Síða 1 af 1

Netverslun Bílanaust - öryggi - Hakk?

Sent: Fim 29. Maí 2025 23:40
af Psychobsy
Góðan daginn


Var að fara að versla á Bílanaust.is eins og ég geri gjarnan og læt senda til mín út á land, þar er auðvitað lokað í dag svo ég náði ekki í neinn þar, en nú fer greiðsluhnappurinn fyrir pöntunina hjá þeim með mig inn á slóðina:

https:// verslun . fannsker . is / innskraning

Það er eitthvað shady við þessa síðu finnst mér, SSL útrunninn fyrir löngu, beðið um rafræn skilríki innskráningu en áður þegar maður greiddi var maður sendur beint á rapyd eða valitor eða eitthvað slíkt bara embedded á vefversluninni hjá þeim


Ætli sé búið að hakka eitthvað og verið að reyna að svindla eitthvað á mér með þessari innskráningu?

Ég er að sjálfsögðu búinn að senda þeim skeyti með fyrirspurn um þetta en er forvitinn hvað ykkur finnst

2025-05-29_23h35_56.png
Á vef Bílanausts velur maður þennan greiðsluhnapp til að halda áfram
2025-05-29_23h35_56.png (159.31 KiB) Skoðað 329 sinnum


2025-05-29_23h21_26.png
Þá birtist þessi síða og aðvörun um öryggisbrest
2025-05-29_23h21_26.png (84.07 KiB) Skoðað 329 sinnum


2025-05-29_23h33_46.png
Öryggisskírteinið rann út fyrir tæpu ári síðan
2025-05-29_23h33_46.png (60.91 KiB) Skoðað 329 sinnum

Re: Netverslun Bílanaust - öryggi - Hakk?

Sent: Fim 29. Maí 2025 23:54
af Ghost
Verslaði á síðunni hjá þeim í gærkvöldi og lenti ekki í þessu. Þetta er eitthvað shady þykir mér.