Kísildalur
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 7
- Skráði sig: Lau 08. Ágú 2020 16:51
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Kísildalur
Lenti í því að kaupa vél af Kísidal sem bilaði eftir 2 vikur. Þegar við fórum með hana í viðgerð hjá þeim(Hún var enn þá í ábyrgð auðvitað) þá fundu þeir út að örgörvin hafi eyðilagst, þeir vissu samt ekki af hverju en kenndu því á SSD disk sem yngri bróðir minn hafi sett í hana. Og núna hafa þeir neitað að laga hana og við enduðum á því að þurfa taka hana til baka bilaða. Hefur einhver annar lent í svona rugli hjá þeim, að þeir svíki mann af ábyrgð á tölvunni? Og hvað skref væri hægt að taka í þessu atviki?
Re: Kísildalur
Hvaða rök eru nýtt fyrir því að umræddur SSD diskur hafi skemmt örgjörvann?
Löglegt WinRAR leyfi
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Þetta hljómar hálf ótrúlega eitthvað. Segja örgjörva eyðileggjast þegar nýr SSD er tengdur? Manni finnst eins og það vanti eitthvað í þessa sögu. Það er allavega fullkomlega eðlilegt að bæta við drifum í tölvum.
En til að svara spurningunni þá sér Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa um svona ágreining held ég.
En til að svara spurningunni þá sér Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa um svona ágreining held ég.
Re: Kísildalur
Hvaða örgjörva og móðurborð er um að ræða?
LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 3x12TB WD Ultrastar DC HC520
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 3x12TB WD Ultrastar DC HC520
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 7
- Skráði sig: Lau 08. Ágú 2020 16:51
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Njall_L skrifaði:Hvaða rök eru nýtt fyrir því að umræddur SSD diskur hafi skemmt örgjörvann?
Þegar ég hringdi í þá var mér sagt að það voru skemmdir í kringum tenginguna á SSD disknum, svo ég býst við því að þeira reyndu að nota það sem rök. En ég býst frekar við því að sama orsök sem skemmdi örgjörvan hafði gert það.
Það var ekki ég sem sótti hana á endanum, svo ég veit ekki hvaða rök þá gáfu þá.
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 7
- Skráði sig: Lau 08. Ágú 2020 16:51
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Dropi skrifaði:Hvaða örgjörva og móðurborð er um að ræða?
Þetta er það sem við keyptum hjá þeim.
https://imgur.com/a/tKq4ckE
Síðast breytt af Crazyhelgi á Mán 26. Maí 2025 11:38, breytt samtals 1 sinni.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 397
- Skráði sig: Fim 26. Des 2002 23:38
- Reputation: 56
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
AM5 örgjörvar í Asrock móðurborðum eru að skemmast hægri vinstri, virðist vera meira í þá átt og Kísildalur að firra sig ábyrgð.
https://old.reddit.com/r/ASRock/comments/1kgvuj0/amd_ryzen_5_9600x_died_yesterday_with_asrock/

Síðast breytt af Sultukrukka á Mán 26. Maí 2025 11:42, breytt samtals 3 sinnum.
Re: Kísildalur
Ég ætlaði einmitt að fara að kaupa tölvu af þeim, er snarhættur við og fer eitthvað annað
Re: Kísildalur
Crazyhelgi skrifaði:Njall_L skrifaði:Hvaða rök eru nýtt fyrir því að umræddur SSD diskur hafi skemmt örgjörvann?
Þegar ég hringdi í þá var mér sagt að það voru skemmdir í kringum tenginguna á SSD disknum, svo ég býst við því að þeira reyndu að nota það sem rök. En ég býst frekar við því að sama orsök sem skemmdi örgjörvan hafði gert það.
Það var ekki ég sem sótti hana á endanum, svo ég veit ekki hvaða rök þá gáfu þá.
Þetta hljómar allt frekar loðið og ekki í samhengi við þá þjónustu sem Kísildalur virðist almennt vera þekkt fyrir. Hvet þig til að heyra betur í þeim með nákvæmari rök og jafnvel myndir af þessum skemmdum, mættir endilega deila hér hvernig fer.
Löglegt WinRAR leyfi
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Kísildalur er með 103% þjónustu og það vantar eitthvað í þessa frásögn hjá þér, þeir myndu ALDREI ekki axla ábyrgð á einhverju. Þetta eru ekkert nema heiðursmenn þarna sem vilja allt fyrir alla gera.
