgjörvar (1151) og móðurborð (Z170)
Sent: Fim 06. Ágú 2015 14:32
af Hannesinn
Hvað varð um Broadwell örgjörvana sem áttu að passa ofan í Z97 LGA1150 borðin?
Re: Intel Skylake örgjörvar (1151) og móðurborð (Z170)
Sent: Fim 06. Ágú 2015 14:45
af emmi
Samkvæmt Tectspot þá hefur i7-6700K lítið sem ekkert framyfir i7-4790K.
Akkúrat, það er engin ástæða til að uppfæra bara til að uppfæra. Mér sýnist í fljótu bragði að Skylake hafi betri DDR3/DDR4 support en hvort það er eitthvað sem venjulegur notandi finnur er svo annað mál. Þetta er líklega gert í með markaðssetningu og sölu í huga.
Re: Intel Skylake örgjörvar (1151) og móðurborð (Z170)
Sent: Fim 06. Ágú 2015 16:28
af FreyrGauti
Hannesinn skrifaði:Hvað varð um Broadwell örgjörvana sem áttu að passa ofan í Z97 LGA1150 borðin?