Síða 1 af 1
Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 15:58
af NeoLights
Ég er að leita að þjónustu hér á Íslandi (ef hægt) sem getur hjálpað til við að gera við harða diskinn minn. Það dó fyrir nokkru síðan en það er gríðarlegt magn af fjölskyldumyndum þarna.
Re: Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 16:33
af Gemini
Held að einhverjar tölvubúðirnar taki að sér milligöngu en held þetta sé alltaf sent svo út. En ég hef ekki skoðað þetta lengi svo mögulega eru fleiri lausnir í boði í dag.
Re: Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 16:54
af Viggi
Hef heyrt af þessum við og við. Enga reynslu af þeim samt
https://datatech.is/
Re: Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 17:05
af olihar
Ég myndi senda út. Ég hef sent nokkra hingað fyrir aðra sem milligönguaðili, öllum gögnum bjargað í hvert skipti.
https://drivesaversdatarecovery.com
Re: Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 18:44
af Televisionary
Þegar þú segir að diskurinn hafi dáið? Kemur hann upp sem "device" eða svarar engu? Ef það er hægt að lesa diskinn sem device þá er brekkan minni í þessu.
Ég hef endurheimt gögn síðustu áratugina af alls kyns tækjum og stýrikerfum. En gef mig ekki út fyrir það neitt sérstaklega.
Re: Er til eitthvað Hard Drive Recovery þjónusta hér á Íslandi?
Sent: Sun 16. Mar 2025 21:58
af NeoLights
Televisionary skrifaði:Þegar þú segir að diskurinn hafi dáið? Kemur hann upp sem "device" eða svarar engu? Ef það er hægt að lesa diskinn sem device þá er brekkan minni í þessu.
Ég hef endurheimt gögn síðustu áratugina af alls kyns tækjum og stýrikerfum. En gef mig ekki út fyrir það neitt sérstaklega.
Þetta er svona external usb hard drive, þegar ég tengi hana í tölvu þá heyrist í henni og heyrist líka í svona clunk hljóði en það kemur ekkert upp. Hef ekki tengt disknum síðan í tölvu aftur.