>> Ef að þú vinnur í tölvunni sjálfur eða ert að redda þér með eitthvað þá tekurðu séns og það er oftast þannig að neytendur vilja ekki axla ábyrgð þegar eitthvað kemur upp hjá þeim og fara svo á netið og reyna að skíta fyrirtæki út þegar þau stíga ekki inn og bæta tjón sem þau bera ekki ábyrgð á <<
Þekki menn sem eru að vinna í bílaumboðum, 99% af skítatali á netinu frá fólki er þegar það vildi fá ábyrgð á eitthvað sem var ekki í ábyrgð eða það hafði ekki sinnt þjónustuskoðunum og svo framv. fer svo á netið að reyna að hefna sín.
--

|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||

- ÜberAdmin
- Póstar: 1301
- Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
- Reputation: 53
- Staðsetning: Í kísildalnum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Hér eru þau málatildrög sem eru ekki að koma fram í þessari lýsingu:
Viðskiptavinur kemur með tölvu sem hafði slökknað skyndilega á. Tölva neitaði að kveikja á sér af því að aflgjafi var búinn að slá sér út.
Við nánari eftirgrenslan sáum við að gamall SSD diskur sem hafði verið tengdur við vélina var með skaðbrenndar snertur á Data-Ground pinnum, þ.e. öllum 3 ground pinnunum á gagnatenginu og einum pinnanum sem leiðir til aflgjafa. Eftir að diskur var tekinn úr vél þá kveikti tölvan á sér en komst ekki gegnum ræsingu.
Örgjörvinn reyndist ónýtur eftir þetta og tölva fór í gang á sama móðurborði með öðrum örgjörva.
Straumur hefur runnið frá SSD disk niður til jarðar og miðað við mælingar mínar hefur hann runnið framhjá örgjörvasætinu og sent öfugan straum inn á ground pinna á örgjörva. Ég get séð að ground-plane í kringum SATA tengin er aðskilið frá ytra ground plane-i og mæli lægra viðnám frá ground pinnunum á SATA tengi móðurborðs að bakhlið örgjörvasætis heldur en út í jarðtengingu fyrir kassa.
Þannig að okkar mat var að SSD diskur hefði skyndilega skammhleypst og sent spennu og straum í gegnum inn á móðurborð og að það hefði eyðilagt örgjörvan.
Ég er prinsípmaður og tel að allir eigi að taka ábyrgð á gjörðum sínum og eigi að gangast við þeirri ábyrgð. Við berum ábyrgð á að okkar hlutir virki rétt en að sama leiti ber eigandi ábyrgð á því þegar hann bætir við hlut sem veldur skaða.
Ef ég hefði ekki séð beina tengingu þarna á milli sem skýrir hvernig þetta gerðist þá hefði ég klárlega leyft viðskiptavini á njóta vafans. Ég lái hins vegar engum að þykja þetta undarlegt enda mjög sjaldgæft að hlutir gefi sig með þessum hætti.
Þetta er klárlega mál fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa og ég mæli með að menn nýti sér þjónustu þeirra þega menn telja að brotið sé á þeim.

Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal

...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Úff já þetta hljómar ekki eins og skemmtilegt mál greinilega. Auðvitað spurning um eggið eða hænuna í svona líka. Þá hvort var móðurborðið sjálft hafi verið gallað og það var bara spurning um hvenær drif yrði sett í og þetta færi af stað nú eða auðvitað að drifið sjálft hafi verið gallað/skemmt eða einhver brusugangur hafi átt sér stað sem hafi leitt til þess að skammhleypa á þennan hátt.
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1301
- Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
- Reputation: 53
- Staðsetning: Í kísildalnum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Gemini skrifaði:Úff já þetta hljómar ekki eins og skemmtilegt mál greinilega. Auðvitað spurning um eggið eða hænuna í svona líka. Þá hvort var móðurborðið sjálft hafi verið gallað og það var bara spurning um hvenær drif yrði sett í og þetta færi af stað nú eða auðvitað að drifið sjálft hafi verið gallað/skemmt eða einhver brusugangur hafi átt sér stað sem hafi leitt til þess að skammhleypa á þennan hátt.
