Kaupa Crucial RAM/M.2 á AliExpress
Sent: Fim 17. Apr 2025 13:36
af Prentarakallinn
Ég er búinn að vera skoða að kaupa ssd og ram á Ali, þetta lookar alveg legit, margar sölur, mörg review og talsvert ódýrara en að kaupa á klakanum þannig ég var að spá eru menn með reynslu af því að kaupa svona Ali.
https://a.aliexpress.com/_Euva2BEhttps://a.aliexpress.com/_EzClSwY
Re: Kaupa Crucial RAM/M.2 á AliExpress
Sent: Fim 17. Apr 2025 14:02
af Frussi
Hef pantað mikið af dóti á ali en myndi held ég aldrei kaupa neitt mission critical, frekar kaupi ég allavega bara notað hérna
Re: Kaupa Crucial RAM/M.2 á AliExpress
Sent: Fim 17. Apr 2025 15:12
af Zensi
Hvoru tveggja svokallað "Choice" items þannig að það er meiri trygging ef eitthvað fer úrskeiðis þarsem Aliexpress sjálfir eru "seljendurnir/búðin" og sourca hlutina beint frá framleiðanda (verksmiðju) eða heildsölum gegnum Alibaba networkið.
Ali support endurgreiðir þér án múðurs strax ef eitthvað fer úrskeiðis, galli eða ef umbúðir eru sundurlamdar osfrv.
Aliexpress leyfir víst eingöngu verksmiðjum og suppliers sem eru með mjög gott fullfillment record að taka þátt í þessu Choice programmi og allt shipping er höndlað af Cainiano sem er flutningsaðili í eigu Alibaba.
Hef t.d. grætt 2 hluti frítt uppá ca 68þ samtals sem voru "Choice" items af því að seljendur klikkuðu á tracking númerum (úthlutuðu vitlausum númerum en sendu svo rétta númerið í message) en af því að tracking númerin sem var úthlutað fóru aldrei "úr landi" í Kína þá fékk ég hlutina sjálfkrafa endurgreidda frá Ali en þeir komu samt í póstinum.
Búðin á fyrri link er solid eftir smá skoðun og supplier á seinni link er búin að vera í business síðan 2014.
Gildir líklega standard Crucial ábyrgðin á þessum hlutum og ef supplier staðfestir það með message ef þú spyrð þá ertu komin með ástæðu fyrir endurgreiðslu ef það er ekki satt.
Sé ekkert að því að panta þetta.