Síða 1 af 1
Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:26
af falcon1
er öruggt að versla við þá vefsíðu?
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:32
af flottur
Jà
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:37
af Diddmaster
Uuuu já
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:47
af Henjo
Já, hef tvisvar pantað frá þeim. Fékk einusinni sent í póstbox og hitt sótti ég í leikfangabúðina í smára. Þrátt fyrir heimskulega fáránlegt nafn þá er þetta legit. Veit samt ekki hversu mikið vesen það er ef varan er gölluð eða bilar.
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:49
af falcon1
Ok, kúl - vildi bara vera viss.

Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 14:05
af Dr3dinn
Hef tvisar skilað vörum til þeirra, án mikils vesens, alveg eðlileg búð oft með mun betri verð á logitech vörum en sambærilegt hérlendis
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 15:43
af Gerbill
Eini gallinn er að lagerinn þeirra er að stórum hluta í Danmörku svo getur tekið nokkra daga að fá vöruna.
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 15:44
af olihar
Ég hef verslað þarna, þetta er legid en hef 2 lent í því að varan er ekki það sem átti að vera.
Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 16:03
af andrith
Verslaði einu sinni Kindle af þeim því þau voru með ódýrasta verðið. Þegar ég fékk vöruna þá gat ég ekki sett hann upp, fékk bara villu um að hann væri læstur. Hafði samband við Amazon og fékk þær upplýsingar að Kindilinn væri merktur stolinn og verslunin væri að gera eitthvað vitlaust. Þurfti því að skila honum til Coolshop og fá nýjan. Þau voru náttúrulega ekki með þetta á lager svo ég þurfti að bíða eftir nýjum.
Allt ferlið tók 2 mánuði eftir að ég uppgötvaði vandamálið, sem var pínu bömmer. Nokkrum klst eftir að ég senti þeim að ég vildi fá endurgreiðslu því þetta var að taka svo langan tíma þá fékk ég tilkynningu um að hann væri kominn í póst

Re: Coolshop.is
Sent: Mið 18. Jún 2025 18:44
af vatr9
Verslað nokkrum sinnum af þeim og allt gengið vel. Tekur 10 til 15 daga að berast frá Danmörku.
Yfirleitt eru verðin á þeim vörum sem ég hef pantað 10 - 20 % ódýrari en hér heima.