Við prófuðum móðurborðið með öðrum diskum. Það virkar eðlilega. Ég er eiginlega mest hissa á að það hafi lifað þetta af en það er þykkur kopar í þeim sem leiðir strauminn vel til jarðar og örgjörvinn er viðkvæmasti hluturinn á leiðinni þangað enda vinnur hann á lægri spennu en aðrir hlutar móðurborðsins. Sömuleiðis er aflgjafi að gefa eðlilegar spennur. Eina sem mér dettur annað í hug sem gæti valdið þessu er utanaðkomandi spennupúls en ekkert í lýsingu viðskiptavinar benti til slíks og það væri líka afar ólíklegt að lýsa sér með þessum hætti.
SSD diskurinn er með skammhlaupi innan í sér sem veldur því að hann hleypir spennu sem fer inn í hann niður í jörð gegnum brenndu pinnana. Líklegasta skýringin er að einhver ihlutur í dsiknum hafi skammhleypst, t.d. þéttir en ég verð þó að segja að mér finnst eitthvað skrýtið við rafrásarhönnun sem tengir íhluti beint á milli innspennu og þess hluta jarðtengingar sem er ætluð gagnasamskiptum, væri eðlilegra að tengja slíka hluti inn á jörðina á afltenginu að mínu mati.

Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla 
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal

...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
-
- /dev/null
- Póstar: 1473
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Reputation: 177
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Ég man varla eftir neikvæðri umfjöllun um Kisildal, hvorki hér né á facebook þar sem allt er vanalega alltaf í bál og brannd.
Aldrei hef ég komið ósáttur þaðan út og ekkert nema fagmenn og því erfitt að trúa því að Kísildalur reyni að fyrra sig ábyrgð enda fæst góð útskýring á vandamálinu hér að ofan.
Aldrei hef ég komið ósáttur þaðan út og ekkert nema fagmenn og því erfitt að trúa því að Kísildalur reyni að fyrra sig ábyrgð enda fæst góð útskýring á vandamálinu hér að ofan.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 314
- Skráði sig: Mið 11. Maí 2005 21:28
- Reputation: 56
- Staðsetning: Breidholt
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
wICE_man skrifaði:Gemini skrifaði:Úff já þetta hljómar ekki eins og skemmtilegt mál greinilega. Auðvitað spurning um eggið eða hænuna í svona líka. Þá hvort var móðurborðið sjálft hafi verið gallað og það var bara spurning um hvenær drif yrði sett í og þetta færi af stað nú eða auðvitað að drifið sjálft hafi verið gallað/skemmt eða einhver brusugangur hafi átt sér stað sem hafi leitt til þess að skammhleypa á þennan hátt.
Við prófuðum móðurborðið með öðrum diskum. Það virkar eðlilega. Ég er eiginlega mest hissa á að það hafi lifað þetta af en það er þykkur kopar í þeim sem leiðir strauminn vel til jarðar og örgjörvinn er viðkvæmasti hluturinn á leiðinni þangað enda vinnur hann á lægri spennu en aðrir hlutar móðurborðsins. Sömuleiðis er aflgjafi að gefa eðlilegar spennur. Eina sem mér dettur annað í hug sem gæti valdið þessu er utanaðkomandi spennupúls en ekkert í lýsingu viðskiptavinar benti til slíks og það væri líka afar ólíklegt að lýsa sér með þessum hætti.
SSD diskurinn er með skammhlaupi innan í sér sem veldur því að hann hleypir spennu sem fer inn í hann niður í jörð gegnum brenndu pinnana. Líklegasta skýringin er að einhver ihlutur í dsiknum hafi skammhleypst, t.d. þéttir en ég verð þó að segja að mér finnst eitthvað skrýtið við rafrásarhönnun sem tengir íhluti beint á milli innspennu og þess hluta jarðtengingar sem er ætluð gagnasamskiptum, væri eðlilegra að tengja slíka hluti inn á jörðina á afltenginu að mínu mati. :-k
spurning, er einmitt með vél frá Kísildal sem ég fékk gjöf nýverið en kassinn er í minni stærðini heldur en bara ATX, einu stærð minna, fattaði ekki hvernig ég átti að fitta diskana mína inní kassanum og allt SSD diskar og lét þá bara hanga einhverstaðar inní enda ekki moving parts, er möguleiki á einhverju samskonar hjá mér? ef svo er, get ég komið með kassann til ykkar og þig setjið saman diskana í kassann, vill helst ekki vera að taka eitthvað í sundur sjálfur, auðvitað gegn greiðslu
ef ég skrifa kb þá meina ég kilobyte!!!
