Síða 1 af 1

Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Lau 30. Maí 2015 19:59
af appel
Mynd
http://www.engadget.com/2015/05/30/inte ... ck-review/

Mynd
https://www.kickstarter.com/projects/15 ... 9-computer

Nú eru að koma fram full fledged PC tölvur í form-factor sem má líkja helst við USB lykil eða greiðslukort af stærð, "PC on a stick".

Ljóst er að þessi þróun mun aðeins halda áfram, hægt er að búa til örlitlar PC tölvur sem ná að gera allt það helsta í desktop umhverfi sem flestir þurfa. Plugga bara í skjáinn og bang, kominn með bara feykilega fína desktop tölvu.
Svo þegar skoðað er inn í nýja Apple Air þá kemur í ljóst að tölvan sjálf er bara lítið kort. Svo jú auðvitað mobile markaðurinn.

Öll merkin eru komin fram um að við getum vænst öflugra PC tölva í formi "sticks" innan 1-2 ára, og þá tala ég um "stick" sem geta gert alveg heilmikið og koðna ekki undan smá álagi.

Ég velti fyrir mér framtíð PC tölvunnar við þessi umskipti. Ljóst er að markaðshlutdeild hennar á eftir hrynja þegar fólk sér að það getur bara keypt sér $100 stick í stað $1000 atx turnvélar og gefur nærri sama umhverfi og upplifun, svo ég tali nú ekki um sparnað í rafmagni og plássi og snúrum.

Pjúralistarnir auðvitað mótmæla og segja þessi stick ómöguleg, ekki sé hægt að keyra nýjustu leikina á þessu. En fyrir hin 90% eru þessi stick nóg, hin 90% eru ekki að sækjast eftir þessu hraðasta og öflugasta. Þó má segja að mikið af þessum 90% séu nú þegar farin í annað en PC tölvur, enda fáir sem eru með PC tölvur í sínu nærumhverfi lengur, heima og í vinnu.

Eftir situr örsmár markaður fyrir hardcore PC geeka og PC gamera, sem jú vissulega telur í milljónum eða tugmilljónum, en í stóra samhenginu er það örsmár markaður. Stærð markaðar ræður öllu um framþróun, ef þetta er lítill markaður þá verða fjárfestingar litlar og þá sjáum við fram á mjög litla framþróun. Margir munu einfaldlega hætta að horfa á þennan markað.
Mobile markaður sem telur í milljörðum manna mun ætíð hafa forgang í fjárfestingum og framþróun, og við erum komin á það stig að mobile markaðurinn er að fara taka yfir PC markaðinn í næstum heild sinni.


Dauða PC tölvunnar hefur verið spáð margoft, en ég held að vandamálið sé að hingað til hefur ekkert getað leyst hana almennilega af hólmi, fyrir utan jú laptop tölvur. En núna erum við að sjá eitthvað sem getur valdið mikið "disruptioni" í PC geiranum, og það á eftir að hafa áhrif á allt PC ecosystemið.

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Lau 30. Maí 2015 21:46
af BjarniTS
Skemmtileg vangavelta.
Ég held að það sem er löngu búið að eiga sér stað með cloud geymslu fyrir gögn , vinnustöðvar/virtual vélar af cloud , muni eiga sér stað á sambærilegan máta í leikjaheiminum.
Hvað er langt þangað til að þú getur keypt þér aðgang að stream þjónustu fyrir tölvuleikjaspilun yfir netið með 0 input lag ?
Dýrt hw yrði sama og óþarfi fyrir 90% af fólki.

Hvað er langt þangað til að allt sem heitir vélbúnaðarafköst fyrir hvaða vinnslu sem er verður bara vöruflokkur sem þú getur keypt á netinu ódýrt ?

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Lau 30. Maí 2015 22:07
af Hannesinn
Það er alveg ljóst að það verða stórar breytingar í tölvuheiminum á næstu árum. Manni finnst samt símaþróunin líklegri en "PC on a stick" dæmið.

Öflugustu símarnir í dag er betri en 8-10 ára fullsize borðtölvur og þróun í allri afþreyingu hefur bent á síma/spjaldtölvur seinustu ár, sama hvort það er samfélagsmiðlar, fréttir, tónlist eða bíómyndir.

Ég sé mun frekar fyrir mér einhvers konar dokku fyrir síma, sem gefur þér samband við peripherals, eða stærri skjá, lyklaborð, o.s.fr. til að byrja með, og svo verður þetta eflaust þráðlaust einhvern tímann síðar.

Svo er líka spurning hvort að mainframe pælingin gæti jafnvel komið einhvers staðar sem millistig, því að streaming á leikjum (og eflaust öðru high-end multimedia) er ekki tilbúið í dag, ekki locally og hvað þá yfir internetið. Steamboxið er allavega að gæla við þessa pælingu.

En það er allavega eitthvað stórt byrjað að gerast.

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Lau 30. Maí 2015 22:14
af GullMoli
Hannesinn skrifaði:Það er alveg ljóst að það verða stórar breytingar í tölvuheiminum á næstu árum. Manni finnst samt símaþróunin líklegri en "PC on a stick" dæmið.

Öflugustu símarnir í dag er betri en 8-10 ára fullsize borðtölvur og þróun í allri afþreyingu hefur bent á síma/spjaldtölvur seinustu ár, sama hvort það er samfélagsmiðlar, fréttir, tónlist eða bíómyndir.

Ég sé mun frekar fyrir mér einhvers konar dokku fyrir síma, sem gefur þér samband við peripherals, eða stærri skjá, lyklaborð, o.s.fr. til að byrja með, og svo verður þetta eflaust þráðlaust einhvern tímann síðar.

