Síða 1 af 1
Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Mið 18. Jún 2025 05:47
af dagurhall
Kæru vaktarar á ég að nota DHL eða póstinn
vill fylgjast með pakkanum alla leið
þetta er 1,5 kg.
Ég veit að, best er að kalla þetta gjöf
til að sleppa við tollinn,
held ég allavegana . En hvað veit ég..ekkert.. en þið eruð snillingar
allar hugmyndir og pælingar eru velkomnar.
kveðja Dagur.
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Mið 18. Jún 2025 07:50
af roadwarrior
Hratt, öruggt og öll skref í ferlinu sjást jafnóðum = DHL
en það er mun dýrara
Hægara, ekki eins öruggt og færri skref sjást í ferlinu = Pósturinn
En það er ódýrara
Myndi alltaf setja inn að lágmarki 10 evru virði á pakka vegna tolla. Minni hætta á veseni í tollinum erlendis. Líka skiftir máli hvað þú ert að senda. Þeir sem vinna í tollinum erlendis vita oft sínu viti hvert virði hluta er. Td að senda nýjasta og flottasta skjákortið á markaðnum og halda því fram að það sé lítils virði getur komið aftan að þér. Ef raunvirði er mög hátt getur borgað sig að segja að hluturinn sé "broken"
En athugaðu að þyngd skiptir ekki alltaf máli varðandi flutningsgjöld. Stærð/rúmmál getur verið reiknuð sem grundvöllur að flutningsgjöldum.
Persónulega myndi ég velja DHL uppá öryggi þess að pakkinn skili sér hratt og örugglega á áfangastað en það er dýrara

En ef pakkinn týnist/skemmist þá getur komið í bakið á þér að lýsa yfir því að andvirðið sé lítið. Getur ekki sagt að innihaldið sé lítils virði í upphafi þegar þú sendir pakkann og gerist eitthvað, einhver keyrir yfir pakkann td og þú/viðtakandi fara svo að reyna að segja að innihaldið sé miklu meira virði eftir á til að fá einhverjar bætur.
En líkurnar á þessu eru mjög litlar

Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Mið 18. Jún 2025 08:12
af rapport
Hef verið að fá vín sent frá Spáni og það er algengt að flöskur brotni hjá DHL 50/50 líkur af sex sendingum.
Held að það verði að pakka þessu virkilega vel.
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Mið 18. Jún 2025 12:29
af rostungurinn77
Ég myndi ekki reikna með að það að merkja hlutinn sem gjöf skili þér neinu.
Annað, ertu að senda sjálfum þér, vini eða bara einhverjum sem keypti af þér hlutinn? Ef einhverjum öðrum, af hverju eru innflutningsgjöldin þinn hausverkur?
Hámarksverðmæti gjafar sem ber ekki vask eða toll er 45 €, inn í ESB lönd. Hvort Spánn er með viðvik frá meginreglunni þekki ég ekki.
Sendingarkostnaður er líklegast inni í þessum 45€ og þú getur ekki svindlað á honum þannig að það er tæpt að 1.5 kg pakki endi undir 45€.
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Mið 18. Jún 2025 13:56
af dagurhall
það er skemmst frá því að segja að
DHL vildi fá 25.800
Pósturinn rukkaði mig samtals 5.089 inni þvi var aukagjald upp á 700 krónur fyrir tracking númer
sendingin var 1,5 kg og flokkaðist því í 2 kg flokk
svo skal ég láta ykkur vita hvernig þetta endar.
sendingin á að enda á fuerteventura sem er lang skemmtilegasta og flottasta eyjan af kanarí eyjunum
Ps: innihaldið var nóakropp eitt skjákort og 384 grömm af amfetamín sterum.

Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Fös 20. Jún 2025 11:20
af ejm
Ef við gerum ráð fyrir að þetta hafi verið 200gr poki af Nóakroppi, þá erum við að tala um skjákort sem er rétt minna en kg að þyngd?
Það er 2060 eða þar um bil.
Tekur því að senda svoleiðis yfir hálfan hnöttinn fyrir 5k?
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Lau 21. Jún 2025 06:10
af dagurhall
OK ég skal opna mig hér og viðurkenna að þetta voru 3 pokar af nóakroppi,
og 2 pokar af Nóa Tromp.
En það er ekkert að frétta af sendinguni.
þetta er það eina sem ég fæ að vita.
https://posturinn.is/einstaklingar/mott ... 05698442IS
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Lau 21. Jún 2025 06:21
af dagurhall
Mér grunar að tollararnir hafi hámað í sig all gúmelaðið,
sett skjákortið á sölu hér, og notað anfetamínsterana til að hressa sig við.
En hvað veit ég,þið eruð snillingarnir sem ég treysti á
til að leiðbeina mér í þessum hamförum.
Re: Að senda tölvubúnað til spánar
Sent: Lau 21. Jún 2025 10:13
af olihar
Þetta er Pósturinn, þetta er mikið lengur á leiðinni en 3 daga.