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
wICE_man skrifaði:Gemini skrifaði:Úff já þetta hljómar ekki eins og skemmtilegt mál greinilega. Auðvitað spurning um eggið eða hænuna í svona líka. Þá hvort var móðurborðið sjálft hafi verið gallað og það var bara spurning um hvenær drif yrði sett í og þetta færi af stað nú eða auðvitað að drifið sjálft hafi verið gallað/skemmt eða einhver brusugangur hafi átt sér stað sem hafi leitt til þess að skammhleypa á þennan hátt.
Við prófuðum móðurborðið með öðrum diskum. Það virkar eðlilega. Ég er eiginlega mest hissa á að það hafi lifað þetta af en það er þykkur kopar í þeim sem leiðir strauminn vel til jarðar og örgjörvinn er viðkvæmasti hluturinn á leiðinni þangað enda vinnur hann á lægri spennu en aðrir hlutar móðurborðsins. Sömuleiðis er aflgjafi að gefa eðlilegar spennur. Eina sem mér dettur annað í hug sem gæti valdið þessu er utanaðkomandi spennupúls en ekkert í lýsingu viðskiptavinar benti til slíks og það væri líka afar ólíklegt að lýsa sér með þessum hætti.
SSD diskurinn er með skammhlaupi innan í sér sem veldur því að hann hleypir spennu sem fer inn í hann niður í jörð gegnum brenndu pinnana. Líklegasta skýringin er að einhver ihlutur í dsiknum hafi skammhleypst, t.d. þéttir en ég verð þó að segja að mér finnst eitthvað skrýtið við rafrásarhönnun sem tengir íhluti beint á milli innspennu og þess hluta jarðtengingar sem er ætluð gagnasamskiptum, væri eðlilegra að tengja slíka hluti inn á jörðina á afltenginu að mínu mati.
Mér fannst þetta einmitt vanta. En ef móðurborðið virkar með öðrum drifum í sama slotti eftir allt þetta þá er líklegt að slíkt dugi sem sönnunbyrði til að þurfa ekki að uppfylla 2 ára ábyrgðarskylduna. Það hálf útilokar galla í móðurborði sem olli þannig skemmd á drifi og skammhlaupi um allt kerfið. Ég er því virkilega sammála hvernig Kísildalur tók þá á málinu eftir að heyra þetta. Hugsanlega er samt ráðlagt fyrir eiganda að senda inn til kærunefndar og láta Kísildal þurfa að sanna sína hlið þar.
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 7
- Skráði sig: Lau 08. Ágú 2020 16:51
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Það er gott að fá dýpri útskýringu fyrir skemmdunum en ég fékk í gegnum símann. Ég var ekki með þær fyrir, ég er samt í efum um að SSD diskurinn hafi ollið því, hann virkaði í 7+ daga í nýju tölvunni án vanda og í aðrari tölvu fyrir þetta.
Ég hafði sjálfur nefnilega aldrei heyrt neitt slæmt varðandi Kísildal og var sjálfur frekar hissa á þessari niðurstöður.
Ég hafði sjálfur nefnilega aldrei heyrt neitt slæmt varðandi Kísildal og var sjálfur frekar hissa á þessari niðurstöður.
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Crazyhelgi skrifaði:Það er gott að fá dýpri útskýringu fyrir skemmdunum en ég fékk í gegnum símann. Ég var ekki með þær fyrir, ég er samt í efum um að SSD diskurinn hafi ollið því, hann virkaði í 7+ daga í nýju tölvunni án vanda og í aðrari tölvu fyrir þetta.
Ég hafði sjálfur nefnilega aldrei heyrt neitt slæmt varðandi Kísildal og var sjálfur frekar hissa á þessari niðurstöður.
Já þetta er ömurlegt. Þú veist líka að ef drifið er í ábyrgð einhversstaðar þá væntanleg liggur ábyrgð hjá þeim á þessu ef Kísildalur hefur rétt fyrir sér. Hugsanlega gætirðu sett mál fyrir kærunefnd þar sem verslanirnar þyrftu þá að rífast um hver ætti bæta skaðann.
-
- has spoken...