Svo er líka spurning hvort að mainframe pælingin gæti jafnvel komið einhvers staðar sem millistig, því að streaming á leikjum (og eflaust öðru high-end multimedia) er ekki tilbúið í dag, ekki locally og hvað þá yfir internetið. Steamboxið er allavega að gæla við þessa pælingu.

En það er allavega eitthvað stórt byrjað að gerast.


Svipað og Microsoft eru að gera með Windows Phone 10, fídus sem kallast Continuum


Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Lau 30. Maí 2015 23:01
af rapport
Hvernig verður það þegar fólk er bara komið með litla tengipunkta í hendurnar og allt cpu powereið er í skýinu eða blackbox leikjatölvum?

Ég held að þetta sé ekki góð þróun, þetta "lokar" tölvuheiminum svolítið...

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 00:13
af GuðjónR
Athyglisverðar pælingar, símarnir stækka og tölvurnar minnka. Stream möguleikarnir verða meiri og meiri, ætli þetta verði ekki í þannig að þú kaupir þér"stream" aðgang að cross-platform ofurleikajvél og spilar svo remote. Verður þá með einhverskonar endastöð heima hjá þér, jafnvel eitthvað sem verður innbyggt í LCD skjáinn og TV.
Menn eru þegar farnir að fikta við þetta:
http://www.nvidia.com/object/cloud-gaming.html

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 00:18
af Olli
Ja veistu mér finnst mjög jákvæð þróun að geta spilað hvaða leik sem er á næstum hvaða vél sem er í gegnum eitthverja áskriftarleið eins og þetta verður sennilega, þótt að það gæti drepið nörda tölvu markaðinn sem ég hef svo gaman af í dag!

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 10:35
af Moldvarpan
Þetta verður athyglisverð þróun. Mörg platform eiga eftir að koma fram, mörg eiga eftir að deyja hratt.

En ég tel það vera rangt að segja að pc tölvan eigi 1-2 ár eftir ólifuð. Það er gróflega vanmetið getu PC tölvunnar.
Nú eru SMART tv´s og computer on a stick búið að vera til(android) í þó nokkur ár, þetta nýtist vel við ýmislegt en alls ekki allt.

Ég skal glaður éta þessi orð ofaní mig 2017, en ég hef ekki áhyggjur af því.

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 10:46
af Cikster
Sem stendur hef ég litlar áhyggjur af high end PC tölvum. Framleiðendur gætu allir farið yfir í pc on a stick en þeir sem væru með venjulegu high end tölvurnar mundu bæði vera taldir betri útaf breiðari vörulínu og því að vera með puttana í því nýjasta/besta. Svo má ekki gleyma því að þeir sem eiga high end tölvurnar eru líklegri til að vera spurðir af ættingjum og vinum hvað eigi að kaupa.

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 12:05
af GuðjónR
PC tölvan eins og við þekkjum hana er búin að vera ótrúlega lífsseig, 198ogeitthvað komu fyrstu kassarnir á markað og þetta er nánast eins.
Þegar ég keypti fyrsta iMacinn 2008 þá var ég bara búinn að fá leið af þessum hlunkakössum og snúruveseni út um allt.
Og með húsið fullt af börnum þá var engin tími lengur fyrir svona grúsk.
Það eru samt skemmtilegar nýjungar, t.d. allar þessar smátölvur sem eru að koma, sticks, tölvur innbyggðar í skjái (eins og iMac).
Örþunnar laptops eins og Yoga3Pro og Macbook, spjaldtölvur og öflugir snjallsímar og úr.

Ég held samt að gömlu góðu kassarnir eigi fullt eftir, þeir sem framleiða hardware eru örugglega ekki tilbúnir að leggja árar í bát og hætta.
Það er og verður markaður fyrir kassana áfram, hugsalega í breyttri mynd, þ.e. nettari setup. En á endanum munu þeir hverfa, en það verður örugglega ekki næstu tíu árin.

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 12:44
af beatmaster
Það verður gaman að skoða þennan þráð árið 2020 og sjá hvar við stöndum þá, ég er enþá jafn sannfærður og ég var fyrir 3 árum um að Apple myndi deyja út/minnka verulega og Android myndi hrapa gersamlega niður í markaðshlutdeild, ég sagði þá að þetta myndi taka kanski 5 ár en þetta tekur eitthvað lengri tíma en mun samt gerast, ástæðan er einfaldlega öflugri lágwatta x86 örgjörvar, fyrirtækjarekstur og kunnugleiki við Windows.

Eftir því sem fleiri fyrirtæki fara að taka upp BYOD (Bring Your Own Device) stefnu fara fleiri spurningar að vakna upp vaðandi öryggi þeirra tækja sem fá að tengjast fyrirtækjanetinu, þar er Google ekkert svakalega vinsælt þar sem að notendaskilmálarnir gefur þeim tækjum og notendum Chrome ansi mikinn rétt sem að fyrirtæki eru ekkert endilega til í að gefa, líklegra finnst mér að Google tæki og vafrar verði einfaldlega bönnuð í fyrirtækjanetum.

Í mobile væðingu fyrirtækja varð Apple fyrir valinu og verður það eitthvað enn en á endanum munu þægindin við að hafa bara einn Microsoft aðgang og nota hann til að skrá sig inn í símann, spjaldtölvuna, eða fartölvuna hvort sem er heima eða í vinnunni ástæðan fyrir því að Apple hlutdeildin mun minnka.

Á endanum verðu það væntanlega þannig að alvöru leikir verða streamaðir eða leiknir í gegnum vafra, spurning hversu langt er í það

Re: Síðustu ár PC tölvunnar

Sent: Sun 31. Maí 2015 13:44
af Hrotti
Þegar að sæmileg leikjavél kemst fyrir í svona stick, hvað verður þá hægt að gera með fullblown turn \:D/