Síða 2 af 2

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Lau 05. Okt 2013 14:14
af GuðjónR
Oak skrifaði:Ég er með 59" í stofunni hjá mér og gæti alveg hugsað mér að vera með 80". Ég er svona 4m frá tækinu og er það bara fínt.

Ég er með 42" og sit í 4m 68cm og 3mm fjarlægð, sem er allt of langt frá.
Þarf 55"+ tæki eða gleraugu.

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 01:19
af Farcry
Hérna er 65" Philips 4K á 999.995
http://ht.is/product/65-uhd-led-smart-tv-eisa13-14

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 03:37
af Swanmark
Farcry skrifaði:Hérna er 65" Philips 4K á 999.995
http://ht.is/product/65-uhd-led-smart-tv-eisa13-14

173k á mánuði, np. Gætir leigt íbúð fyrir það.

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 10:29
af GuðjónR

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 10:57
af audiophile
Ég myndi bara aldrei borga svona mikið fyrir Philips sjónvarp. Fólk heldur ennþá að Philips sjónvörp séu svo góð af því þau "þekki merkið". Þetta er bara ekkert merkið sem þetta var. Það eru kínverskir eigendur af hljóð og mynd deild Philips og þetta er allt framleitt í Kína með misjöfnum árangri. Lélegir panelar og há bilanatíðni. Ég myndi persónulega kaupa United sjónvarp framyfir Philips.

En aftur að 4K. Að horfa á 4K demoið í Samsung tækinu upp í Elko er rosaleg upplifun. Það er einhvernveginn svo mikil dýpt og skerpa í þessu að maður upplifir myndefnið allt öðruvísi. Næstum hægt að segja að maður upplifi tilfinninguna "að vera á staðnum" því dýptin er nánast þrívídd. Mæli með að fólk sjái þetta í eigin persónu.

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 17:01
af Farcry
audiophile skrifaði:Ég myndi bara aldrei borga svona mikið fyrir Philips sjónvarp. Fólk heldur ennþá að Philips sjónvörp séu svo góð af því þau "þekki merkið". Þetta er bara ekkert merkið sem þetta var. Það eru kínverskir eigendur af hljóð og mynd deild Philips og þetta er allt framleitt í Kína með misjöfnum árangri. Lélegir panelar og há bilanatíðni. Ég myndi persónulega kaupa United sjónvarp framyfir Philips.

En aftur að 4K. Að horfa á 4K demoið í Samsung tækinu upp í Elko er rosaleg upplifun. Það er einhvernveginn svo mikil dýpt og skerpa í þessu að maður upplifir myndefnið allt öðruvísi. Næstum hægt að segja að maður upplifi tilfinninguna "að vera á staðnum" því dýptin er nánast þrívídd. Mæli með að fólk sjái þetta í eigin persónu.

Ég þarf að kikja á þetta. hvað eru þeir að sýna í þessu sjónvarpi ,4k myndefni er af skornum skammti. upscalað ?

Re: 4k Samsung sjónvarp í Elko ... SEXY!

Sent: Sun 06. Okt 2013 18:55
af audiophile
Farcry skrifaði:
audiophile skrifaði:Ég myndi bara aldrei borga svona mikið fyrir Philips sjónvarp. Fólk heldur ennþá að Philips sjónvörp séu svo góð af því þau "þekki merkið". Þetta er bara ekkert merkið sem þetta var. Það eru kínverskir eigendur af hljóð og mynd deild Philips og þetta er allt framleitt í Kína með misjöfnum árangri. Lélegir panelar og há bilanatíðni. Ég myndi persónulega kaupa United sjónvarp framyfir Philips.

En aftur að 4K. Að horfa á 4K demoið í Samsung tækinu upp í Elko er rosaleg upplifun. Það er einhvernveginn svo mikil dýpt og skerpa í þessu að maður upplifir myndefnið allt öðruvísi. Næstum hægt að segja að maður upplifi tilfinninguna "að vera á staðnum" því dýptin er nánast þrívídd. Mæli með að fólk sjái þetta í eigin persónu.

Ég þarf að kikja á þetta. hvað eru þeir að sýna í þessu sjónvarpi ,4k myndefni er af skornum skammti. upscalað ?


Þetta er promo efni frá Samsung í 4K. Landslag, náttúra og þessháttar. Kemur svo meira flott efni. Það er líka Samsung Bluray spilari tengdur við sem uppscalar í 4K.