- Póstar: 186
- Skráði sig: Fös 24. Apr 2020 16:00
- Reputation: 49
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Ég tek fram að ég hef fengið fína þjónustu hjá Kísildal og allt það. Það er þó eins með þá og alla aðra - maður þarf stundum að svara skrýtnum spurningum. Ég var einhverjum vandræðum með vélina mína um leið og ég fékk hana afhenta fyrir nokkrum árum síðan. Ég var nýkominn úr þriðja ísskáp, fjórðu uppþvottavélinni og annari þvottavélinni á stuttum tíma og hafði alveg gríðarlega þolinmæði fyrir ónýtum raftækjum.
Ég prófaði svona flest allt sem einfalt var að gera. Verandi ágætlega að mér í ýmsum hliðum þess að vera kaupandi, seljandi og lögfræðingur þá gerði ég það alltaf í samráði við Kísildal án þess að hafa neitt átt von á öðru en að þetta færi allt vel. Viðmót starfsmanna var mjög gott allan tíman og ég var sannfærður um að þeim væri jafn annt um að leysa vandann eins og mér.
Þeir fengu vélina til sín á endanum, enda vildi ég ekki að mér yrði síðar kennt um að akkúrat það að ég hafi prófað annan örgjörva hefði skemmt allt bla bla, enda hafði vélin ekki virkað frá fyrsta degi. Þá fékk ég mjög einkennilega spurningu. Hvort ég hefði eitthvað verið að fikta, þeir nefnilega sáu að það var allt annað paste á örgjörvanum en þeir nota. Það fyndna var að ég hefði ekkert snert á neinu slíku (þarna samdægurs og ég fékk vélina) og svaraði því að ég áttaði mig ekki á því hvað maðurinn væri að tala um.
Þarna hefur væntanlega starfsmaðurinn verið að reyna að fiska hvort ég hefði nú örugglega sagt frá öllu sem ég gerði. Það er mannlegt og maður skilur það - því ábyggilega margir að svindla osfrv. En þetta virkaði náttúrulega á mig allt öðruvísi, því þarna fór ég strax að hugsa "Bíddu, settu þeir þá vélina ekki saman fyrir mig samkvæmt þeirra eigin stöðlum? Var einhver starfsmaður að koma sínu ónýta móðurborði í mína vél til að geta notað nýtt fyrir sjálfan sig? Fékk ég eitthvað drasl paste sem þeir vilja ekki nota? Hvað svo sem varð þess valdandi að ákveðið var að spyrja mig þessarar spurningar varð náttúrulega til þess að ég, vitandi að ég hafði ekki gengið svo langt að útiloka hvern íhlut, vissi þá að einhver annar hefði sett eitthvað paste sem var meira að segja einhvernveginn á litinn og eitthvað. Hver var það?
Það kom í ljós að þarna var bilaður örgjörvi eða móðurborð (man ekki hvort og það skiptir ekki máli, slíkt getur alltaf komið fyrir). Þannig að rétt eins og notendurnir eru ekki óskeikulir þá eru fyrirtækin, og starfsfólk þeirra, það ekki heldur. Það erfiðasta við svona er að hvor aðili um sig trúir alltaf hinu versta upp á hinn.
Ég tók þessu ekki illa á þeim tíma og úr öllu var bætt og tóm gleði og ég hef haldið áfram að versla þarna. En ég mun aldrei aftur (og þetta var í fyrsta skipti í tugi ára) láta einhvern setja nýja tölvu saman fyrir mig. (það var næstum því fullkomlega gert, svolítið strekt á öllum vírum, en frágangurinn annars mjög góður - mun betri en ég hef þolinmæði til að gera, tek það fram). Það er einfaldlega vegna þess að ég nenni ekki stappi um svona hluti. Og sönnunarbirðin er meiri á neytendanum á Íslandi í praktík en hún ætti að vera.
Ég minni alla á að taka vídjó og myndir af öllu stanslaust þegar kemur að þessum hlutum. Margir passa sig alveg svakalega vel varðandi notaða hluti, en hversu oft hefur fólk ekki verið í veseni með nýja?

