Síða 1 af 1

Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Mið 23. Apr 2025 19:07
af Prentarakallinn
Eftir að netið datt út hjá Vodafone þarna fyrir nokkrum dögum hefur það verið rosa lélegt. Netið heima er búið að detta út nokkrum sinnum síðan þá, var að detta út núna en 5G virkar. Þetta er orðið alveg dálítið þreytt og er alveg farin að íhuga að skipta. Er ég sá eini sem er að lenda í þessu?

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Mið 23. Apr 2025 19:46
af Knud
Ekki lent í neinu veseni síðan það datt út hjá öllum

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Mið 23. Apr 2025 20:44
af olihar
Er ekki bara auðveldast að hoppa yfir til Hringdu. Lækkar pottþétt reikninginn þannig líka.

Það er í raun bara 2 sem böggar mig við Hringdu. Ekki hægt að fá shared notkun á mörg sim kort og ekkert E-sim.

Annars er allt yndislegt þar.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fim 24. Apr 2025 11:38
af Omerta
E-sim er í boði. Fékk svoleiðis fyrir ca 2 mánuðum hjá þeim.

olihar skrifaði:Er ekki bara auðveldast að hoppa yfir til Hringdu. Lækkar pottþétt reikninginn þannig líka.

Það er í raun bara 2 sem böggar mig við Hringdu. Ekki hægt að fá shared notkun á mörg sim kort og ekkert E-sim.

Annars er allt yndislegt þar.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fim 24. Apr 2025 11:52
af olihar
Omerta skrifaði:E-sim er í boði. Fékk svoleiðis fyrir ca 2 mánuðum hjá þeim.

olihar skrifaði:Er ekki bara auðveldast að hoppa yfir til Hringdu. Lækkar pottþétt reikninginn þannig líka.

Það er í raun bara 2 sem böggar mig við Hringdu. Ekki hægt að fá shared notkun á mörg sim kort og ekkert E-sim.

Annars er allt yndislegt þar.


Það er þá eitthvað nýtt. Fer í að skoða. Er það þá 1.990 eða da 2.990 á mánuði?

Ahh nei ekki komið e-Sim nema fyrir sumt.


Styðjið þið eSIM?
Já, fyrir síma. Samsung snjallúrin eru einnig studd en Apple Watch er í vinnslu.


Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fim 24. Apr 2025 12:16
af Dr3dinn
Búið að vera til vandræða í gaming núna í langan tíma, skil ekki hvernig fólk nennir þessu þjónustu stigi.

Margir fastir þar útaf fyrirtækja tengingum vinnustaða, annars væru mun fleiri farnir frá vf.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fim 24. Apr 2025 15:06
af B0b4F3tt
Vinnan mín er einmitt með heimatengingar frá Voðafone. Búinn að vera í þessari vinnu í fimm ár og hef allan tímann kosið að borga mína eigin nettengingu heldur en að fara yfir til Voðafone. Sé sko alls ekki eftir því enda poppa reglulega upp umræður í vinnunni um hvað tengingin er slöpp hjá Voðafone.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fim 24. Apr 2025 19:45
af Viktor
Ég er einmitt með Vodefone í gegnum vinnuna.

Apple TV er stanslaust að poppa um með viðvörun að netið sé farið.

Er reyndar ekki búinn að kanna hvort það er ljósleiðaranum eða Vodafone að kenna.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fös 25. Apr 2025 00:06
af agnarkb
Viktor skrifaði:Ég er einmitt með Vodefone í gegnum vinnuna.

Apple TV er stanslaust að poppa um með viðvörun að netið sé farið.

Er reyndar ekki búinn að kanna hvort það er ljósleiðaranum eða Vodafone að kenna.


Er hjá Voddafokk og mitt Apple TV hefur verið gjarnt á þetta undanfarið, hélt að þetta væri kannski tækið að bila því það hefur átt það til líka að koma með no signal upp úr þurru.
Er bara með of góðan díl hjá Vodda til að segja upp og fara annað fyrir meiri pening.

Re: Hvað er í gangi með netið hjá Vodafone?

Sent: Fös 25. Apr 2025 09:11
af Vaktari
Það sem ég myndi nú gera væri að heyra í vodafone og láta bilanagreina tenginguna hjá mér ef ég væri í veseni.
Svo myndi ég einnig ath hvort það þurfi nokkuð að uppfæra apple tvið hjá mér, þótt það sé stillt í automatic update.

Svo er alltaf spurning hvernig húsnæði aðili er í hvort einn router dugi eða hvort það þurfi punkta. Mögulega eru bara ekki margir að átta sig á því.