Climbatiz skrifaði:spurning, er einmitt með vél frá Kísildal sem ég fékk gjöf nýverið en kassinn er í minni stærðini heldur en bara ATX, einu stærð minna, fattaði ekki hvernig ég átti að fitta diskana mína inní kassanum og allt SSD diskar og lét þá bara hanga einhverstaðar inní enda ekki moving parts, er möguleiki á einhverju samskonar hjá mér? ef svo er, get ég komið með kassann til ykkar og þig setjið saman diskana í kassann, vill helst ekki vera að taka eitthvað í sundur sjálfur, auðvitað gegn greiðslu
Mesta hættan á því er gagnvart öðrum hlutum tölvunar, þ.e. að járnhúsið á disknum sé að slást í viðkvæma parta tölvunnar. Það ættu að vera nokkrir staðir til að festa 2.5" SSD diska, tveir fyrir aftan móðurborðsbakkan á bakhlið kassans og 2 undir hlífinni yfir aflgjafanum. Þú getur alltaf kýkt til okkar og fengið okkur til að festa diskana fyrir þig.
Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla 
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal

...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1301
- Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
- Reputation: 53
- Staðsetning: Í kísildalnum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
drengurola skrifaði:Ég tek fram að ég hef fengið fína þjónustu hjá Kísildal og allt það. Það er þó eins með þá og alla aðra - maður þarf stundum að svara skrýtnum spurningum. Ég var einhverjum vandræðum með vélina mína um leið og ég fékk hana afhenta fyrir nokkrum árum síðan. Ég var nýkominn úr þriðja ísskáp, fjórðu uppþvottavélinni og annari þvottavélinni á stuttum tíma og hafði alveg gríðarlega þolinmæði fyrir ónýtum raftækjum.
Ég prófaði svona flest allt sem einfalt var að gera. Verandi ágætlega að mér í ýmsum hliðum þess að vera kaupandi, seljandi og lögfræðingur þá gerði ég það alltaf í samráði við Kísildal án þess að hafa neitt átt von á öðru en að þetta færi allt vel. Viðmót starfsmanna var mjög gott allan tíman og ég var sannfærður um að þeim væri jafn annt um að leysa vandann eins og mér.
Þeir fengu vélina til sín á endanum, enda vildi ég ekki að mér yrði síðar kennt um að akkúrat það að ég hafi prófað annan örgjörva hefði skemmt allt bla bla, enda hafði vélin ekki virkað frá fyrsta degi. Þá fékk ég mjög einkennilega spurningu. Hvort ég hefði eitthvað verið að fikta, þeir nefnilega sáu að það var allt annað paste á örgjörvanum en þeir nota. Það fyndna var að ég hefði ekkert snert á neinu slíku (þarna samdægurs og ég fékk vélina) og svaraði því að ég áttaði mig ekki á því hvað maðurinn væri að tala um.
Þarna hefur væntanlega starfsmaðurinn verið að reyna að fiska hvort ég hefði nú örugglega sagt frá öllu sem ég gerði. Það er mannlegt og maður skilur það - því ábyggilega margir að svindla osfrv. En þetta virkaði náttúrulega á mig allt öðruvísi, því þarna fór ég strax að hugsa "Bíddu, settu þeir þá vélina ekki saman fyrir mig samkvæmt þeirra eigin stöðlum? Var einhver starfsmaður að koma sínu ónýta móðurborði í mína vél til að geta notað nýtt fyrir sjálfan sig? Fékk ég eitthvað drasl paste sem þeir vilja ekki nota? Hvað svo sem varð þess valdandi að ákveðið var að spyrja mig þessarar spurningar varð náttúrulega til þess að ég, vitandi að ég hafði ekki gengið svo langt að útiloka hvern íhlut, vissi þá að einhver annar hefði sett eitthvað paste sem var meira að segja einhvernveginn á litinn og eitthvað. Hver var það?
Það kom í ljós að þarna var bilaður örgjörvi eða móðurborð (man ekki hvort og það skiptir ekki máli, slíkt getur alltaf komið fyrir). Þannig að rétt eins og notendurnir eru ekki óskeikulir þá eru fyrirtækin, og starfsfólk þeirra, það ekki heldur. Það erfiðasta við svona er að hvor aðili um sig trúir alltaf hinu versta upp á hinn.
Ég tók þessu ekki illa á þeim tíma og úr öllu var bætt og tóm gleði og ég hef haldið áfram að versla þarna. En ég mun aldrei aftur (og þetta var í fyrsta skipti í tugi ára) láta einhvern setja nýja tölvu saman fyrir mig. (það var næstum því fullkomlega gert, svolítið strekt á öllum vírum, en frágangurinn annars mjög góður - mun betri en ég hef þolinmæði til að gera, tek það fram). Það er einfaldlega vegna þess að ég nenni ekki stappi um svona hluti. Og sönnunarbirðin er meiri á neytendanum á Íslandi í praktík en hún ætti að vera.
Ég minni alla á að taka vídjó og myndir af öllu stanslaust þegar kemur að þessum hlutum. Margir passa sig alveg svakalega vel varðandi notaða hluti, en hversu oft hefur fólk ekki verið í veseni með nýja?
Afsakaðu paranoiuna í starfsmanninum, finnst mig ráma í þolinmóðan hrakfallabálk og man að ég var ekki hrifinn af þessari vænissýki enda gefur hún bara sama ávöxt á móti. Þetta var á tímabili sem við vorum nýlega farnir að nota Kryonaut á allar smíðar en það voru ekki allir með á nótunum með það og því er líklegast að þú hafir fengið kælikremið sem fylgir ásett á kælingunni og er alveg fínt hvað kæligetu varðar en getur orðið leiðinlegt að eiga við með tímanum. Þess vegna færðum við okkur yfir í krem sem halda sér vel til lengri tíma svo að ef við þurfum að eiga við það seinna meir þá er það auðveldara.
Gott að fá svona ábendingu og alltaf hægt að bæta sig sem er nokkuð sem við viljum gera.

Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla 
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal

...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
-
- Vaktari
- Póstar: 2750
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 520
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
wICE_man skrifaði:Hér eru þau málatildrög sem eru ekki að koma fram í þessari lýsingu:
Viðskiptavinur kemur með tölvu sem hafði slökknað skyndilega á. Tölva neitaði að kveikja á sér af því að aflgjafi var búinn að slá sér út.
Við nánari eftirgrenslan sáum við að gamall SSD diskur sem hafði verið tengdur við vélina var með skaðbrenndar snertur á Data-Ground pinnum, þ.e. öllum 3 ground pinnunum á gagnatenginu og einum pinnanum sem leiðir til aflgjafa. Eftir að diskur var tekinn úr vél þá kveikti tölvan á sér en komst ekki gegnum ræsingu.
Örgjörvinn reyndist ónýtur eftir þetta og tölva fór í gang á sama móðurborði með öðrum örgjörva.
Straumur hefur runnið frá SSD disk niður til jarðar og miðað við mælingar mínar hefur hann runnið framhjá örgjörvasætinu og sent öfugan straum inn á ground pinna á örgjörva. Ég get séð að ground-plane í kringum SATA tengin er aðskilið frá ytra ground plane-i og mæli lægra viðnám frá ground pinnunum á SATA tengi móðurborðs að bakhlið örgjörvasætis heldur en út í jarðtengingu fyrir kassa.
Þannig að okkar mat var að SSD diskur hefði skyndilega skammhleypst og sent spennu og straum í gegnum inn á móðurborð og að það hefði eyðilagt örgjörvan.
Ég er prinsípmaður og tel að allir eigi að taka ábyrgð á gjörðum sínum og eigi að gangast við þeirri ábyrgð. Við berum ábyrgð á að okkar hlutir virki rétt en að sama leiti ber eigandi ábyrgð á því þegar hann bætir við hlut sem veldur skaða.
Ef ég hefði ekki séð beina tengingu þarna á milli sem skýrir hvernig þetta gerðist þá hefði ég klárlega leyft viðskiptavini á njóta vafans. Ég lái hins vegar engum að þykja þetta undarlegt enda mjög sjaldgæft að hlutir gefi sig með þessum hætti.
Þetta er klárlega mál fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa og ég mæli með að menn nýti sér þjónustu þeirra þega menn telja að brotið sé á þeim.
Finnst soldið sérstakt að þú hoppir á þá skýringu að ssd hafi drepið cpu, þegar það eru engin ummerki um það. Móðurborð virkar. Engar skemmdir.
Getur cpu ekki alveg eins hafa verið gallaður og gefið sig?
-
- Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Skrítin spurning, en virkar SSD diskurinn í dag?
Er PSU örugglega 100%? Hann hefði getað brætt SSD svo hann bilaði og hleypti steaumnum svo áfram.
Finnst smá "þú raufst innsigli" fílingur yfir þessu en bara trúi því ekki upp á Kísildal, þeir eru með allt sitt upp á 10 og treysti þeim til að claima allt sem þeir geta claimað en ekki reyna að koma sér undan ábyrgð.
Hef bara góða reynslu af akkúrat ábyrgðarmáli hjá Kísildal.
Er PSU örugglega 100%? Hann hefði getað brætt SSD svo hann bilaði og hleypti steaumnum svo áfram.
Finnst smá "þú raufst innsigli" fílingur yfir þessu en bara trúi því ekki upp á Kísildal, þeir eru með allt sitt upp á 10 og treysti þeim til að claima allt sem þeir geta claimað en ekki reyna að koma sér undan ábyrgð.
Hef bara góða reynslu af akkúrat ábyrgðarmáli hjá Kísildal.
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Já maður var svona að pæla aðeins meira í þessu. Maður getur alveg séð fyrir sér að t.d. 3,3 volta railið hafi hreinlega klikkað eitthvað í aflgjafanum líka. En þeir hjá Kísildal mældu það líka en veit ekki hvort það var sett neitt álag á það. Það er ekki mikið sem setur álag á 3,3 railið í dag annað en einmitt SSD drifin sem geta tekið alveg 5-10 wött á því. Hins vegar á ég líka erfitt að sjá fyrir mér hvernig þetta endaði í örgjörvanum þá án þess að nein öryggi brunnu eða annað á leiðinni í gegnum móðurborðið. En þó ég hafi nú unnið við tölvuviðgerðir í nokkur ár er ég þó ekki rafeindavirki svo þetta er aðeins utan minnar þekkingar. En þetta er svo virkilega ódæmigert eitthvað að maður pælir aðeins meira en vanalega. Þetta hefur væntanlega valdið töluverðu spjalli innanhúss hjá Kísildal. Ég veit að ég væri hálf hræddur við þessa tölvu þó ég myndi setja nýjan örgjörva og nýtt drif í hana í dag sem þýðir auðvitað að manni finnst þetta ekki alveg 100% á hreinu hvar ábyrgðin liggur.
Síðast breytt af Gemini á Mán 26. Maí 2025 21:44, breytt samtals 1 sinni.
-
- Nörd
- Póstar: 101
- Skráði sig: Mán 07. Maí 2012 20:43
- Reputation: 4
- Staðsetning: Vesturland
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Man einungis einu sinni eftir því að hafa verslað í Kísildal (eflaust oftar en er a.m.k. ekki á listanum hvar ég versla ekki). Keypti örgjörva (í fermingartölvu fyrir frænda minn) sem var afhentur í einungis plasti eins og myndinni í þessum link:
https://i.ebayimg.com/images/g/MrUAAOSw ... -l1200.jpg
Þegar kom að því að setja örgjörvann í móðurborðið komst hann ekki fyrir því það voru beyglaðir pinnar. Margar skýringar koma þá til greina, á einhverjum tímapunkti ekki nógu vel höndlaður á leiðinni, hvort sem er hjá Kísildal eða hjá mér - gæti að sjálfsögðu verið hjá mér en með nýja tölvuhluti passar maður sig einmitt ofurvel á því að ekkert komi fyrir hlutina. Var mjög sár yfir þessu, verandi ekki í Rvk og lítill tími fyrir þetta. Með vafasömum aðferðum, (já rétti pinnana), komst örgjörvinn í og tölvan hefur nú keyrt á 5. ár án vandræða.
"Mórall" sögunnar, líkar ekki vel við að kaupa örgjörva án þess að vera í öruggari pakkningum en þetta, hefði að sjálfsögðu að geta rýnt pinnana við afhendingu en datt það ekki í hug þá (þetta var glænýtt). Ekki í neinni sökudólgaleit hér, hefði eflaust (vonandi?) verið leyst fyrir mig ef ég hefði farið aftur í Kísildal og sagt frá þessu, en auðvitað hefði alltaf verið hægt að varpa ábyrgðinni á mig að þetta hefði komið fyrir hjá mér, hver veit. Mun a.m.k. ekki leitast eftir því að spara einhverja örfáa þúsundkalla á að versla örgjörva sem ódýrastan ef þetta er munurinn (mögulega afhentur með stock kælingu þá, ef það er ennþá, allavega í meiri pakkningu).